20.12.1947
Sameinað þing: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í D-deild Alþingistíðinda. (3118)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson) :

Herra forseti. Ég get að mestu leyti vitnað til nál., sem prentað er á þskj. 240. Allshn. hafði þessa þáltill. á þskj. 45 til meðferðar og hefur fallizt á að mæla með því, að hún verði samþ. með þeirri breyt., sem n. leggur til, að gerð verði á till., og er að finna á þskj. 240. — Viðvíkjandi þeirri brtt., sem hv. þm. Barð. ber fram á þskj. 98, er það að segja, að atriði hennar munu vera tekin inn í brtt. n., nema aðeins það atriði, að greidd sé sérstök greiðsla í þessum mánuði til námsmanna. Það hefur ekki verið tekið inn í þessar brtt. n. Ekki ber það þó að skilja svo, að af hálfu n. mundi það vera átalið, þó að greidd væri nokkur slík upphæð til námsmanna, síður en svo. En okkur þótti ekki rétt að farið að binda þetta í slíkri samþykkt, heldur mundi þá hæstv. ríkisstj. hlutast til um, að þessar greiðslur færu fram til þeirra námsmanna., sem hefðu mesta þörfina fyrir þessar greiðslur. N. hafði ætlað sér að fá sem gleggstar upplýsingar um það, hvað þessu liði, og sendi till. í því skyni til viðskiptan. til þess að fá málið betur upplýst. En því miður bar það ekki árangur. Allshn. fékk svar með bréfi frá viðskiptanefnd, en það bréf upplýsti ekkert um það, hvernig háttað hefur verið greiðslum til námsmanna, þannig að við í allshn. vorum jafnnær, þrátt fyrir þetta bréf. Ég átti svo tal við hv. form. fjárhagsráðs, og tjáði hann mér, að ráðið hefði ákveðið heildarupphæð, sem verja skyldi til námsmanna erlendis. En vitaskuld, ef það sýndi sig, að hún ekki nægði, mundi fjárhagsráð hliðra þar til. Það skildist mér af ummælum, sem hann hafði við mig í sambandi við þetta mál.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara nánar út í málið. Ég vænti. að hv. þm. geti gert sér glögga grein fyrir málinu, þó að ég hafi ekki lengri framsöguræðu fyrir því.