04.03.1948
Efri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í C-deild Alþingistíðinda. (2833)

73. mál, bindindisstarfsemi

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því, að það er misskilningur, sem kom fram — hjá hv. 8. landsk. þm. (ÁS), að eftir því, sem minna væri drukkið, mundu tekjurnar af þessu minnka. Eftir frv. mínu, eins og það var lagt fram, er þetta öruggur tekjustofn, það er séð fyrir þessu í frv. Þetta sýnir, að hv. 8. landsk. hefur alls ekki skilið meginatriði málsins, úr því að hann hreyfir þessari aths. á móti mínu máli. Það er einmitt séð fyrir því í þessu frv., að bindindismenn halda tekjum sínum til bindindisstarfsemi meðan verulegur drykkjuskapur er í landinu. Hitt er annað mál, að ef drykkjuskapur minnkar mjög, svo að hann hverfur nær alveg, þá er ekki ástæða til þess að halda uppi stórfelldri bindindisstarfsemi. Þá væri það óþarfi, því að þá væri sú breyt. komin á almenningsálitið í landinu í þessu efni, sem dygði til þess að hægt væri að snúa sér að öðrum verkefnum.

Ég vil halda því fram, að menn sýni hug sinn til þessa máls með því, hvort þeir fylgja málinu í hvaða formi sem er. Ef hv. þm. fara að vera á móti málinu, nema eitthvert tiltekið form sé á fjárveitingunni, þá sýna þeir sömu menn, að þeir hafa alls ekki áhuga á að ná því marki, sem ætlazt er til með frv. Ef þeir telja nauðsynlegt að útvega bindindisstarfseminni þetta framlag, sem þarna ræðir um, mundu þeir teygja sig ákaflega langt til þess að fylgja frv. í hvaða formi sem er. En auðvitað kemur það fram hjá hv. 8. landsk. þm., eins og hans flokki svo ákaflega oft, að þeir eru á móti málum, nema því aðeins að þeir geti lagt þar eitthvað til, sem þeir geti helgað sér sjálfum, vegna þess að, áhugi þeirra snýst ekki um málefni, heldur atkvæðaveiðar fyrir öfgakenningar sínar og ofstæki.

Það hefur verið talað hér um óbragð að styrk, sem veittur sé sem hundraðahluti af áfengisgróðanum, og að það þyrfti að hætta að láta ríkið taka tekjur sem gróða af áfengissölu. Þetta væri ákaflega skynsamlegt allt saman, ef líklegt væri, að með banni á sölu áfengis í landinu og þar með afnámi áfengisgróðans væri tryggt, að minna yrði drukkið í landinu. En sannleikurinn er, að reynslan frá bannárunum, bæði hér og annars staðar, sýnir að menn hafa ekki hætt að drekka þrátt fyrir bannið, heldur hefur drykkjuskapur við það fengið á sig enn þá ljótara og verra form en nokkru sinni áður. Þess vegna er það eina, sem dugar í þessum efnum, að skapa það almenningsálit, að menn fari þannig með vín, að það verði ekki til skaða og skammar. En bann verkar öfugt í þeim efnum.