26.11.1947
Sameinað þing: 25. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (3003)

77. mál, Slippfélagið í Reykjavík

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil aðeins í sambandi við aths. hv. þm. Ísaf. leyfa mér að upplýsa það, að þetta var nokkuð rætt í fjvn. undir meðferð málsins, og ég vil alveg sérstaklega, að það komi skýrt fram, að málið er ekki afgr. frá n. vegna þess, að nýbyggingarráð hafði lofað þessu, heldur vegna þeirrar miklu nauðsynjar, sem er fyrir því, að þetta mannvirki komist upp. Það kann vel að vera, eins og hv. þm. benti á, að aðrar óskir komi sambærilegar, og þá verður hv. Alþ. og fjvn. að taka í hverju einstöku tilfelli tillit til þess, hve mikla nauðsyn þar er um að ræða.