05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (3071)
35. mál, hlutafélög, verzlunarskrár, firmu og prókúruumboð
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Í þessari till. felst það, að Alþ. skori á ríkisstj. að láta endurskoða tvo lagabálka, í fyrsta lagi lög um hlutafélög og í öðru lagi lög um verzlunarskrár, firmu og prókúruumboð. Allir, sem þekkja til þessara laga og hafa með þau að gera, sjá, að þau eru orðin úrelt, enda hvor tveggja lögin frumsmíð á sínum tíma. Það er því eðlilegt, að þessir lagabálkar, sem orðnir eru milli 25 og 40 ára gamlir, séu orðnir úreltir og þurfi endurskoðunar við. Síðan við settum okkar hlutafélagalög, sem sniðin voru eftir dönsku hlutafélagalögunum, hafa Danir sett ný lög um þetta efni, enn fremur Norðmenn, Svíar og Þjóðverjar og nú síðast Bretar í fyrra eða á þessu ári, og voru þó brezku hlutafélagalögin aðeins 10 ára gömul. Það er brýn nauðsyn, að við endurskoðum löggjöf okkar í félagarétti með vissu árabili með tilliti til hinna ýmsu breytinga, sem verða á hinni almennu löggjöf. Milli slíkrar endurskoðunar mætti ekki líða lengri tími en 8 til 10 ár, enda telja flestir lögfræðingar brýna nauðsyn þess, að endurskoðun á nefndum lögum fari nú fram. Ég flutti sams konar till. í fyrra, en svo seint, að hún náði ekki afgreiðslu. Ég óska svo að lokum, að till. fari til allshn. og vænti góðs stuðnings hennar og svo allra hv. þingmanna.