26.02.1948
Efri deild: 69. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í C-deild Alþingistíðinda. (2795)

66. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Frsm. minni hl. (Steingrímur Aðalsteinsson):

Herra forseti. Hv. form. sjútvn. skýrði frá því hér, að þetta mál hefði aftur verið á dagskrá í sjútvn. og hefði meiri hl. n. fallizt á að flytja þá brtt., sem hér liggur fyrir. Ég skal ekki fullyrða neitt um þennan fund, en frekar held ég nú samt, að hann hafi aldrei verið haldinn, eða að minnsta kosti var ég aldrei boðaður á hann, þó að ég eigi sæti í sjútvn. Hitt mun sennilegra, að þessi till. sé borin fram af mönnum í sjútvn., þó að ekki hafi verið um það formlegur fundur.

Annars sýnist mér, að efni till. sé á þá leið, að það leyni sér ekki, að hún er fram komin til þess að eyðileggja frv. Ég tel engin rök mæla með því, að ekki sé hægt að halda framkvæmdum áfram þar eystra. Það verður að sjálfsögðu ekki hægt að gera ráð fyrir, að hafnargerðinni verði lokið á einu ári, en það ætti ekki síður að vera hægt fyrir ríkið að halda áfram framkvæmdum en Hafnarhrepp, og ég veit ekki betur en það sé unnið að hafnargerð í Njarðvíkum, þó að ekki sé allt fé til framkvæmdanna fyrir hendi. Þess vegna sé ég ekki annað en þessi till. sé tilraun til þess að eyðileggja þetta mál, enda hefur form. sjútvn. barizt á móti málinu frá upphafi.