06.02.1948
Efri deild: 54. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í C-deild Alþingistíðinda. (2863)
104. mál, sölugjald af jörðum
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég hef ekki mikið um þetta mál að segja, því að hv. þm. Dal. (ÞÞ) svaraði að mestu leyti því, sem þurfti að svara.
Eftir þeim orðum, sem hv. þm. Barð. (GJ) sagði í sambandi við till. okkar, þá á hver maður, sem selur jörð, að greiða 60% af öllu söluverði. Hv. þm. Dal. lýsti yfir því hér, að hér væri um misskilning að ræða. Ég vil skýra þetta betur. Ef það er virkilega hans skilningur, að ætlazt sé til að greiða þetta af öllu söluverði, eins og mér skildist í ræðu hans, þá er það skakkt. Það eru 40%. sem á að greiða. Þá á maður, sem á jörð, sem metin er á 10 þús. kr., og selur á áttfalt fasteignarverð, sem samsvarar 80 þús. kr., að greiða eftir till. okkar 1. þm. N-M. 13500 kr.
Eins og ég tók fram í fyrri ræðu minni, þá vildi ég heldur fara aðra leið, sem n. hefur haft til athugunar. Ég hef einnig tekið það fram, að till. um, að allar jarðir yrðu seldar í gegnum hendur hins opinbera, gæti einnig komið til greina. Ég vil aðeins taka það fram, að fari svo, að frv. verði fellt, þá mun ég vera fús til að ræða um aðrar leiðir, m. a. þessa. sem 1. þm. Eyf. (BSt) talaði um.