14.10.1947
Sameinað þing: 6. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (3244)
5. mál, Parísarráðstefnan og dollaralán
flm. (Einar Olgeirsson) :
Þessara útvarpsumr. hefur verið krafizt af Sjálfstfl. Ekkert vit er í því að hafa útvarpsumr. um mál sem þetta, nema sú skýrsla komi þá fyrir þjóðina, er þar er um beðið, og hún sé rædd. Því hef ég álitið, að Sjálfstfl. ætti sem krefjandi umr. að byrja í útvarpinu, en með ofríki hafa stjórnarflokkarnir ákveðið, að Sósfl. skuli byrja og ekki fengizt dregið um röð. Við síðustu útvarpsumr. frá þinginu, um fjárhagsráð í maí í vor, var ég látinn byrja, af því að ég hafði krafizt umr.
Ég vil því óska úrskurðar hæstv. forseta um þetta tvennt:
1) Hvort ekki skuli dregið um röð milli allra flokkanna, þar sem ekkert samkomulag er um, hver byrja skuli.
2) Hvort umr. þessarar þáltill. sé lokið með útvarpsumr. þessum eða ekki.