07.02.1948
Efri deild: 54. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í C-deild Alþingistíðinda. (2860)

104. mál, sölugjald af jörðum

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Mig langar til að gera örstutta grein fyrir atkv. mínu um þetta mál, þó að ég sé nú ekki vanur því.

Ég fyrir mitt leyti vildi mjög gjarnan stuðla að því, að hægt væri að koma í veg fyrir, að jarðir séu í braski, sem kallað er, og eins það, að ábúendur jarða, sem hafa keypt þær, verði að gjalda fyrir þær geysihátt kaupverð, sem þeir fá ekki undir risið, sem oft hefur sýnt sig, að hefur átt sér stað. En ég verð að segja það eins og er, að ég hef takmarkaða trú S því, að þetta frv., sem hér liggur fyrir. geti orðið til þess að leysa þann vanda, og enn minni trú hef ég á því, að sú brtt., sem fyrir liggur um að hækka söluskattinn, yrði til þess. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta atriði, vegna þess að hv. 2. þm. Árn. (EE) benti alveg réttilega á ýmis ljón, sem þar eru á veginum. Ég er nefnilega ákaflega hræddur um það, ef farið væri að leggja mjög háan söluskatt á jarðir, sem seldar væru nokkuð margföldu verði fram yfir fasteignamat, að þá yrði framkvæmdin sú í fjöldamörgum tilfellum, að það yrði aðeins falsað verðið, jarðirnar yrðu taldar seldar lægra verði en í raun og veru ætti sér stað, eins og hv. 2. þm. Árn. var nú að víkja að. Ég man það frá því ég var oddviti, að í minni sveit átti einu sinni að selja jörð, sem gert var, því að bóndinn. sem var eigandi jarðarinnar, ætlaði að flytjast burt úr sveitinni, og þess vegna átti hreppurinn forkaupsrétt að þessari jörð. Hreppurinn hafði mikinn hug á að eignast jörðina, vegna þess að afréttarland lá að henni, en jörðin var að nafninu til keypt svo háu verði, að eftir þáverandi verðlagi náði það ekki nokkurri átt. Og það vissu allir í sveitinni og hreppsnefndin líka, að þetta var bara yfirvarp til að bola hreppnum frá, vegna þess að kaupandi og seljandi jarðarinnar voru kunningjar. Eins er ég hræddur um, að gæti farið, þó að aðferðin yrði að vísu öfug við það, sem þarna varð, þar sem talið var, að jörðin væri seld hærra verði en átti sér stað, en með söluskattinum er ég hræddur um, að jarðirnar yrðu taldar seldar lægra verði en ætti sér stað. Og svo er annað, og það er það, að í mörgum tilfellum mundi oft þessi söluskattur leggjast á kaupandann, sem auðvitað yrði þá hinn væntanlegi ábúandi jarðarinnar, og þess vegna beinlínis verið að hækka verðið fyrir hann. Þó að ég hafi því takmarkaða trú á gagnsemi þessa frv. og enn minni trú á því breyttu á þann veg, sem hér er lagt til, þá er samt sem áður með frv. sjálfu svo hóflega í sakirnar farið, — og auk þess er á það að líta, að frv. er komið frá stéttarsamtökum bænda, Búnaðarfélagi Íslands, og samið af mþn., sem búnaðarþing kaus, — að ég mun ekki af þeim ástæðum ganga á móti frv. sjálfu. En af þeim ástæðum, sem ég hef greint, mun ég greiða atkv. á móti þeirri brtt., sem hér liggur fyrir, en alls ekki sökum þess, að ég vilji ekki gjarnan koma í veg fyrir, að jarðir lendi í braski.

Ég vil fara allt aðra leið en hér er stungið upp á í þessum málum. Sú leið er að nokkru leyti lögfest, þótt lítið hafi verið um framkvæmdir. Ég álít, að það ætti að vera þannig um jarðir, að þegar jörð er seld án þess að tryggt sé, að hún fari í sjálfsábúð, þá ætti ríkið eða opinber stofnun að kaupa allar slíkar jarðir, og svo ætti sú stofnun jafnharðan að selja jarðirnar þeim, sem vildu búa a þeim, því að það er alveg óbifanleg sannfæring mín, að svo væri bezt komið málefnum landbúnaðarins að þessu leyti, að hver maður ætti þá jörð, sem hann býr á, eða a. m. k. sem allra flestir. Mér finnst, að síðustu ár hafi sýnt það, að það er sízt vænlegra til þrifa, að t. d. ríkið eigi jarðirnar og leigi þær einstaklingum en að þeir eigi þær sjálfir, og kemur þetta ekki í bága við það, sem ég sagði, að ég vildi helzt, að ríkið eða opinber stofnun keypti þær jarðir, sem annars mundu lenda í braski, en ég vil ekki, að þær séu keyptar af því opinbera til að eiga þær, heldur til að selja þær væntanlegum ábúanda. En að þetta frv. greiði fyrir sjálfsábúð í landinu. það efa ég, nema þá kannske í einstaka tilfellum, en þó virðist mér, að það mundi ekki verða til mikils tjóns í því efni, ef frv. er samþ. óbreytt, en sé farið að ganga lengra á þessari braut, þá veit ég ekki nema það mundi verka alveg þveröfugt við það, sem flm. væntanlega ætlast til, og verða til þess að greiða fyrir því að koma jörðunum í brask.