20.12.1947
Sameinað þing: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (3123)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil þakka n. fyrir að hafa athugað þetta mál. Það er mjög aðkallandi að fá það afgr. hér. Mér þykir þó lakara, að n. skyldi ekki hafa birt það bréf, sem kom frá viðskiptan., því að það hefði getað upplýst eitthvað í þessu máli, hvernig ástandið er. Sannleikurinn er sá, að form. viðskiptan. hefur ekki viljað hafa neina samvinnu við Alþ. í þessu máli, taldi sig bæran að ráða því einn og ekki þurfa að tala við þing, kóng eða forseta um gerðir sínar, og það er ástæðan til, að svo er komið sem komið er. Það er því ekki ófyrirsynju, að þessi till. er fram komin, og get ég vel sætt mig við till. eins og hún er. Ég hefði þó talið betra að segja „í samráði við menntamálaráð“ en að segja, að því sé falið að veita umsögn. Sé þetta lagað í meðförunum og hafi menntamálaráð vilja á að hjálpa hér til, þá er enginn vafi, að till. verður mjög til bóta.

Ég sé, að n. hefur ekki tekið upp 4. lið brtt. minnar, að láta námsmönnum, sem nú eru erlendis, í té aukagjaldeyrisleyfi fyrir desember. Hins vegar leggur hún til, að leyfð verði nokkru ríflegri yfirfærsla, ef sérstök nauðsyn er fyrir hendi, og vil ég þakka n. fyrir þá till., og það er áreiðanlega sérstök nauðsyn fyrir hendi í desember, og vona ég, að viðskiptaráð geri ráðstafanir til, að svo verði gert.

Ég mun því greiða atkv. með till. eins og húm er og vænti, að hún bæti úr því ófremdarástandi, sem verið hefur í þessum efnum, svo að það er til hreinnar smánar.