05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (3074)

35. mál, hlutafélög, verzlunarskrár, firmu og prókúruumboð

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég hefði nú reyndar ekki óskað eftir tveggja tíma ræðu hjá hv. 4. þm. Reykv. um þetta mál, en æskilegt væri, að þegar á þessu stigi, þegar stuðlað er að endurskoðun laganna, þá kæmi eitthvað það fram, sem sýndi, að nauðsyn bæri til slíkrar endurskoðunar, og þyrfti ekki langa ræðu til að nefna einhver dæmi því til rökstuðnings. Ég get hins vegar búizt við, að ýmis atriði þurfi endurskoðunar við, og tók ég það fram í fyrri ræðu minni, að ég mótmælti því ekki, en það þarf að koma fram hér á Alþingi, hvaða atriði laganna eigi að endurskoða og hvað eigi að leiðrétta.