04.02.1948
Sameinað þing: 41. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (3220)

100. mál, lyfjabúðir í Reykjavík

Flm. (Jónas Jónsson) :

Herra forseti. Þetta mál hefur beðið nokkuð hér á Alþ., en mikill áhugi er á því í bænum og er það ekki einungis allur almenningur, sem vill fjölga lyfjabúðunum, heldur hafa og forráðamenn bæjarins haft mikinn áhuga á því, og skildist mér á borgarstjóra, að hann teldi málið svo mikilvægt, að hann vildi styðja það í frumvarpsformi hér á Alþ., ef annað dygði ekki til.

Ég þarf ekki að fjölyrða um þessa till., en óska, að hún fari til hv. allshn., en vildi aðeins endurtaka það, að fyrir þessu ríkir hinn mesti áhugi í bænum, og komið gætt til alvarlegrar vinnustöðvunar í lyfjabúðunum, ef Alþ. sér sér ekki fært að fallast á till.