16.02.1948
Efri deild: 62. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í C-deild Alþingistíðinda. (2938)

155. mál, húsaleiga

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Lengi fram eftir var það einkamál Íslendinga að byggja yfir sig hús og eiga og leigja öðrum. Það opinbera taldi sig þá ekki þurfa að hafa aðra eða meiri íhlutun um þau mál en aðstoð bankans með veðdeild til þess að lána út á byggingarnar.

Seinna meir komst Alþ. á þá skoðun, að þetta væri svo mikið nauðsynjamál fyrir almenning í landinu, að það þyrfti að veita aðra og meiri hjálp en fram að þessu hefði verið veitt af hálfu bankans, sem lengi framan af var mjög lítil. Þá var horfið að því að semja l. um verkamannabústaði. Þær framkvæmdir hafa svo fengið vaxandi fjárhagslega aðstoð frá Alþ. allt til þessa dags. Og þessi hjálp er nú svo mikil, að árlega leggur ríkissjóður fram stórar fjárhæðir til þess að standa undir því að byggja upp í bæjum og sveitum landsins.

Það verður ekki annað séð en að þetta spor hafi markazt aðallega af því, að löggjafarvaldið hafi álitið þetta svo mikið nauðsynjamál fyrir lífsafkomu fólksins og þess vegna hafi verið teknar þessar ákvarðanir.

Það vekur því furðu, að jafnhliða og þetta hefur verið gert, skuli vera ráðizt á þá aðila jafnóhæfilega og hefur verið gert með húsaleigul., sem tekið hafa að sér það hlutverk, sem Alþ. telur nú sjálfsagt, að ríkissjóður taki nú að sér, vegna afkomu fólksins í landinu. Og þetta er því einkennilegra, þegar hægt er að sýna hvar sem er, að þetta er eina stéttin í landinu, sem ráðizt hefur verið svona harkalega á. Þessi aðferð hefur verið svo róttæk, að það hefur ekki valdið neinum ágreiningi, þótt haldið hafi verið fram öðru, að þau ákvæði stríði á móti ákvæðum stjskr. Ég held líka, að ekki verði um það deilt, að ekki verði hægt að ganga nær því að brjóta stjskr. en gert hefur verið á þennan hátt. Og það er því undarlegra sem það er viðurkennt af hv. Alþ., að nauðsynlegt sé að neita stórkostlegar fjárhæðir til þess að auka húsnæði og byggja yfir fólkið í landinu.

Þegar húsaleigul. voru samin, þóttu slíkar ráðstafanir nauðsynlegar vegna hinna erlendu manna í landinu, sem nokkur hætta þótti á, að mundu taka húsnæði frá fólkinu í landinu. Nú er það vitað, að húsaleigul. komu aldrei alveg í veg fyrir, að húsnæði væri leigt til framandi manna, sem engin skylda var til. Annars vegar tóku þeir þetta húsnæði með valdi og hins vegar með samningum. Við þetta gátu húsaleigul. ekki ráðið. Þessi höft voru sett í því trausti, að annað væri ekki látið stíga í verði, hvorki landbúnaðarafurðir né vinnulaun í landinu.

Þegar litið er á það, að allar lokur hafa verið teknar frá í launagreiðslum til manna, hvort sem það eru embættismenn eða verkamenn, og allar tekjur hækka nema hjá þeim mönnum, sem hafa verið svo óheppnir að eiga húseignir, sem þeir leigja út, og hafa kannske ekki aðrar tekjur en þær, sem húsaleigan gefur þeim, þá sjá allir, hve ósanngjarnt er að halda niðri tekjum þeirra einna af öllum landsmönnum, enda hlýtur hver maður að sjá, að hér er ekki um neitt réttlætismál að ræða.

Ég sé ekki, hvernig hægt er að verja það að ekki megi hækka húsaleigu við ákveðna menn, sem búa í gömlum húsum, þegar þeirra tekjur hafa verið hækkaðar á nákvæmlega sama hátt og hinna, sem búa í öðrum húsum. Og þegar svo er komið, að mikill meiri hluti íbúðanna hér í Reykjavík eru nýjar, byggðar fyrir margfalt kostnaðarverð, og þegar búið er svo að skipta um leigjendur, þannig að ekki er nema 1/3 gömlu leigjendanna í gömlu húsunum, þá eru þurrkaðar út þær ástæður, sem fyrir því voru að halda niðri húsaleigu.

Ég vil þá koma nokkuð að því, sem hæstv. forsrh. sagði í sinni ræðu. Hann sagði, að hvorki hann né ríkisstj. væru tilbúin að leggja til að breyta húsaleigul. Og í því sambandi minntist hæstv. ráðh. á n., sem hafði skilað áliti sínu fyrir næstum einu ári. Það mun vera mjög merkilegt álit og vill hæstv. ráðh. senda heilbr.- og félmn. það og er ég þakklátur honum fyrir það að vilja senda n. þetta álit, því að ég hygg að það sé nauðsynlegt gagn varðandi málið hér á hv. Alþ. Ég vildi um leið spyrja hæstv. ráðh., hvort hann sæi sér ekki fært að senda n. þau gögn, sem komið hafa fram síðan, m. a. það allt, sem skrifstofustjóri í heilbr.- og félmrn. hefur samið um þetta og hans till., sem hann hefur gert. Allt, sem sagt hefur verið og gert viðkomandi þessu máli, væri til upplýsinga fyrir n., og vænti ég að hæstv. ráðh. láti n. það í té.

Hæstv. ráðh. upplýsti hér, að meiri hl. n., þeir Baldvin Jónsson og Egill Sigurgeirsson. hefði gert till. í málinu. Eftir þessar upplýsingar hæstv. ráðh. er ég alveg hissa á því. að ríkisstj. hefur ekki séð sér fært að byrja á framkvæmdum eftir till. n. Mér dettur ekki í hug að álíta, að þegar þessir þrír menn hafa lagt hér í svo mikla vinnu, að það hefði ekki verið rétt að taka þau atriði að minnsta kosti, sem n. var öll sammála um og framkvæma þau eftir þeirra till. Og ef þau atriði hefðu verið tekin til greina, þá hefði breytzt mikið til batnaðar í þessu máli. Til dæmis leggja þeir til í þessari n., að heimilt sé sveitarstjórnum að hafa fullt ráð yfir þessum málum, þannig að þeim sé gefið það vald að ráða því, hvort haldið sé áfram að framkvæma húsaleigul. eða ekki.

Ég tel, að skylt hefði verið fyrir ráðuneytið að leggja fyrir Alþ. í frumvarpsformi þessar till., hvort sem Alþ. hefði viljað fallast á að breyta l. þessum í heimildarl. fyrir hvern stað á landinu. Ef ekkert hefði verið gert annað en þetta, þá hefðu sennilega flest sveitarfélög nema Reykjavík verið búin að afmá þetta fyrirkomulag húsaleigunnar.

Ég hef séð ummæli frá bæjarstjóranum á Seyðisfirði um þetta mál. Hann telur þessi lög vera sérstaklega bölvun fyrir þann stað, og talar hann sjálfsagt ekki út frá sjónarmiði húseigenda, heldur frá sjónarmiði bæjarins í heild, þar sem hann talar sem bæjarstjóri um málið.

Ég álít, að það hafi verið rangt af ríkisstj. að hafa ekki borið fram frv. til l. um þá breyt. á þessum l. að gefa sveitarstj. heimild til þess að fella niður þessi l.

Nú vil ég vita, hvort hæstv. ráðh. vill ekki fallast á þá till., að skipuð verði hlutlaus n. til þess að athuga þessi mál og fara með þau, því að húsaleigun. er ekki hlutlaus í málinu. Í húsaleigun. eiga húseigendur ekki neinn fulltrúa. Svo langt er gengið í þessu, að húseigendur fengu ekki neinn fulltrúa í n. (SÁÓ: Þeir hafa þar fulltrúa.) Fasteignaeigendafélagið hefur þar ekki neinn fulltrúa. Ef þetta væri Sjómannafélag Reykjavíkur, þá býst ég við, að hv. þm. teldi það ekki fulltrúa sjómanna, þó að einhver nm. hefði komið á sjó einhvern tíma, ef hann væri ekki kosinn af sjómannastéttinni,

Það er talað um, að segja megi upp húsnæði vegna nánustu skyldmenna. Hvers vegna er þessu haldið í sömu skorðum og áður var. alveg þvert á móti því, sem meiri hl. n. lagði til, að leyfilegt sé að segja upp herbergjum og verzlunarherbergjum, en það má heldur ekki segja þeim upp samkvæmt húsaleigul. ? Nú er það þó vitað, að allan tímann hafa þeir menn, sem setið hafa í ónáð í húsum annarra manna í skjóli húsaleigul., margir hverjir leigt út frá sér fyrir margfalt hærri leigu en þeir greiða til húseigenda. Það hefur ekki verið hægt að koma lögum yfir þetta. Samt sem áður hefur ríkisstj. ekki viljað fara eftir till. mþn. um það að leyfa að segja upp húsnæði, til þess að þeir aðilar, sem óréttinum hafa verið beittir í mörg undanfarin ár, gætu eitthvað rétt sinn hag. En þótt ríkisstj. hafi ekki viljað láta neitt til sín taka í þessu viðkvæma máli, þá segir hæstv. forsrh., að það beri að stefna að því að afnema húsaleigul., en hann vill hins vegar ekki láta draga frá lokurnar nú og helzt ekki í einu lagi. En hvenær má þá vænta þess, að byrjað verði á því að draga frá fyrstu lokuna?

Það virðist bókstaflega ekki mega fara neitt eftir því, sem hér hefur verið lagt til. Það eru liðin nærri þrjú ár, síðan stríðinu lauk, án þess að nokkuð hafi verið linað á þessum l. Hvenær mega þessir aðilar vænta leiðréttingar, sem búa við þessi þrælal.? Ef það má ekki vera á þessu þingi, má þá mega vænta þess á síðari hluta ársins 1948? Ég sé enga ástæðu til þess að draga það svo lengi.

Ég tel heldur ekki neina nauðsyn að leita umsagnar bæjarráðs Reykjavíkur, sem yrði aðeins til þess að tefja málið, enda geri ég ráð fyrir, að bæjarráð hafi fengið þessar skýrslur. (Forsrh.: Nei.) Þá hefur hæstv. ráðh. ekki haft mikinn áhuga fyrir málinu, ef hann hefur ekki einu sinni látið þessa aðila fá að sjá þessar skýrslur, sem eru aðalgögn þessa máls. Ég get ekki skilið þetta öðruvísi en á þann hátt, að hér sé í fyrsta lagi andúð hæstv. ráðh. gegn því að hrófla nokkuð við málinu og í öðru lagi fullkomin hræðsla hjá hæstv. ráðh. um það, að hann geti ekki staðið á mótt því, og þess vegna vill hann bíða. En sannleikurinn er sá, að það er svo komið í þessum málum, að ríkisstj. getur ekki lengur staðið svona aðgerðalaus.

Þetta er eitt af þeim málum í bænum, sem mest er talað um sem réttlætismál, og er afar viðkvæmt mál. Og það verður engri ríkisstj. stætt á því til lengdar að standa á móti þeirri leiðréttingu. sem sjálfsögð er. (SÁÓ: Á að fella hana á þessu máli?) Ríkisstj. hefur fallið á minna máli heldur en þessu, sannarlega.

Ég skal ekki ræða frekar ummæli hæstv. ráðh. á þessu stigi málsins. Ég er honum sammála, að málið fari aftur til n. Það hefur ekki verið þrautrætt í n., sem ekki er von, því að minni hl. n. hefur ekki viljað ræða málið á þeim grundvelli, að hann vilji taka þátt í flutningi málsins. Ásaka ég minni hl. ekkert fyrir það, hann hefur sína afstöðu til málsins. Mér finnst eðlilegast, að málið fari nú til n., og þá sérstaklega eftir að þessi gögn koma fram. Það er ein af ástæðunum fyrir því, að málið er flutt nú, að þm. hafa aldrei fengið hin merkilegu gögn til þess að kynna sér þau. Ég get skilið það, að ekki hafi þótt heppilegt að birta þessi skjöl, en það hefði þá mátt útbýta þeim sem trúnaðarmáli til þm.

Hv. 3. landsk. taldi sig ekki geta eða vilja bera ábyrgð á því að breyta l. eða afnema þau. En er þá hv. 3. landsk. maður til þess að bera ábyrgð á því ranglæti, sem hér er framið? Það getur verið, að hann segi já við því. En sannleikurinn er sá, að það er enginn fær um að bera ábyrgð á slíku ranglæti.

Ég vil mótmæla því, sem hv. 3. landsk. þm. sagði, að enginn nm. í heilbr.- og félmn. vildi afnema 1. Ég vil benda honum á, að upplýst var af frsm., að hann vildi í raun og veru láta afnema l., þó að hann til samkomulags vildi ekki fara lengra en frv. gerir ráð fyrir. Ég hef fyrir löngu viljað láta afnema l., og ég tel það alveg óverjandi að hafa þau eins og þau eru nú. Þetta er aðeins samkomulagsleið til þess að geta brúað bilið á milli þeirra, sem segja að húsaleigul. séu nauðsynleg, til þess að vísitalan stigi ekki upp úr öllu valdi, og hinna, sem telja þau aðeins til ills.

Eftir okkar till. á húsaleiga að vera undir eftirliti í landinu. En allir aðilar, sem um þessi mál hafa fjallað, eru sammála um það, að stefna beri að því að afnema l. En menn eru ekki sammála um, hvernig beri að haga þeim. Við viljum stíga sporið þannig að láta menn fá umráð yfir eignum sínum, en láta þetta samt vera undir verðlagseftirliti.

Hvað ætli hefði verið sagt, ef bannað hefði verið að hækka flutningsgjöld, t. d. hjá Eimskip með þeim skipum, sem það félag átti fyrir stríð? Hvers vegna tók ekki ríkið öll þessi hús til þess að vera eitthvað nær stjórnarskránni heldur en hún er með framkvæmd húsaleigul. og skilaði þeim svo aftur eftir stríð, eins og t. d. Bretar hafa gert? Það hefði verið nær. En í stað þess er mönnum bannað að taka aukagjald til þess að halda við húsunum. Og húsaleigan er byggð upp á því, að teknar eru skýrslur um það, hvað húseigendur sjálfir hafa greitt í viðhald á þessu tímabili, en vegna þess að margir leigjendur sáu, að húseigendur gátu ekki gert við hús sín, hafa þeir orðið að gera það sjálfir. Ef húseigendur hefðu haldið við húsum sínum, eins og þeir gerðu fyrir stríð, þá væri sú vísitala nú ekki 140 stig, heldur eins og byggingarvísitalan 600 stig.

Ég held, að ekki sé hægt að benda á nein fantabrögð, sem menn hafi verið beittir, er jafnist á við þau, sem felast í húsaleigul. og eru látin koma niður á þeim mönnum, sem tekið hafa að sér að fullnægja þeim skyldum að byggja yfir fólkið í landinu.

Ég vænti nú, að þessi hv. d. sýni nú fullan skilning á þessu máli og samþykki þá minnstu kröfu, sem hægt er að bera fram, þá breyt. á 1., sem felst í því frv., sem hér liggur fyrir.