10.12.1947
Efri deild: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í C-deild Alþingistíðinda. (2848)
104. mál, sölugjald af jörðum
Gísli Jónsson:
Ég skal ekki tefja þetta mál mikið. Frsm. (ÞÞ) sagði, að það væri óvenjulegt að þenja sig vítt og breitt við 1. umr. Hann er nú svo þingvanur maður, að hann hlýtur að vita, að 1. umr. stendur oft dögum saman, og hefur það gerzt eftir slíka umr., að málið hefur ekki komið frá n., sbr. búnaðarmálasjóðinn, sem menn þöndu sig yfir vítt og breitt, eftir að hafa þanið sig um hann á undanförnum þingum.
Um uppástungu mína um að ætla að senda þetta til annarrar n. er það að segja, að þetta er ekki af andúð á honum eða þeirri n., sem hann er form. í. Mér var það ljóst, að hann átti sæti, í þeirri n., sem ég stakk upp á og var þetta ekki gert til þess að hindra hans afskipti, af málinu.
Um fullyrðingu hans um það, að hann fylgdi málinu í hvorri n. sem það væri, vil ég segja það, að ég þekki hann að því að fylgja ekki nema þeim málum, sem eru til heilla fyrir þjóðina. Uppástunga mín um að láta málið í fjhn. er tilkomin af því, að þetta er fjárhagsmál, en ekki landbúnaðarmál. Hér er um að ræða að setja skatta á fasteignir og hús, og skulu þeir renna til sveitarfélaga. Hitt er annað atriði, að í landbn. geta verið menn, sem eru eins opnir fyrir þessu og aðrir, en málið á heima í fjhn. og hvergi annars staðar. Ég skal ekki segja, hvernig þetta fer í þessari d., en ég þykist vita, að í hinni d, ef það fer þá þangað, komi fram sterkar raddir um, að málið fari til fjhn., þeirrar d., enda hefur það oft komið fyrir, að mál væru sett í allt aðra n. í annarri d. en hinni.
Ég vil svo óska þess, að forseti beri till. mína upp. Ég var ekki að skipa hæstv. forseta að bera. till. upp, og er það ekki annað en taugaóstyrkur hjá hv. þm. Dal. (ÞÞ) að halda, að ég hafi verið að skipa. Þetta skattabrjálæði er farið að hafa svo mikil áhrif á hann, að hann er eins og bergnuminn og vakinn og sofinn í þessum skattamálum. Hér er ekki um annað að ræða en eignarán. Þetta er eins konar eignaupptaka.
Hv. þm. talaði um, að verið væri að forða jörðunum frá því að lenda í höndum braskaranna. Ég held að þm. sé farinn að hafa of mikið sambýli við einn vissan flokk manna. Hverjir hafa svo fengið þessa braskaranafnbót? Það eru athafnamennirnir í þjóðfélaginu. Þeir menn, sem mest hafa borið uppi atvinnulífið í landinu og mest greitt í ríkissjóðinn. Það væri ljótt, ef eitthvað af jörðunum lenti í höndum þessara manna. Ég skal benda á einn. Einn þessara manna, einn braskarinn, er Páll Stefánsson frá Þverá. Hefur nokkur jörð í Húnavatnssýslu verið betur setin en jörðin, sem hann keypti? Ég held, að engin jörð sé betur setin. Hér á þingi er það talin goðgá, ef einhver maður er milljónamæringur, og ef slíkur maður eignast jörð, þá á að skattleggja það. Ég veit ekki betur en að Vestmanneyingar hafi fengið leyfi til að leggja fasteignaskatt á hverja jörð. Hvers vegna má ekki gera það eins og að fara inn á eignarán það, sem hér er talað um?
Hv. þm. (ÞÞ) spurði, hvers vegna ég kæmi ekki með frv. um lóðaverð í Rvík. Ég hef komið hér með frv. til l. um breyt. á ábúðarl., þar sem ég lagði til, að breyt. yrðu gerðar á leigu, sem goldin væri í dún og sel. En hv. þm. Dal. (ÞÞ) setti sig á móti því, af því að hann sagði, að það væri á móti stjskr. Nú vill hann setja á 40% skattahækkun, en hann vildi ekki hjálpa þessum mönnum, þó að skattur þeirra yrði 10 sinnum meiri. Fyrir það, að þetta frv. var ekki samþ., er m. a. sú jörð, sem hann var eigandi að, farin í eyði. Það getur verið, að hún byggist aftur eftir að þetta frv. er komið í lög.
Ég tel svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en held fast við mína till.