23.03.1948
Efri deild: 86. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 701 í C-deild Alþingistíðinda. (2972)
155. mál, húsaleiga
Forseti (BSt):
Ég verð nú að hryggja hv. þm. Barð. með því, að ég býst ekki við því,að ég sjái mér fært að taka þetta mál fyrir eins og nú er komið, þegar þinglausnir eru ákveðnar á morgun og því algerlega óhugsandi, að það gæti orðið til annarra en tefja hér tíma. Ég hef tekið þetta mál nokkrum sinnum á dagskrá síðan þann dag, sem hv. þm. nefndi, þó að það hafi ekki komizt að vegna annarra mála, sem lögð hefur verið mest áherzla á — flest þeirra — af hæstv. ríkisstj., eða voru komin það langt áleiðis, að fullnaðarafgreiðsla þeirra var eygjanleg. Ég er, mér þess ekki meðvitandi, að ég hafi viljað beita forsetavaldi til að tefja nokkurt mál. (GJ: Ég hef ekki heldur haldið því fram.) En ég er sannfærður um, að þetta frv. um húsaleigu hefði ekki orðið að l., þó að einhverjum tíma d. hefði verið varið til að ræða það.