13.02.1948
Efri deild: 61. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í C-deild Alþingistíðinda. (2933)
155. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég er í þeim meiri hl. heilbr.- og félmn., sem stendur að flutningi þessa frv., og get vel fallizt á þá ósk hv. 1. landsk. þm. (SÁÓ) að taka málið af dagskrá, en vil hins vegar láta það koma hér fram, að það var rætt við hæstv. forsrh. um þetta mál, áður en hann fór, og hafði hann ekkert við það að athuga, að málið yrði tekið fyrir, meðan hann yrði í burtu, en finnst hins vegar ekki nema eðlilegt, að forföll hæstv. forsrh. séu tekin til greina, þar sem hann er nú kominn til landsins og getur því verið hér í d. á næsta fundi.