01.03.1948
Neðri deild: 66. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í C-deild Alþingistíðinda. (2805)

66. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Páll Þorsteinsson:

Þetta mál er þm. vel ljóst. Ber tvennt til þess að málið hefur komið fyrir áður og að grg. og fylgiskjöl eru svo góð, að létt er að glöggva sig á málinu. Eigi að síður vil ég þó fylgja málinu úr hlaði með nokkrum orðum.

Málið hefur verið lagt fyrir tvisvar áður. Árið 1945 var það flutt í svipuðu formi, en var vísað frá með rökst. dagskrá þess efnis, að nánar yrðu rannsökuð hafnarskilyrði í Hornafirði, þar sem þinginu þótti ekki áætlanirnar nógu fullkomnar. Þessi rannsókn var framkvæmd 1946 og henni lokið, áður en þingið 1946 hóf störf sín. Málið var þá flutt aftur í Ed. og náði fram gegnum tvær umr., en dagaði þá uppi. Snemma á þessu þingi var svo málið tekið upp aftur í Ed.

Það er kunnugt, að útgerð hefur verið á Hornafirði, síðan vélbátaútgerð hófst. Hafizt hefur verið handa um verbúðir og bátabryggjur til nota fyrir Austfirði almennt. En þær bryggjur, sem byggðar voru, voru að sjálfsögðu miðaðar við útgerð þeirra tíma og því öruggt fyrir stærri báta að athafna sig þar við bryggju. Síðan hefur þessi verstöð verið fullnotuð og stundum orðið að vísa frá mönnum, sem hafa sótt um aðstöðu til útgerðar þar.

Fiskimiðin út af suðurströndinni austanverðri eru mjög góð. Það hefur margra ára reynsla sýnt. Eru þau sambærileg við fiskimiðin við Suðvesturland yfir vetrarvertíðina. Á síðari árum hefur verið lögð mikil stund á að auka bátaflotann og efla sjávarátveginn, og er sú starfsemi kunnari en frá þurfi að segja. Hefur hún komið fram í því að fjölga skipum og stækka skip, svo að þau hafi meira burðarmagn, geti sótt á fjarlægari mið og dregið meiri afla á land en hægt er með smærri bátum. En það hefur alltaf þótt nauðsynlegt vegna sjávarútvegsins og alls þjóðfélagsins að dreifa atvinnutækjunum sem allra víðast, til þess að fiskimiðin verði ekki uppurin á einum og sama stað. Hefur sú dreifing aldrei verið nauðsynlegri en nú, eftir að hinn mikli vöxtur er kominn inn í sjávarútveginn, sem nú á sér stað. En um leið og veiðarfæri og skip eru bætt, svo að meiri afli er dreginn á land en fyrr, þarf einnig að koma til greina aukin og bætt aðstaða fyrir báta til að athafna sig í verstöðvum landsins. Er það m. a. mjög aðkallandi í Hornafirði að bæta þar um eigi síður en annars staðar. Síðan bátar stækkuðu, hefur verið of grunnt við bryggjurnar og bryggjurúm of lítið og fiskgeymslur of litlar miðað við þann afla, sem þar er dreginn á land.

Það er enn fremur stórt atriði, að innsiglingu á Hornafjörð er þannig háttað, að flutningaskip, sem flytja farm milli landa, geta tæplega — og stór skip alls ekki — komizt inn að bryggju til að athafna sig. Er því mikil nauðsyn að ráða bót á þessu atriði. En allar framkvæmdir í sambandi við hafnargerð á Hornafirði hafa dregizt mjög úr hömlu og miklu meir en menn hefðu kosið. En til þess liggja ýmsar ástæður, og fyrst og fremst þær, að ríkið sjálft, vitamálastjórnin, var ekki undir það búið að láta dýpkun fara fram á Hornafirði fyrr en á þessu ári, þar sem dýpkunarskip ríkisins er fyrir skömmu komið til landsins og hefur haft ærið að starfa annars staðar. Um eitt skeið var mjög um það talað að byrja umbætur þarna og reisa bryggjur, en við nánari athugun var mönnum ráðið frá því af hálfu vitamálastjóra með það fyrir augum, að dýpkunin yrði að ganga á undan, af því að það væri ekki hægt að gera bryggjurnar svo traustar sem nauðsyn krefði, nema dýpkunin kæmi fyrst og síðan væru staurar reknir niður í botninn, eins og hann ætti að vera að lokinni dýpkuninni. Nú er verið að hefjast handa, þar sem dýpkunarskipið er komið á þennan stað, og verður væntanlega framhald á því, því að það er ljóst, að þar þarf að gera stórt átak til hafnarbóta.

En þá er spurningin: Hvaða aðili á að standa fyrir þeim framkvæmdum og bera kostnaðinn uppi? Sumir segja sem svo: Það er sjálfsagt og eðlilegt að miða við þá venju, að hafnarsjóður hreppsins sjái um þessar framkvæmdir með þeirri aðstoð, sem veitt er samkvæmt almennum hafnarl. Höfn í Hornafirði er vaxandi þorp, og þar hlýtur að verða aukin útgerð, og hún þarf að aukast að mun frá því, sem nú er. Sú aðstaða, sem þar er þegar fengin, er nægileg og mundi verða það um næstu ár og áratugi, ef ekki kæmi annað til greina en að sjá fyrir útgerðaraðstöðu fyrir þorpið eitt út af fyrir sig og héraðið, sem að því liggur. Ef ekki væri um annað að ræða, mundi enginn fara fram á, að landshöfn væri byggð á þessum stað. En hér er annað og meira um að ræða. Hornafjörður er útgerðarstaður alls Austfirðingafjórðungs. Þaðan stunda veiðar bátar af öllu svæðinu frá Langanesi og suður á Hornafjörð, meira og minna úr öllum þorpum og kaupstöðum, auk þeirrar útgerðar, sem er úr héraðinu sjálfu. Þess vegna er það, að ef á að gera Höfn að öflugri útgerðarstöð, er fullnægi þeim kröfum, sem gerðar eru til hennar af öllum þessum aðilum, þá er það alltaf að verða fleiri og fleiri mönnum ljóst, að það er Hafnarhreppi ofvaxið að sjá um þessar framkvæmdir.

Þá er á það að minnast, að það er fleira á þessum stað, sem krefst aðgerða en hafnargerðin ein út af fyrir sig. T. d. er nokkurt vandhæfi að sjá fyrir neyzluvatni, en þar, sem mikil útgerð er og fiskiðnaður, er vissulega mikil þörf á vatni. Nú er hreppsn. Hafnarhrepps að undirbúa að setja upp vatnsleiðslukerfi í þorpið og ætlar að sjálfsögðu að sjá fyrir þeirri framkvæmd án þess að leita til ríkisins umfram þá almennu aðstoð, sem það veitir í því skyni. Enn fremur hefur hreppurinn á prjónunum rafstöð, og hefur verið gripið til þess ráðs í því efni að reisa þar olíurafstöð, þar sem ekki horfir svo, að þar komi vatnsvirkjun til greina á allra næstu árum. Þetta verkefni ætlar hreppurinn að annast án þess að krefjast nokkurrar séraðstöðu við það.

Þá kynnu ýmsir að segja, að þeir aðilar, sem þarna er um að ræða, þ. e. a. s. Austfirðir, ættu ásamt Hornfirðingum að sameinast um framkvæmd þessa máls. Þar er fyrst og fremst því til að svara, að kaupstaðirnir og þorpin í Múlasýslum þurfa öll að sinna hafnarbótum heima hjá sér, og hygg ég, að þau þykist hafa þar ærið verkefni, þó að þau fari ekki að bæta því á sig að styðja hafnargerð á Hornafirði í ofanálag. Og þó að kaupstaðir og þorp í Múlasýslum vildu leggja fé til hafnargerðar á Hornafirði úr hafnarsjóðum sínum, þá efast ég um, að slíkt væri í samræmi við gildandi lög. Þegar allt þetta er athugað, er skiljanlegt að alltaf séu fleiri og fleiri að komast á þá skoðun, að til þess að ráða bót á því ástandi, sem þarna er, sé bezta ráðið að gera Hornafjörð að landshöfn. Á þessi hugmynd mjög almennu fylgi að fagna á Austfjörðum, og má því til sönnunar benda á, að í fyrra, þegar málið lá fyrir þinginu, barst áskorun á annað hundrað sjómanna og útgerðarmanna úr Múlasýslum til Alþ. þess efnis að óska, að frv. yrði gert að l. Það sannar m. a., að það eru ekki aðeins Austur-Skaftfellingar, sem er það áhugamál að fá samþykkta landshöfn á Hornafirði, heldur er það áhugamál allra þeirra, sem stunda þar fiskveiðar og nota þá aðstöðu sem þar er.

Ég hef þá með þessum fáu orðum drepið á helztu rökin, sem fyrir þessu máli eru, og vil að síðustu draga þau saman í örfáar setningar. — Fiskimiðin út af Hornafirði eru mikil og auðug, og þjóðfélagið má ekki við því að láta þau ónotuð: Þess vegna verður að skapa fullnægjandi aðstöðu á þess um stað fyrir þann bátaflota, sem stundar veiðar á þessum miðum — þrír fjórðu hlutar þessa flota, sem stundar veiðar frá Hornafirði, eru og hafa um langt skeið verið aðkomubátar, en aðeins fjórði hlutinn frá Hornafirði. Þó að Hornfirðingar vildu sjálfir sjá farborða þeim flota, sem þar er á vertíð, er þeim um megn að skapa fullnægjandi aðstöðu fyrir þann flota, sem kemur annars staðar frá. Vitamálastjóri hefur haft þetta mál til umsagnar og hefur einróma mælt með málinu, því að hann segir svo í umsögn, sem prentuð er sem fskj. með nál. meiri hl. sjútvn. í Ed., með leyfi hæstv. forseta:

„Því í hvaða röð ég telji að landshafnir eigi að koma, vil ég því til svara, að ég set númer eitt Höfn í Hornafirði, annaðhvort sem landshöfn eða þá, að séð verði um með öðrum hætti, að fiskútflutningshöfn geti vaxið þar fljótlega upp.“

Að lokum má benda á, að það sjónarmið er líka uppi, að þeir aðilar úr þremur sýslum, sem stunda þarna útgerð, hafi allir jafnréttisaðstöðu, þannig að það sé ríkisfyrirtæki, sem þeir semja við um þá aðstöðu, sem þeim er þar látin í té.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri við þessa umr. málsins, m. a. vegna þess, að öllum hv. þm. er málið meira og minna ljóst, en ég tel eðlilegt, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til sjútvn., og vil ég um leið og ég legg það til mælast eindregið til þess, að sjútvn. sjái sér fært að afgreiða málið með nokkrum hraða, þar sem búast má við, að þinghald geti nú óðum farið að styttast, til þess að sjá við því, að málið þurfi að daga uppi hér í þinginu.