19.11.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í D-deild Alþingistíðinda. (3112)
39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Viðvíkjandi ummælum hv. þm. Barð. um það, að afstaða mín til þessa máls hafi breytzt síðan í fyrra, vil ég segja þetta: Ég tel, að ástandið í fyrra, þegar till. hans var til umr., hafi verið nokkuð annað en það er nú, og ég tel það rétt, sem ég sagði þá, að það var ekki á þeim tíma ástæða til að kvarta sérstaklega yfir meðferð gjaldeyrisyfirvaldanna á námsmönnum erlendis. Ég held, að á stríðsárunum hafi verið vel gert við þá, eins og sjálfsagt og eðlilegt var. Þegar till. hv. þm. kom fram, steðjuðu ekki gjaldeyriserfiðleikar að. Ég kynnti mér þá þetta mál, og mér fannst niðurstaðan af þeim athugunum benda til þess, að ekki væri sérstök ástæða til að fara fram á það, við ríkisstj., að hún skærist sérstaklega í málið. Hitt kann vel að vera, að einstökum umsóknum hafi ekki verið gerð þau skil, sem umsækjendur hefðu óskað, en mér fannst á því stigi málsins ekki ástæða til fyrir Alþ. að skerast í málið. Síðan hafa gjaldeyrisörðugleikarnir aukizt mjög mikið, sem kunnugt er, og þeir hafa verið svo miklir hjá mönnum, sem stundað hafa nám í gagnlegum fræðum erlendis, að nú er full ástæða til þess fyrir Alþ. að koma fastari skipan á þessi mál en verið hefur undanfarið, og þess vegna er það, sem ég hef borið þessa till. fram.
Í tilefni af því, sem hæstv. menntmrh. sagði, að hann teldi ekki ástæðu til að skipa nýja n., sem væri ráðgefandi viðskiptan., þar sem menntamálaráð gæti verið hennar ráðgjafi, vil ég taka þetta fram: Ég tel vafasamt, þó að ég beri fullt traust til menntamálaráðs, að menntamálaráð geti verið gjaldeyrisyfirvöldunum sá leiðbeinandi, sem þau þurfa á að halda. Menntamálaráð er skipað mönnum, sem gegna öðrum þýðingarmiklum störfum og koma mjög sjaldan saman til fundar og þekkja ekki hag annarra manna en þeirra, sem þeir styrkja, og það er lítill hópur þeirra manna, sem stunda nám erlendis. Og ef menntamálaráð á að setja sig inn í hag allra námsmanna, sem stunda nám erlendis, þá veit ég ekki, hvort hægt er að ætlast til, að allt menntamálaráð taki á sig slíkar eftirgrennslanir, og þess vegna er það, að ég sting upp á þriggja manna n. og ólaunaðri, sem ég legg sérstaka áherzlu á, sem menntamálaráð hafi fulltrúa í, háskólaráð hafi þar einn fulltrúa og stúdentaskólar einn fulltrúa.
Ég minnist þess, að ég las flokksblað hæstv. menntmrh. fyrir nokkrum dögum, þar sem nokkrar hnútur voru sendar til þess atriðis, að hér væri verið að leggja til að stofna eina n. enn. Væri nóg komið af þeim og það sæti ekki á mér að mæla nefndafarganinu bót, þar sem ég teldi mig í hópi þeirra, sem gera vildu gangskör að því að fækka þessum n., sérstaklega vegna þess, að þetta fyrirkomulag væri óeðlilega dýrt. En hér er einmitt gert ráð fyrir, að þessi n. sé ólaunuð og þess vegna komi enginn aukakostnaður á ríkissjóð.
Svo er annað atriði í sambandi við það, að menntamálaráð sé ekki verulega vel fallið til að vera réttur umsagnaraðili í þessum efnum. Það mætti vel til þess koma, að umsagnir þess yrðu tortryggðar af hálfu þeirra námsmanna, sem menntamálaráð styrkir ekki og fylgist því ekki sérstaklega með. Er þá eðlilegt, að sú skoðun kæmi fram meðal námsmanna, að menntamálaráð héldi sérstaklega fram þeim námsmönnum, sem það hefði styrkt. sem eins og ég sagði, eru ekki nema lítill hluti þeirra námsmanna, sem stunda nám erlendis. Ef menntamálaráð ætti að hafa á hendi úthlutun slíkra styrkja og einnig umsögn um gjaldeyrisveitingar nemenda, þá gæti það orðið til þess að skapa nokkra tortryggni um það, að þeir, sem menntamálaráð styrkti, nytu nokkurra forréttinda í þessum efnum. Það er af þessum sökum, en ekki af því, að ég treysti ekki menntamálaráði, að ég tel æskilegt að haga þessum málum á þann hátt, sem ég legg til. Og ég legg sérstaka áherzlu á það, að þessi skipun, sem ég legg til, yrði engin aukning á nefndafarganinu, þar sem gert er ráð fyrir, að hér sé um sjálfboðastarf að ræða, sem hefur engan kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.