26.02.1948
Efri deild: 69. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í C-deild Alþingistíðinda. (2799)
66. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson) :
Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi leyfa mér að lýsa yfir því fyrir hönd meiri hl. n., að hann er sammála um, að þetta orðalag sé óbreytt, eins og hæstv. forseti gat um. Það má að vísu deila um það, hvort bráðabirgðaákvæðið á að koma á eftir síðustu gr., um það, hvenær l. öðlast gildi. En eins og hæstv. forseti gat um, mun það vera venja, að það komi síðast.
Í ræðu sinni sagði hv. 6. landsk. þm., að það hefði ekki verið haldinn fundur í sjútvn. um málið. Það er rétt. Fundur var ekki boðaður sérstaklega. Það mættu ekki nægilega margir til þess að hægt væri að halda fund. Ég hafði lofað hæstv. forseta að halda ekki málinu lengur en þann dag. Ég ræddi svo málið við meiri hl. sjútvn., sem ber fram þessa brtt. Auk þess ræddi ég við hv. þm. N-Þ., sem fylgir minni hl. að málum, og taldi hann ekki ástæðu til þess að kalla á minni hl. n. til þess að fjalla um þessa brtt., því að hann sagði, að hann mundi ekki geta fallizt á hana, eins og þegar er komið á daginn. Það er því meiri hl. n., sem hefur fjallað um málið og er með brtt.
Þá vildi ég benda á, án þess að ég vilji, að það sé tekið sem andúð við málið, að hér er ekki gefin nein heimild í þessu frv. til þess að yfirtaka þessi mannvirki. Það vantar í frv. Í l. um landshöfn í Njarðvíkum er í 3. gr. talað um heimild til þessa. Ef þetta frv. verður samþ. óbreytt, er ekki hægt að yfirtaka þetta fyrirtæki. Það er engin heimild í frv. til þess. Ég hef ekki orðið var við það í þessu frv., að gert sé ráð fyrir að semja um kaup á þessum mannvirkjum, sem fyrir eru, og því síður nokkuð um það að taka þau eignarnámi. Sé þetta ekki rétt hjá mér, verður það vonandi leiðrétt. En sé þetta hins vegar rétt, bendir það til þess, að þetta mál sé flutt meira af kappi en forsjá. Það er því mjög vafasamt, og enda alveg víst, að eins og frv. er nú, þá er ekki einu sinni hægt að nota það fé, sem nú er veitt til hafnargjóðs í Hornafirði, nema ákveða sérstaklega um það. Þetta fé er veitt allt öðrum aðila. Það er búið, að veita hafnarsjóði Hornafjarðar það, og það er ekki frekar hægt að nota það fé og veita því til landshafnar þar, en að taka það og veita því til framkvæmda vestur í Barðastrandarsýslu eða Norður-Ísafjarðarsýslu, sem yrði þar vel þegið, nema með samþykki þess aðila, sem féð átti að fá.
Ég sé ekki heldur annað en ef þetta verður að l., verði að afnema ákvæðin úr hinum almennu hafnarl. um rétt og skyldur hafnarstjórnar Hornafjarðar, því að eins og stendur í þeim l., hefur hafnarsjóður ákveðinn rétt til fjárframlaga og þá um leið ákveðnar skyldur. (HV: Hann hefur öðlazt frekari rétt með þessum l.). Hann hefur ekki öðlazt frekari rétt með þessum l. En eftir gildandi l., eins og ég sagði áðan, hefur hafnarstjórn og hafnarsjóður rétt til þess að fá fé sitt til sinna mannvirkja. Þetta var ekki gert vegna landshafnar í Njarðvíkum, vegna þess, að sá staður var ekki tekinn í hafnarl., af því að bæði þessi l. voru ekki á sama tíma. Á þetta benti ekki meiri hl., vegna þess að hann gerði þá ráð fyrir, að málinu yrði vísað frá með rökst. dagskrá, sem hann lagði til, að yrði samþ. En þegar það var ekki gert, verður að taka málið fyrir eins og það liggur fyrir nú. Og þegar að því kemur, að ákveðið er, að fleiri landshafnir verði hér á landi en í Njarðvíkum, þá er ástæða til þess að athuga, hvort taka eigi fleiri landshafnir í l. og þá hverjar.
Ég vildi ekki bera fram brtt. nú við þessa umr., sumpart vegna þess, að það hefði þurft að gerbreyta frv., og ég vildi ekki gera það. En hins vegar hefur komið til greina og heyrzt hafa raddir um það að gera Þorlákshöfn að landshöfn. Nú hefur hv. 2. þm. Árn. (EE) lýst yfir því, að hann greiði atkv. með þessu frv. í því fulla trausti, að hér fari fleiri á eftir, og nákvæmlega það sama er að segja um afstöðu hv. þm. N-Þ. (BK). Hann greiðir atkv. með frv. í trausti þess, að Þórshöfn verði síðar gerð að landshöfn, og hefði þá verið miklu eðlilegra að taka upp kerfi um landshafnir yfirleitt.
Nú vildi ég skýra frá því viðvíkjandi Þorlákshöfn, að mér þykir afstaða hv. 2. þm. Árn. ákaflega einkennileg í þessu máli. Fulltrúar frá sýslunefndum Árnes- og Rangárvallasýslna hafa verið hjá fjvn. og alveg sérstaklega rætt um þetta mál við mig sem formann fjvn. og formann sjútvn. d., og þeir hafa verið það víðsýnni en hv. 2. þm. Árn., að þeir telja, að í framtíðinni sé það miklu skynsamlegra fyrir þá að koma þessu áfram með því að hafa þetta undir hinum almennu hafnarl., en þeir óska ekki eftir því, að þar verði gerð landshöfn. Þess vegna þykir mér undarlegt, þegar hv. 2. þm. Árn. lýsir yfir því hér, að fylgi hans við þetta frv. stafi fyrst og fremst af áhuga fyrir landshöfn í Þorlákshöfn. Hv. 8. landsk. sagði, að engin mótmæli hefðu komið fram gegn nauðsyn þessa máls. Ég veit ekki til, að mótmæli hafi komið fram frá Alþ. gegn því, að nauðsyn væri á því að byggja hafnir annars staðar á landinu. Það er síður en svo. Ég býst t. d. við, að engum hafi dottið í hug að halda fram, að ekki væri nauðsynlegt að byggja höfn í Bolungavík. Ég hygg, að Bolungavík sé engu síður verstöð að verðgildi en t. d. Hornafjörður. En það er allt annars eðlis en hvort þar eigi að vera landshöfn. Að hinu hef ég fært rök, mörgum sinnum, að það er langtum auðveldara fyrir menn að ráða, hve framkvæmdirnar komast fljótt upp með því að þetta sé undir hinum almennu hafnarl. en að þurfa að sækja allt til ríkisstj. um að fá fjárframlag til þeirra hafna, sem eru ákveðnar landshafnir. Það liggja þegar fyrir beinar yfirlýsingar um það frá hæstv. samgmrh. annars vegar, að þessar framkvæmdir verði látnar bíða, hvort sem þetta frv. verði samþ. eða ekki, og verði aðeins haldið áfram fyrst og fremst með þau mannvirki, sem þegar sé farið að vinna við og nokkuð langt komin. Þá hefur hæstv. fjmrh. lýst yfir því sama, að hann telur, að ekki sé hægt að byrja á því verki og það mundi þokast seinna áfram, ef samþ. yrði, að þarna yrði landshöfn. Ég verð þá að segja það, að eftir þessar yfirlýsingar hæstv. ráðh., þá stappar það nærri andúð á málinu að halda svo fast með þessu frv.
Hv. 8. landsk. heldur því fram, að annaðhvort verði að leggja staðinn niður sem slíkan eða þá að samþykkja frv. eins og það liggur fyrir. Frá mínu sjónarmiði er þetta fjarstæða. Mér skilst, að verði þetta frv. samþ., verði aðeins um heimildarl. að ræða. Hvar stendur svo þetta mál þá, eftir að bæði hæstv. samgmrh, og hæstv. fjmrh. hafa lýst yfir því, að fyrst um sinn verði ekkert gert, það verði ekki byrjað þarna á neinum framkvæmdum. Á hvaða stigi stendur svo málið? Það stendur á því stigi, að það verður ekkert gert á staðnum, enda þótt samþ. verði þessi heimild fyrir ríkisstj. (StgrA: Er þetta ekki vantraust á ríkisstj.?). Nei, það er það ekki. Því að þegar búið er að þjarma svo að ríkissjóði, til þess að standa straum af margvíslegum framkvæmdum og þegar við vitum, að í landinu eru svo mörg verkefni, sem kalla að, þá er það ekki vantraust á ríkisstj., sem þar er um að ræða. Það er margbúið að lýsa yfir því, að ríkissjóður verði að leggja mjög mikið að sér til þess að uppfylla þau ákvæði, sem snerta landshöfn í Njarðvíkum, sem þegar er farið að vinna að. Það er alveg víst, að þessar framkvæmdir dragast, þótt þetta frv. yrði samþ., og hér er líka aðeins um heimildarl. að ræða. En samkvæmt almennum hafnarl. er það skylda, að ríkissjóður skuli leggja fram fé á móti viðkomandi stað. (ÁS: Eru það ekki heimildarl. um Njarðvíkur?). Jú, en það er búið að framkvæma svo mikið af þessu, að það væri ekki skynsamlegt að láta það verk bíða og byrja á öðrum verkum sams konar. Og þeir, sem halda svo fast við þetta mál, eru ekki að hugsa um hag þjóðarinnar, heldur eitthvað allt annað.
Ég hef bent hér á veilur í frv., og ég býst ekki við að taka til máls aftur, nema sérstakt tilefni gefist til.