24.03.1948
Sameinað þing: 62. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (3192)
185. mál, skipting innflutnings- og gjaldeyrisleyfa milli landshluta
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil af hálfu okkar flm. till. þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu málsins. N. mælir með samþykkt till., en leggur til, að nokkur breyt. verði á upphafsorðum hennar. Við flm. getum sætt okkur við þessa brtt. n., þar sem við teljum, að þar sé aðallega um orðalagsbreyt. að ræða, en ekki röskun á efni. Við flm. væntum þess, að Alþ. samþ. till., og verði till. samþ., gerum við að sjálfsögðu ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. komi nú þegar á þeirri skipan á úthlutun innflutnings- og gjaldeyrisleyfa, sem fram á er farið í till., þar sem þá liggur fyrir ótvíræð yfirlýsing Alþ. um, að það telji, að úthlutuninni eigi að haga á þann hátt, sem greinir í 1. og 4. tölulið till.