20.12.1947
Sameinað þing: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (3128)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Finnur Jónsson:

Ég man ekki eftir, að það standi í þingsköpum, að aðrar reglur gildi um þingfrestunarfund en aðra fundi. Ég ætla mér ekki að tefja framgang þessa máls, en ég kann betur við, að forseti fari með rétt mál, eins og ákveðið er í þingsköpum. Mér þætti gott að fá að vita, ef ég hef misskilið þingsköp.