20.02.1948
Efri deild: 66. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í C-deild Alþingistíðinda. (2949)
155. mál, húsaleiga
Gísli Jónsson:
Ég vil fyrst og fremst þakka hæstv. fors.- og félmrh. fyrir að hafa tekið þátt í umr. hér, því að margt af því, sem komið hefur fram í hans ræðu, eru upplýsingar um málið. En þrátt fyrir andstöðu, sem hann hefur sýnt málinu, veit ég, að hann vil láta upplýsa málið. Og það, sem fram hefur komið í málinu, hefur sannfært mig enn betur um, að það beri að afnema húsaleigul. Hæstv. ráðh. sagði, að það væri ekki alveg víst, að ríkisstj. teldi sjálfsagt að leggja fram fyrir Alþ. till. mþn. í máli, sem ríkisstj. hefur þó talið það mikils vert, að hún hefur talið þurfa að skipa mþn. í. En það er óneitanlega ákaflega einkennilegt, þegar mþn. er sett í svona alvarlegt mál eins og þetta er og n. er sammála um ákveðna hluti, að þá skuli samt sem áður viðkomandi ríkisstj. ekki vilja líta á þá hlið málsins, sem mþn. er sammála um. Og þegar athugaður er gangur þessa máls, þá er hann sá, að meiri hl. þessarar mþn. hefur fallizt á að rýmka svo mikið um ákvæði húsaleigul., að skrifstofustjóri í félmrn. hefur lagt fram till., sem ráðh. hefur ekki sent n. til athugunar, till., sem að vísu ganga á móti hans persónulegu skoðun í málinu. En þessi hæstv. ráðh. hefur beitt því valdi, sem hann hefur sem ráðh., á þann hátt að neita að láta þessi gögn koma fram. Hann hefur sent þessi gögn til húsaleigun. Og þessar till. eru lagðar fyrir fasteignaeigendafél. En þegar húsaleigun. er búin að starfa nokkurn tíma að því að koma fram vilja ráðuneytisins í þessu máli, þá eru laun nm. tvöfölduð án nokkurrar heimildar. (Forsrh.: Ég hef engum launakjörum breytt í n.). Og það hefur engin leið verið þrátt fyrir till. í fjvn. og þrátt fyrir það, að hæstv. félmrh. samþykkti það, það hefur þrátt fyrir þetta engin leið verið til þess að lækka þennan kostnað, kostnaðinn af því að þeir, sem í þessari n. eru. standa með hæstv. ráðh. í þessu máli. — Í bréfi því, sem félmrn. skrifaði húsaleigun. í Reykjavík og Fasteignaeigendafélagi Reykjavíkur, er spurt: „Álítið þér rétt að afnema 1. gr. núgildandi húsaleigulaga og breyta lögunum að öðru leyti í samræmi við það?“ Svar húsaleigun. við þessu er: „Nefndin telur ekki tímabært að afnema 1. gr. húsaleigulaganna.“ Þetta er dómur þeirrar n., og engin grg. fylgdi. Það er ekki svo lítil undirstaða undir þessum hæstaréttardómi hér! — Svo kemur hér önnur spurning frá ráðuneytinu: „Álítið þér rétt að gera lögin að heimildarlögum fyrir sveitarstjórnir og festa þá húsaleiguvísitöluna í heildarvísitölunni?“ — sem er till. mþn. Hvernig svarar húsaleigun.? Svona: „Nefndin telur það óheppilegt að leggja afnám húsaleigulaganna á vald einstakra bæjar- og sveitarstjórna á hverjum stað, m. a. með tilliti til 15. gr. laganna.“ (Þetta eru aðalrökin.) „Einkum telur nefndin óheppilegt að leggja kostnað af framkvæmd laganna á sveitarstjórnirnar, með því að það mundi gefa sveitarstjórnunum óeðlilega tilhneigingu til að afnema lögin.“ Það er nefnilega ekki alveg víst, að Reykjavíkurbær vildi borga húsaleigunefnd eins mikið og hún hefur fengið greitt fyrir sitt starf, Finnur Jónsson, fyrrv. félmrh., tvöfaldaði laun þeirra án nokkurrar heimildar. Og einmitt vegna kostnaðarins vill húsaleigun. ekki breyta l. í þessu efni, af því að þeir eru ekki alveg vissir um, að þeim verði greidd af Reykjavíkurbæ tvöföld laun. — Hvernig er svo 15. gr. húsaleigul., sem húsaleigun. vitnar í og telur, að með tilliti til ákvæða þeirrar gr. sé óheppilegt að leggja afnám húsaleigul. á vald einstakra bæjar- og sveitarfélaga? Hún er svo, fyrri hlutinn, með leyfi hæstv. forseta: „öll ákvæði þessara laga um íbúðarhúsnæði gilda og um leigu á húsum, bryggjum og pöllum til línuveiðabáta, sem róa úr landi.“ Þess vegna má ekki afnema húsaleigul. Það eru ákaflega mikli rök þetta í þessu máli! Það er m. ö. o.: Aðalrökin fyrir því, að ekki má leyfa sveitarfélögum að hafa heimild til þess að ráða sjálf um það, hvort afnumin skuli hjá þeim ákvæði húsaleigul., eru að dómi húsaleigun. Reykjavíkur þau, að það má ekki gera það vegna hafnarmannvirkja og báta, sem stunda línuveiðar frá ákveðnum stöðum. — Og hér er þriðja spurningin í bréfi ráðuneytisins: „Álítið þér rétt að slaka til á húsaleigulögunum og þá einkum hvað þessi atriði snertir:
a. að færa skilyrðin fyrir eignarrétti fram til 1. jan. 1946 eða 1. jan. 1947?
b. að rýmka um skyldmennaleigu (systkini)?
c. að sleppa einstaklingsherbergjum undan ákvæðum laganna?
d. að sleppa lausu atvinnuhúsnæði?“
— Hverju svarar húsaleigun. þessu? Þannig: „Nefndin telur ekki rétt að færa tímatakmarkið í 1. mgr. 1. gr. laganna fram, með því að allir þeir er keyptu hús eftir sept. 1941, vissu eða áttu að vita um þessi ákvæði.“ — Sér er nú hver greinargerðin fyrir þessum hæstaréttardómi! ég verð bara að segja það. Þetta hefði ekki þótt ákaflega mikil grg., ef hún hefði komið frá þm. Barð. eða hv. 1. þm. N-M., að dómi hæstv. ráðh. — „b. c og d. Nefndin getur ekki fallizt á að mæla með þessum breytingum, með því að þær mundu hafa í för með sér fjölda uppsagna og útburðarmála gegn einstaklingum, fjölskyldum og fyrirtækjum, er lenda mundu í hinum megnustu vandræðum og í mörgum tilfellum verða hinu opinbera að byrði.“ En hvað er þá mætara að láta systkini viðkomandi húseigenda vera á hrakhólum þeim, sem þessi hæstiréttur er að tala um, að menn mundu verða á, ef slakað væri til á þessum l.? Það finnst þessum mönnum kannske aukaatriði í málinu. Hv. 1. landsk. þm. var að tala um, að hann yrði rekinn út eins og útigangshross. En honum er þá kannske sama um það, þó að nánustu skyldmenni húseigenda verði rekin út eins og útigangshross. — Ég skil ekki réttlætistilfinningu þeirra, sem vilja halda í þessi ákvæði. — Hæstv. félmrh. hefur marglýst því hér, að hann sé þess fýsandi, að húsaleigul. verði afnumin. Og hann hefur lýst hér yfir, að hann vildi láta vinna að því, að þetta yrði gert. Hann hefur tekið fram nál. mþn., þar sem tveir aðilar eru alveg sammála um mörg veigamikil atriði til bóta frá því ranglæti, sem nú á sér stað viðkomandi húsaleigul. og framkvæmd þeirra. Og þetta hefur þó ekki haft þau áhrif á hann, að hann vilji vinna að því markvisst, sem hann hefur lýst yfir, að hann vilji láta gera. Hann veit, að heilbr.- og félmn. hefur rætt við hann um þetta frv., áður en það var flutt. Og hann hefur lofað, að á þessu þingi skyldi verða flutt frv. um breyt. á húsaleigul. En reyndin er svo, að hann vill engar breyt. til bóta á þessum l. nú. Og það var ekki fyrr en vonlaust var um að fá nokkurt samkomulag við hann um þetta mál, að meiri hl. n. sá sig knúðan til þess að setja málið fram á þann hátt sem gert hefur verið. Svo álasar hann okkur fyrir að hafa ekki tekið upp ákvæði í frv., sem hann álítur, að hefðu verið til hins betra, svo sem ákvæði um stór íbúðaskatt. Við höfum ekki neitað samvinnu við hann. Ef hæstv. félmrh. álítur, að það mundi verða til bóta frá því ranglæti, sem nú er, að setja inn þetta ákvæði, þá erum við til viðtals um þetta. Ef hæstv. ráðh. álítur, að það mundi verða til bóta frá því ranglæti, sem nú er, að taka upp miðlun á húsnæði, þá skulum við ræða þetta mál við hann. En hann vill ekki ræða þetta mál. Hann hefur lýst yfir, að hann geti ekki verið með þessu máli í neinni mynd. Og hans flokksmenn hér í hv. d. hafa óskað þess og krafizt, að þetta frv. verði drepið strax við 1. umr. Þetta er sá fjandskapur, sem kemur fram frá hæstv. félmrh. og hans flokki gagnvart þessu máli. Nú skal ég viðurkenna,að hæstv. félmrh. óskaði ekki eftir þessu. En hv. 1. landsk. þm. óskaði mjög eindregið eftir því, að þetta viðkvæma og stóra mál fengi ekki einu sinni að athugast í n., heldur koldrepið við 1. umr. — til þess að líkindum, að ómögulegt verði að gefa út nál. né afla gagna, sem sýni, að það ástand, sem er í þessum efnum, getur ekki verið áfram í landinu. En ef hæstv. félmrh. vill bæta úr þessum málum — og ég efast ekki um, að hann vill gera það —, þá á hann að taka upp vinsamlega samvinnu við n. um það, hvernig hægt er að bæta úr í þessum efnum, því að það að segja: Ég vil gera þetta; — en gera það svo ekki, og segja: Það þarf að bæta hér úr, — en leggja svo ekkert, til til úrbóta, það er ekki sá háttur, sem hæstv. ráðh. sæmir. Ég held, að það verði alveg óhjákvæmilegt fyrir hæstv. ríkisstj. að taka einhverja jákvæða afstöðu til þessa stóra máls, áður en þingi lýkur. Og ég veit ekki, hvenær hún á að taka þá afstöðu, ef ekki einmitt nú, þegar málið er komið til umr. hér í þessari hv. d.
Hæstv. félmrh. sagði, að vafasamt væri að álykta svo, að það sama gilti um allan bæinn, sem kæmi fram við athugun, sem gerð hefði verið viðkomandi einstökum götum hér í bænum um flutning manna. Þetta má vera rétt. En ég vil spyrja um það í sambandi við þetta mál, af því að hæstv. ráðh. og hans flokkur telur þetta ekki sönnun: Hvaða réttlæti var í að hafa sex-mannanefndarálitið sem grundvöll fyrir ályktunum, þegar það var gert? Á hverju var útreikningurinn þá byggður? Ég veit ekki betur en að í sambandi við það væri byggt á 15 búreikningum, sem sumir hverjir voru þannig, að það var varla hægt að lesa úr þeim. Á þessum gögnum voru byggð ein hin allra víðtækustu og áhrifamestu l., sem gerð hafa verið á þessu landi. (Forsrh.: Ekki til sóma.) Hæstv. ráðh. segir, að ekki hafi það verið til sóma. En annað er enn minna til sóma og það fyrir þennan hæstv. ráðh., það að hafa þá ekki látið opinbera n. rannsaka þetta atriði, sem hann telur þessa athugun á nokkrum götum hér í bænum ekki gefa nægar upplýsingar um. Ef þetta atriði út af fyrir sig er nokkurt atriði í málinu, þá hefur .hæstv. ráðh. borið skylda til og fyrir löngu síðan að láta fara fram þessa rannsókn, úr því að hann véfengir gildi þessarar athugunar. — Nú vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Vill hann og hæstv. ríkisstj. í heild gera það að till. sinni að miðla allri húsaleigu með l.? Og ég vil mjög eindregið spyrja hæstv. ráðh., hvort hann vill breyta þessu frv. svo, að í það verði tekin ákvæði um að miðla húsaleigu. Ég er til samtals um allar till., sem miða að því að bæta úr því ranglæti, sem búið er að hafa í frammi í þessum efnum bæði af fyrrv. og núverandi hæstv. ríkisstj. nú í mörg ár. Það er þó ekki meira eð miðla húsaleigu heldur en að miðla verði á allri beitusíld. Fyrir áhrif vinstri flokkanna erum við komnir inn á það að láta ríkissjóð mæta tapi hér og tapi þar. Hvers vegna má þá ekki líka koma þessu á ríkissjóðinn? Og þá hefði draumur sumra manna rætzt, þegar verðmiðlun er komin á öllu í landinu og ríkissjóður ber allan hallann, ef um halla er að ræða. Að því er stefnt.
Svo sagði hæstv. félmrh.: Þetta frv. bætir ekki úr því misrétti, sem stöðugt er talað um. — Það getur verið. En bætir hið algera afskiptaleysi og framkvæmdaleysi hæstv. ráðh. þá úr þessu misrétti? Nei, það er sett algerlega dauð hönd hér yfir þessi mál. Bætir hún úr þessu misrétti? Ég segi nei. Ef hæstv. ráðh. vill sýna snefil af réttlæti í þessu máli, þá á hann að koma á móti þeim mönnum til viðtals, sem vilja breyta um til bóta í þessum efnum, það er ekki það rétta í afstöðu til málsins að segja: Ég er með málinu. — og gera svo ekki neitt í málinu. (SÁÓ: Á þetta að verða bylting?).— Það eru til fleiri byltingar en að fella sjómannasamninga. Ég kem að hv. 1. landsk. þm. seinna í sambandi við þetta mál.
Hæstv. ráðh. sagði, að meðan hann mæti vandann meira í sambandi við þessi mál heldur en óþægindi húseigendanna, þá væri hann á móti afnámi húsaleigul. Ég hef nú fengið harðan dóm frá hæstv. ráðh. um, að undirstöður undir málflutningi mínum séu ekki svo vel lagðar. En ég held, að hvorki ég né hann getum verið hæstaréttardómarar í þessu máli um það, hvort vandinn er þar meiri heldur en óþægindi eigenda húsanna. Kannske verður samkomulag um að afgreiða þetta mál með rökst. dagskrá um, að settur yrði upp dómstóll eins og húsaleigun.. þar sem annar aðilinn, sem er órétti beittur í þessum efnum, hefur engan fulltrúa. Ég hygg, að engin nefnd eða nefndir hafi verið settar af því opinbera, þar sem sá aðili sem árum saman er órétti beittur, á engan fulltrúa, nema í þessu eina máli. Í þessu má sá aðili sem mest líður, aldrei koma að vörn í máli sínu, hvað þá meir. Og það sýna langbezt m. a. dómar, sem fallið hafa út úr svona útburðarmálum. Það hefur t. d. verið sannað, að leigjandi hefur ekki borgað leigu í 5 mánuði og brotið samninginn. Það er og sannað, að leigjandi hefur tekið óleyfilega konu til sín í húsnæðið. Þetta er líka brot. Samt sem áður er úrskurðinum ekki hrundið og viðkomandi aðila er heimilað að búa áfram í íbúðinni, þrátt fyrir það að hann hafi þverbrotið samninginn. Á hverju er þetta byggt? Á því, að það er ekki hægt að sanna, að þessi kona hafi ekki neitt greitt, og að það er ekki sannað, að húseigandi hafi mótmælt því, að húsaleigan væri greidd af leigjandanum. Svona er farið með rétt þeirra manna, sem hafa tekið að sér það hlutverk að veita mönnum tækifæri til að geta haft þak yfir höfuðið. Kannske við getum komizt að samkomulagi um það að setja n. til þess að rannsaka, hvort er mikilvægara, ranglætið,sem húseigendurnir verða fyrir, eða hins vegar þörf hinna, sem húsnæðið nota, fyrir að hafa það. Allt er betra en afskiptaleysið, sem hæstv. ráðh. hefur sagt, að hann ætlaði að hafa í þessu máli. Slík yfirlýsing hæstv. ráðh., með tilliti til annars, sem hann hefur sagt, er ekkert annað en hrein viðurkenning á vesaldómi í svona stóru máli, að þora ekki að taka afstöðu til máls, sem er jafnstórt og viðkvæmt og þetta mál er, hafa öll gögn á borðinu og segja: Ég viðurkenni að þessi gögn eru rétt um, að það þarf að laga þetta, en ég hef ekki manndóm til þess að stíga nokkurt spor í þá átt, að þessum réttlætiskröfum verði mætt. Ég verð að segja, að réttlætistilfinning hæstv. ráðh. er hér nokkuð á reiki.
Og við skulum þá athuga afstöðu hæstv. ráðh. til dýrtíðarmálanna. Þegar rætt var um dýrtíðarmálið hér, þá komu fram mjög ákveðnar kröfur um það, að um leið og lækkuð væri vísitalan í landinu, þá væri kaupgjaldið bundið. Og sannleikurinn var, að ekkert vit var í neinu öðru. Hitt hefði ekki verið neitt annað en að slá þessu mikla máli á frest, enda er það komið á daginn, að menn hafa heimtað hækkandi laun, hvar sem þeir hafa getað komið því við. Og þessi hæstv. ráðh. vill ekki taka af launamönnum þennan rétt, sem þó eru sumir vel efnaðir menn. En hann vill ekki leyfa þeim, sem eiga húsnæði og hafa kannske ekki aðrar tekjur heldur en af því, að hafa þennan rétt að hækka sínar tekjur.
Hæstv. ráðh. segir, að hann óttist, að kjör alþýðu manna yrðu skert með því að slaka til um ákvæði húsaleigul. En ég sé ekki betur heldur en að hann sé, með því að standa á móti breyt. á húsaleigul., að skerða áfram stórkostlega rétt þeirra manna, sem kannske margir eru fátækustu þjóðfélagsþegnarnir, sem hafa tekjur af því að leigja út húsnæði. Það er upplýst, að það eru 300 húseigendur hér í þessum bæ, sem fá meira en helming af tekjum sínum sem greiðslu á húsaleigu. Hæstv. ráðh. hefur kannske ekki lesið það. (Forsrh.: Jú). Það er þá sannarlega hróplegt ásökunarvitni á hann, þar sem hann þó leyfir sér að tala eins og hann hefur talað hér í dag. — og í því efni er hann kannske með langmestu smælingjunum í þjóðfélaginu. Við skulum segja, að þessir húseigendur komist ekki yfir 5 þús. kr. tekjur á ári. Þá menn telur hæstv. ráðh. ekki ástæðu til að vernda. En hann telur ástæðu til að vernda þá menn, sem sitja á margföldum launum, kannske í húsum ekkna og munaðarleysingja, eins og hv. 1. landsk. þm., en honum er kannske sama um ekkjurnar og börnin. (SÁÓ: Ég er ófeiminn að ræða þetta mál.) Við skulum bara taka málið og ræða það niður í kjölinn. Ég er líka ófeiminn að ræða þetta mál. (SÁÓ: Ef hv. þm. Barð. ætlar að fara að draga mitt privatmál inn í þessar umr., þá skal ég líka fletta ofan af honum.) Það er eftir að fletta ofan af mörgu í þessu máli enn þá. [Frh.].