01.03.1948
Efri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í C-deild Alþingistíðinda. (2815)

73. mál, bindindisstarfsemi

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Ég skal vekja athygli hv. síðasta ræðumanns á því bréfi, sem Stórstúkan sendi allshn. Ed. og er dagsett 19/11 1947 og er á þessa leið:

„Stórstúkan lýsir ánægju sinni yfir þeim skilningi, sem frv. virðist bera vott um, að góðtemplarareglunni sé nú mikil nauðsyn á allmiklu fé til þess fyrst og fremst að geta eignazt hæfilegt húsnæði í höfuðborginni fyrir starfsemi reglunnar og að ríkinu beri skylda til að gera reglunni þetta fjárhagslega kleift.

Jafnframt vill Stórstúkan taka fram, að eðlilegra hefði verið og í fyllra samræmi við óskir Stórstúkunnar, að ríkið veitti góðtemplarareglunni fé til húsbygginga og annarra framkvæmda reglunnar beint úr ríkissjóði, án þess að slík fjárframlög væru háð sölu Áfengisverzlunar ríkisins, eins og hún kann að verða á hverjum tíma.

En með því að sú leið hefur verið reynd án árangurs og frekari tilraunir virðast hæpnar, eins og sakir standa, en málið þolir hins vegar enga bið, treystir Stórstúkan því, að frv. verði vel tekið af Alþ., og mælir með samþykkt þess.“

Þetta er orðrétt tekið upp úr bréfi frá Stórstúku Íslands, þannig að Stórstúkan hefur mælt eindregið með samþykkt frv., sem ég hef borið hér fram.

Að öðru leyti vil ég ekkert vera að skattyrðast við þennan hv. þm. Ég veit betur en hann, hvað fyrir mér vakir með flutningi þessa frv. Ef hann telur það vera flutt af óheilindum og fláttskap, þá hann um það. Ég deili ekki um innræti mitt við hann.

Ég vil aðeins endurtaka ósk mína um, að brtt. verði teknar aftur til 3. umr. Ég veit, að bindindismönnum er sú leið, sem þar er stungið upp á, ógeðfelld. Þeim er ógeðfellt að taka við peningum þannig, að tekjur þeirra séu þannig bundnar við sölu áfengis eins og þar er stungið upp á. En hins vegar hafa þeir fallizt á það fyrirkomulag eins og gert er ráð fyrir í frv. vegna þess, að þar eiga þeir að fá þeim mun meira sem minna er drukkið. Varðandi það, að þeir eigi að græða á vínsölunni, þá er því til að svara, að ef engin vínsala væri, mundi engin bindindisstarfsemi þurfa að eiga sér stað. (HV: Og mundu bindindismenn sízt harma það). Já, ég veit, að þeir mundu sízt harma það. En vegna þess að víndrykkja er í landinu, er nauðsynlegt að halda uppi bindindisstarfsemi.

Ég sé ekki heldur, að öðru fé sé betur varið til þess að draga úr áfengisneyzlunni en að taka af þeim lúxusskatti, sem kallaður er áfengisgróði og er ekki sölugróði af áfengi, heldur stærsti eyðsluskattur, sem þekkist í landinu.