04.02.1948
Sameinað þing: 41. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (3226)

100. mál, lyfjabúðir í Reykjavík

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Síðan ég tók sæti í heilbr.- og félmn. — og ég hef ætíð átt þar sæti — hafa n. tvívegis borizt frv. um mál þessi. Annað var frá Vilm. Jónssyni landlækni, sem stj. flutti, hitt frá lyfjafræðingafélaginu. Hvorugt þessara frv. varð að lögum. Frv. voru ólík og byggð upp á grundvallarskoðanamun. Ég get vel trúað því, að það sé hreint ekki létt verk að færa þau saman.

Öll löggjöf um þetta er ákaflega gömul, og þarf að breyta henni mikið. Það væri því óskandi, að þessar umr. leiddu til þess, að fyrir Alþ. kæmi frá stj. frv. um þessi efni, sem sameini vilja þessara stefna, eftir því sem það þá er hægt. Það verður efalaust ekki hægt að gera það alveg, en eitthvað samkomulag ætti að mega fá.

Málið er ekki einfalt. Lyfjaverzlanirnar hafa ekki bara lyf á boðstólum, heldur verzla með aðra hluti, og takmörkin fyrir því, hvað kalla beri lyf, eru ekki glögg. Þegar gjaldeyrir er takmarkaður, er það slæmt, að fluttur sé inn brjóstsykur fyrir lyf, enda þótt það geti verið gott fyrir kvefaða menn að hafa hann uppi í sér. Þess eru dæmi, að lyfjafræðingur hefur notað gjaldeyri, sem veittur var fyrir lyfjum, á þann hátt. Því fleiri sem lyfjabúðirnar eru og því minni tekjur sem þær hafa, því meiri er freistingin að selja slíkar vörur, sem gefa góðan ágóða og betri en lyfin. Lyfjabúðirnar verða að bera sig, og það eru takmörk fyrir því, hvað margar lyfjabúðir geta þrifizt, ef þær selja ekki annað en lyf, til þess að afla þeirra tekna, sem þær þurfa. Því er ég ekki fús til þess að fjölga lyfjabúðum. Það eykur freistinguna til þess að flytja inn efni, sem gefa hagnað, en deila má um, hvort eru lyf. Ég vil því ekki hvetja til fjölgunar, en það þarf að athuga málið, því að það er þörf nýrrar löggjafar í þessum efnum. Nú má hver sem er flytja inn það, sem kallað er lyf. Súlfalyfin eru t. d. flutt inn af heildverzlunum.