08.03.1948
Efri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í C-deild Alþingistíðinda. (2965)

155. mál, húsaleiga

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Í umr. um húsaleigu fékk ég leyfi hæstv. forseta til þess að hverfa af fundi af sérstökum ástæðum. Ég sé, að á meðan ég var fjarverandi, hefur hv. 1. landsk. haft yfir eftirfarandi ummæli, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég hef setið hér bráðum 21 þing og hef átt í orðasennu við menn úr öllum flokkum og stundum hörðum, en ég minnist þess ekki, að menn hafi verið bornir ærumeiðandi sökum, og minnist þess heldur ekki að hafa heyrt það annarra í milli. Ég hef nú orðið fyrir því af þm. að vera borinn ærumeiðandi sökum. Það eru rök, sem hann hafði í þessu máli. Í skjóli þinghelginnar hefur þetta verið leyft. Hann er hér ekki viðstaddur. En þegar hann má mál mitt heyra, mun ég skora á hann að endurtaka þau ummæli, sem hann hafði gegn mér, utan þinghelginnar, því að það er sá eini vettvangur, sem ég hef til þess að stefna honum fyrir lög og dóm. Ég hef líka annan rétt, og það er að fá leyfi hv. d. til þess að krefja þm. ábyrgðar. Ég veit ekki, hvort það hefur nokkru sinni áður verið leyft. Það mun hafa verið leyft einu sinni, en það leyfi var ekki notað. Ég ætla því ekki að gera d. erfiðleika með því að fara fram á þetta. Ég mun ekki heldur leggja mér í munn slík ummæli sem aðrir hv. þm. hafa látið sér sæma að viðhafa um mig. Þeir um það. Að öðru leyti mun ég ekki svara þessum þm. frekar í þessu máli.“

Það er ekki vegna þessara ummæla hv. þm., heldur vegna ummæla forseta, sem ég hreyfi þessu utan dagskrár, þar sem forseti segir:

„Út af orðum hv. 1. landsk. (SÁÓ) vil ég minna hann á og aðra hv. dm., sem viðstaddir voru umrætt tækifæri. að ég hringdi — og það allrækilega —, þegar þessi ummæli voru höfð í frammi.“

Hvað á hæstv. forseti við með þessu? Telur hann, að ég hafi í þessari ræðu minni haft ærumeiðandi ummæli í frammi? Ef svo er, óska ég að hæstv. forseti undirstriki það í ræðu, eða gefi um það yfirlýsingu af forsetastóli.

Ég hef farið yfir ræðuna. Og ég hef engin afskipti haft af því, hvernig þessi ræða væri skrifuð, og ég finn ekki það, sem þessi hv. þm. og hæstv. forseti víkja að hér að ástæðulausu.