24.02.1948
Efri deild: 68. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í C-deild Alþingistíðinda. (2960)

155. mál, húsaleiga

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Hér er sá reginmismunur milli mín og hv. 1. landsk., að meðan hann virðist vilja fara eftir því, hvað aðrir segja honum, — húsaleigun. segir honum og hans kjósendur segja honum —, þá vil ég ævinlega fara eftir því, sem ég sjálfur tel rétt. Og það er líka sá reginmismunur milli okkar, að meðan ég vil grundvöll undir málunum og athuga hann sjálfur og mynda mér skoðun, þá vill hann taka ómelt orð annarra manna og gera að sínum. Af þessu kemur það, að þegar ég tala um mál, þá reyni ég að leiða í ljós. hvernig ástandið sé, en ekki hvernig aðrir segja, að ástandið sé. Ég hef sýnt, að húsnæði er yfirleitt rýmra en það var. Ég hef skýrt frá dæmum um ósamkomulag milli leigjenda og húseigenda og sýnt, að það er skapað af húsaleigul. En það er sagt af hv. síðasta ræðumanni, að við ætlum að leysa þetta ósamkomulag einungis með hag húseigenda fyrir augum. Þetta er ekki rétt. Það er hagur beggja að losna við að búa saman í ósamlyndi og illindum. Ég hef bent á, að samkv. rannsóknum væru 2/5 af íbúðunum í sama húsnæði og 1939, en það liggur ekki fyrir, hve margir af þeim eru leigjendur og hve margir eigendur. Ég sagði, að þessar tölur væri ekki hægt að sanna og væri hér aðeins um stikkprufu að ræða, en ég hef einnig bent á, að 4/11 íbúanna hafa skipt um húsnæði frá því árið 1940. Þessa tölu er ekki hægt að véfengja, því að hún er samkv. opinberum skýrslum. Á þessu vil ég byggja álit mitt, en ekki á því, sem Pétur og Páll segja mér. Afstaða mín markast af því, hve fáir eru í sama húsnæði og árið 1940, og af því, að ósamkomulag er milli eigenda og leigjenda. Þetta eru undirstöðuatriði, þegar menn vilja skapa sér skoðun á því, hvernig laga skuli húsnæðisvandamálin. Ég tel enn fremur mikið húsnæði ónotað í bænum vegna ákvæða l. og tel lykilinn að því húsnæði fyrst lausan, ef frv. verður samþ. Hv. 1. landsk. segir þetta ósatt og ber fyrir sig umsögn húsaleigun., en meðan hann er að lesa umsögn n., er ég að lesa Vísi, og þar eru hvorki fleiri né færri en 5 auglýsingar um laust húsnæði. Ég veit ekki, hvernig húsaleigun. kemst að sinni niðurstöðu, þegar 5 auglýsingar um laust húsnæði eru í Vísi á einum degi. Nei, það er fjöldi ónotaðra íbúða í bænum vegna l., því að menn óttast að losna aldrei við leigjendurna, ef þeim er hleypt inn í húsnæðið. Menn óttast þetta ekki að ástæðulausu, því að nýlega er fallinn hæstaréttardómur um eitt slíkt tilfelli. Jón Jóhannsson hafði lofað og skuldbundið sig með samningi til að flytja úr leigðu húsnæði 14. maí s. l. Hann gerir það ekki, og málið kemur fyrir hæstarétt, og hæstiréttur segir, að hann eigi ekki að fara, þótt hann hafi verið samningsbundinn til þess, af því að samningurinn hafi verið honum óhagstæður. Samkv. 31. gr. l. nr. 7 frá 1936 eigi hann því að vera kyrr í húsnæðinu. Það er því ekki að undra, þótt húsnæði sé haldið ónotuðu, þegar ástandið er svona, en þetta ónotaða húsnæði vil ég fá laust og samhliða vil ég útrýma illindum milli húseigenda og leigjenda. Hitt skal ég viðurkenna, að húsnæði í leiguíbúðum, sem eru undir l., mundi eitthvað hækka, en jafnframt hyrfu aukagreiðslurnar og svarti markaðurinn, sem annað húsnæði er selt á, þannig að meðalhúsaleigan í bænum mundi lækka. Þá gæti einnig orðið óhægra að framkvæma bannið við hækkun húsaleigunnar. Hitt kemur svo til mála í sambandi við þetta vandamál, það, sem hæstv. forsrh. var einu sinni á og Jónas Guðmundsson lagði til við hann, að gefa allt húsnæði frjálst í þeim húsum, þar sem eigandinn byggi líka. Það getur verið millibilsástand og kannske einnig það, sem hæstv. forsrh. var einnig á um tíma, að setja bæri inn í l. það ákvæði, að 14. maí 1949 féllu l. úr gildi. Þetta hvort tveggja verður n. að athuga. Ég lofaði forseta að vera stuttorður og skal því láta máli mínu lokið.