24.03.1948
Sameinað þing: 62. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (3191)
185. mál, skipting innflutnings- og gjaldeyrisleyfa milli landshluta
Frsm. (Jón Sigurðsson) :
Herra forseti. Þetta mál er komið til n. ekki alls fyrir löngu og hefur verið athugað á allmörgum fundum n. N. hefur kvatt á sinn fund form. fjárhagsráðs, og enn fremur hefur hæstv. viðskmrh. frætt n. Eftir að nm. höfðu kynnt sér viðhorf þessara aðila og svo rætt málið ýtarlega sín á milli, þá kom í ljós, að þeir voru allir sammála um, að stefna bæri að því, að sú skipun kæmist á, er væri sem næst því, sem till. gerir ráð fyrir. Um hitt vildi svo verða nokkur ágreiningur. hvernig orða skyldi till., svo að menn gætu fellt sig við hana og að öruggt þætti, að hún færi ekki í bága við ákvæði gjaldeyrisl. Að síðustu varð þó samkomulag um að breyta 1. málsgr. svo sem hér er lagt til, og gerðum við það með það fyrir augum að geta fengið samkomulag um málið. Það er mín skoðun, að með þessu orðalagi, sem hér er lagt til, sé engu síður tryggt, að heppileg dreifing takist, en með því fyrra, en á hinn bóginn síður hætta á, að till. stangist á við gjaldeyrisl., en á því töldu sumir nokkra hættu.
Ég vænti svo, að eins og n. gat orðið sammála um málið, þá geti Alþ. eins fallizt á að samþ. það í þessu formi.