14.10.1947
Sameinað þing: 6. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í D-deild Alþingistíðinda. (3258)
5. mál, Parísarráðstefnan og dollaralán
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson) :
Herra forseti. Góðir hlustendur. Það var margt spaugilegt í ræðu hv. 2. þm. Reykv., Einars Olgeirssonar, þessa Sölva Helgasonar íslenzkra stjórnmála, en spaugilegast var þó gort hans yfir afrekum sínum og flokks síns, þegar hann var að lýsa því, hve mörgum og miklum verðhækkunum hann hefði komið til leiðar á heimsmarkaðinum, og síðast nú í sumar hinu háa verði á síldarlýsi, sem væri hærra nú en nokkru sinni áður og þeir hafa víst verið búnir að undirbúa, áður en þeir fóru úr stj. Það má segja, að miklir menn erum við, Hrólfur minn.
Svipaðs eðlis var það, sem hann talaði til hæstv. utanrrh. (BBen). Verðlækkunin var hans verk. En gott verð var verk Einars og hans nóta. Hann sagði, að hæstv. utanrrh. (BBen) hefði eyðilagt hestamarkaðinn í Póllandi í sumar. Sannleikurinn er sá, að hestamarkaðurinn stöðvaðist fyrir það, að uppskerubrestur var svo alvarlegur, að þeir treystu sér ekki að flytja inn meiri kvikfénað. Pólverjar vildu kaupa og vilja kaupa, og stj. kom til móts við þá með allt, m. a. tveggja ára greiðslufrest. Pólverjar voru búnir að gera samninga við Norðmenn, Svía og fleiri, og þeir sneru sér til þeirra og báðu um frest, og sömuleiðis var útilokað að flytja hesta héðan. Þannig falla þessi rök algerlega um sjálf sig.
Það er sami sannleikurinn, sem felst í því og því, að Einar Olgeirsson hafi hækkað verðið á heimsmarkaðinum og að hæstv. utanrrh. hafi ráðið uppskerubrestinum í Póllandi.
Ég hygg, að engin íslenzk ríkisstjórn hafi fengið til meðferðar meiri og margháttaðri vandamál en þau, er núverandi stjórn á við að glíma, í sambandi við það öngþveiti í gjaldeyris-, verðlags- og fjármálum, sem hér er nú á skollið, að vísu eftir alllangan aðdraganda. Ríkisstjórnin gerði sér þegar í upphafi engar gyllivonir um það, að viðfangsefni hennar yrðu neinn dans á rósum, eins og þessum málum var komið, þegar hún tók við. En ég efast samt um það, að nokkur af ráðherrunum hafi gert sér grein fyrir því, hversu komið var á tæpa nöf í byrjun þessa árs, fyrr en allmikið verk hafði verið í það lagt að lesa þessar rúnir niður í kjölinn, eftir að fjárhagsráð var stofnað og hóf sínar rannsóknir á málunum ásamt ríkisstjórn og fjármálastofnunum. Það, sem niðurstöður þessara athugana leiddu óvéfengjanlega í ljós, var þetta:
Gjaldeyrisinneignum þjóðarinnar var næstum að fullu ráðstafað og sömuleiðis gjaldeyristekjum hennar á árinu, svo að tæpast var eftir fyrir brýnustu lífsnauðsynjum ársins.
Sparifé landsmanna í bönkum og sparisjóðum var að mestu orðið fast í margs konar fyrirtækjum, sumum aðeins hálfgerðum eða varla það, svo að lánsöflun mikils háttar framkvæmda var að mestu útilokuð. Það var því sýnilegt, að allar framkvæmdir, sem einstaklingar, bæjarfélög og ríki höfðu með höndum, mundu bráðlega stöðvast, svo að segja samstundis, og því næst sjálf framleiðslustarfsemin, ef ekki yrði þegar hafizt handa um að ráðstafa þeim litla gjaldeyri og því litla lánsfé, sem enn var til þeirra framkvæmda og þeirrar starfsemi, sem nauðsynlegust var þjóðinni.
Samfara þessu kom svo hitt í ljós, að framleiðsluvörur þær, sem ríkið hafði ábyrgzt visst verðlag á, seldust ekki nema fyrir hluta af því verði, þannig að ríkissjóður hlýtur að bíða af því milljóna tap.
Það átti nú að vera hverjum manni sjáanlegt, sem gerði sér grein fyrir ástandinu, að þegar svo var komið, var útilokað lengur að aka sér undan því að taka öll þessi fjárhagsatriði til róttækra aðgerða. Og það átti að vera hverjum manni sjáanlegt, að þær aðgerðir hlytu að koma við einhverja, — og ekki aðeins einhverja, heldur alla landsmenn, meira og minna.
En vandamálum eins og þessum ræður engin ríkisstjórn og enginn þingmeirihluti til lykta, svo vel fari, nema að baki þeim og með þeim starfi meginhluti borgaranna, í landinu. Í lýðstjórnarlandi hefur þing og stjórn ekkert að styðja sig við nema skilning og ábyrgðartilfinningu hins frjálsa borgara, þó að einræðisstjórnir geti látið byssukjaftana lesa fyrir þegnunum þau lög og reglur, sem þær vilja að gildi á hverjum tíma.
Það var því sameiginlegt álit allra á síðasta þingi, er sáu, að hverju stefndi, að æskilegast væri að fá alla þingflokka til samstarfs og freista þess að skapa samfylkingu þjóðarinnar gegn þeim vandamálum. sem óhjákvæmilega hlytu að bíða hennar á næsta leiti.
Allir vita, hvernig það fór. Flokkurinn, sem kallar sig sameiningarflokk alþýðu — og mest hafði gumað af ábyrgðartilfinningu og þjóðhollustu fyrir það, að hann hafi tekið þátt í stjórnarmyndun á þeim tíma, er auðæfi þjóðarinnar voru meiri en nokkru sinni fyrr og stjórn landsins því auðveldari en nokkru sinni — hafði laumazt út um eldhúsdyrnar hjá fyrrverandi ríkisstjórn, þegar hann sá hilla undir aðsteðjandi erfiðleika, og harðneitað að taka þátt í nýrri stjórnarsamsteypu, af ótta við óþægindi og óvinsældir þeirra ráðstafana, sem óumflýjanlegar yrðu á næstunni.
Það var því fyrirfram sýnilegt, að af þessum flokki væri lítils að vænta í því viðnámsstarfi. sem hér varð að hefja. En þessi flokkur hefur ekki látið við það eitt sitja að hlaupa af hólmi, þegar mest á reið, heldur hefur hann hafið æðisgengna baráttu gegn hverri einustu viðleitni ríkisstj. til stöðvunar fullkomnu hruni, atvinnuleysi og eymd. Þetta hefur hann gert með því að reyna að villa um fyrir alþjóð manna um allar staðreyndir, stórar og smáar.
Fúkyrði og upphrópanir í blaði flokksins — Þjóðviljanum — eru alla daga á hæstu nótum og minna helzt á óðs manns öskur.
Það verður tæplega á milli séð, hvort hann hatar meir, Bandaríkin eða ríkisstjórn Íslands. Þegar ríkisstjórnin lætur birta skýrslu fjárhagsráðs um gjaldeyrisástandið og önnur fjárhagsmál, hlutlausa og samvizkusamlega gerða, til þess að kynna alþjóð ástandið, þá öskrar Þjóðviljinn: „Skýrslu fjárhagsráðs er ætlað að koma fáti á fólkið og villa því sýn.“
Þegar farið er að skammta hinar takmörkuðu sementsbirgðir, sem við höfum ráð á, til þess að sjá um, að þær nýtist sem bezt og koma í veg fyrir, að allar byggingar, sem í smíðum eru, stöðvist ófullgerðar, öskrar Þjóðviljinn: „Hin dauða hönd hrunstjórnarinnar þegar lögð á allar byggingarframkvæmdir. Er ríkisstjórnin vísvitandi að skipuleggja atvinnuleysi?“ Þegar reynt er að treina þær benzínbirgðir, sem við höfum nokkur tök á að eignast á þessu ári, með því að takmarka þær sem mest við aðra en þá, sem hafa bifreiðaakstur sem atvinnu, og skipta því sem jafnast á milli þeirra. eftir því sem birgðir endast, þá öskrar Þjóðviljinn: „Ósvífin árás á atvinnubílstjóra. Benzínskammtur þeirra lækkar stórlega.“
Þegar ríkisstjórn skýrir þjóðinni frá verðlagi því, sem ríki á heimsmarkaðinum á aðalútflutningsvöru þjóðarinnar, svo að hún viti hvar hún stendur, þá öskrar Þjóðviljinn: Sölusamningar Bjarna Benediktssonar áttu að sanna þjóðinni, að hún yrði að rýra lífskjör sín. Þegar allt veitur á, að afurðirnar seljist fyrir sem hæst verð, vill afturhaldið (þ. e. ríkisstjórnin) að það lækki.
Það, sem hér er sagt, er nánast þetta: Íslenzka ríkisstjórnin leggur sig í framkróka um að selja útflutningsvörur þjóðarinnar með sem óhagstæðustum kjörum fyrir landsmenn, ekki af tómum aulaskap, þó að hann sé ríkulegur, heldur blátt áfram af mannvonzku — til þess að íslenzk alþýða verði til neydd að rýra kjör sín. — Og þannig mætti lengi telja.
Þessir menn vita sjálfsagt, hvað þeir mega bjóða heimafólki. En þyki þetta og annað eins góð latína í þeim söfnuði. þá get ég fallizt á, að ekki sé svo illa til fundið hjá þeim austur í Moskva að líkja kommúnismanum við Oxfordhreyfinguna, einhverja mestu heittrúarstefnu síðari tíma. Hann stendur henni sýnilega ekki að baki í trúarefnum.
Þá er ekki síður athyglisvert, með hverri áfergju foringjar og flokksblöð þeirra stjórnarandstæðinga reyna að bólusetja flokksmenn sína gegn hverri hugsun um lagfæringu á verðlagsmálunum til léttis útflutningsstarfseminni. Þeir taka hverja leið, sem þar gæti komið til mála, og afflytja hana á allan hátt — og þó með rökum, sem eitt rekur sig á annars horn.
Sú var þó tíðin, að þeir þóttust vera öllum flokkum skeleggari í baráttunni gegn verðbólgunni. Þá létu þeir sér sæma að gefa út yfirlýsingu sem þessa: „Verðbólgan þýðir tvímælalaust atvinnuleysi, og það í enn geigvænlegri mynd en áður hefur þekkzt. Verkamenn verða því að taka upp forustuna gegn verðbólgunni.“
Þetta var fyrir kosningarnar 1942 — áður en þeir fundu upp slagorðið um blessun verðbólgunnar, sem dreifði stríðsgróðanum.
Í samræmi við þessa yfirlýsingu settu þeir svo upp stefnuskrá í 12 liðum um baráttuna gegn verðbólgunni. Hvað hefur svo orðið um efndir þeirrar stefnuskrár? Nákvæmlega það sama og um efndir allra þeirra stórorðu stefnuskráratriða, sem þeir hafa básúnað út um landið frá því að þeir fóru að sýna lífsmark með sér í landinu. Nákvæmlega ekki neitt. Á öllum sínum hérvistardögum hefur þeim verið gefinn einn náðartími, er sennilega kemur aldrei oftar, til að framkvæma stefnumið sín og loforð.
Þetta tímabil var frá haustnóttum 1944 til 1946. Þá voru þeir í ríkisstjórn og það valdamiklir, að stjórnin gat ekki lifað deginum lengur en þeir vildu vera láta. En allan þann tíma varð þess ekki vart, að þeir settu á oddinn eitt einasta atriði allra þeirra stórmála, er þeir hafa talið og telja nauðsyn fyrir þjóðina, þegar þeir eru valdalausir í landinu.
Eitt uppáhalds gælunafn stjórnarandstæðinga á núverandi ríkisstjórn er nafnið „hrunstjórnin“. Þetta minnir svo sláandi á skólapiltinn, er stal peningunum af félaga sínum, en reyndi svo eftir á að koma viðurnefninu „þjófur“ á þann, sem af var stolið, til að leiða athyglina frá sjálfum sér.
Allt framferði þeirra bendir á það, að þeir vilja fyrir hvern mun koma af stað hruni og öngþveiti í landinu — til þess að geta hæglegar villt um fyrir þjóðinni, svo að hún verði ofstæki þeirra sem auðveldust bráð.
Þeir hafa reynt eftir mætti að dylja fyrir þjóðinni og villa í gjaldeyris- og fjármálum hennar. Þeir hafa lagt allt kapp á að koma í veg fyrir, að þjóðin sætti sig við þær hóflegu takmarkanir á notkun erlends gjaldeyris, er ríkisstjórn og fjárhagsráð telja nauðsynlegt. Þeir hafa reynt að fyrirbyggja, að þjóðin sætti sig við nokkrar þær ráðstafanir, sem dugi til þess, að útflutningsstarfsemi hennar geti orðið samkeppnisfær á erlendum markaði. En þeir láta ekki þar við sitja. Þeir sjá, að jafnvel þó að þeim takist þetta allt, þá er þó ein leið hugsanleg enn til þess, að ekki fari allt viðstöðulaust í strand, — og hana þarf að fyrirbyggja. Og þessi leið er hugsanlegt gjaldeyrislán til að forða hruni.
Nú er það svo, að allar þær ráðstafanir, sem ríkisstjórnin hefur verið að beita sér fyrir undanfarið, miða meðal annars að því að komast hjá því, að þjóðin þurfi að grípa til lántöku eða skuldasöfnunar erlendis, — og öll ríkisstjórnin er sammála um, að slíkt væri hið síðasta neyðarúrræði, — þó að það hlyti að verða óhjákvæmilegur endir, ef komið yrði í veg fyrir allar þær varúðarráðstafanir, sem verið er að framkvæma og undirbúa.
Og í þeirri von, að þeim takist það svo, að endirinn verði þessi, er það svo spunnið upp frá rótum, að ríkisstjórnin sé að undirbúa eða sé búin að leggja erlendan skuldaklafa á þjóðina.
Fyrst er dylgjað um þetta í Þjóðviljanum. Svo er það fullyrt og að síðustu skjalfest í þingskjali, — og var þá verkið fullkomnað, þó að tillögumaðurinn sjái máske nú, að hann hefur gengið feti lengra en æskilegt hefði verið fyrir hann.
Það var hér á fyrstu árum kommúnistahreyfingarinnar á Íslandi, að kunningi minn einn, sanntrúaður kommúnisti og brennandi í andanum, fór að prédika fyrir mér fagnaðarefni kommúnismans og reyndi að leiða mig í allan sannleika í þeim háleitu fræðum. Ég var eins og flestir ungir menn opinn fyrir öllum nýjungum og hafði gaman af að kynnast hinum nýstárlegu kenningum og pólitísk heimspekilegu bollaleggingum, sem þar komu fram. Sumt líkaði mér allvel, en annað miður, eins og gengur. Eitt af því fyrsta, sem fékk mig til að spyrna nokkuð fótum við boðskap þessa nýja siðar, var sú kennisetning, að í baráttunni fyrir framgangi og sigri hinna dásamlegu hugsjóna kommúnismans væru svo að segja allar leiðir jafnréttháar, ef þær bæru að hinu rétta marki. Á sannleik og lygi væri sá einn munur, hvort þeirra væri áhrifaríkara og heppilegra hverju sinni til að bera árangur fyrir hið góða málefni.
Mér gekk dálítið erfiðlega að melta þessa kenningu. Hún minnti mig óþægilega á það, sem ég hafði heyrt og séð um siðspeki Jesúítareglunnar alræmdu, og stangaðist verulega við þá óbrotnu sveitalegu siðfræði, sem ég hafði verið alinn upp við, eins og önnur íslenzk alþýða á þeim árum, að sannleikann bæri ætíð að taka fram yfir lygina.
Ég hreyfði þessu eitthvað við læriföður minn og bætti því við, að auk hins siðferðislega í málinu tryði ég ekki á, að slík baráttuaðferð borgaði sig, er til lengdar léti. Hið sanna hlyti jafnan að komast upp að lokum, og þá misstu menn trú á málstað og rök þeirra, er notuðu þessar starfsaðferðir, einnig þegar þeir segðu satt. Lærifaðirinn kvað það með öllu hættulaust, ef þess væri aðeins gætt að nota lygina með varúð. Fullyrðingarnar gætu gert sitt gagn, þó að ósannar væru og ósannanlegar, aðeins ef þær yrðu ekki afsannaðar. Allt ylti á því að gera ósannindin sem sennilegust.
Nú hefur manni verið skýrt frá því, — og síðast fyrir fáum dögum í Þjóðviljanum, — að kommúnistaflokkur Íslands væri ekki lengur til. Og við minnumst þess líka, að okkur var sagt, að hann hefði fengið hér rólegt andlát fyrir 9 árum — og var þá fáum harmdauði.
Hitt er svo annað mál — eftir baráttuaðferð sameiningarfl. íslenzka og blaðs hans „Þjóðviljans“ að dæma nú undanfarið, sem ég hef að nokkru leyti vitnað hér til, — að svo virðist sem þessi ættargripur úr dánarbúi kommúnistaflokksins sálaða, um löggildingu lyginnar í þjónustu stjórnmálabaráttunnar, hafi á einhvern hátt borizt inn á heimili sameiningarflokks alþýðu — „sósíalistaflokksins“ og verið tekinn þar í notkun. En líklega hefur varúðarhaninn, sem ég minntist á, þetta að gera ósannindin líkindaleg, — eitthvað skaddazt í flutningunum. Um það ber m. a. vitni sá málatilbúningur þeirra, sem hér hefur verið ræddur í kvöld.
Þegar þeir menn, sem nú hafa forustu í hinni íslenzku stjórnarandstöðu, og flokksblöð þeirra eru einir um það „hér úti á Íslandi,“ — eins og hv. 2. þm. Reykv. (EOl) orðar það, — að dá og lofsyngja hið austræna lýðræði, eins og það er nefnt.
Meginhluti íslenzku þjóðarinnar er þakklátur fyrir það, að skipulag þess og starfshættir hafa ekki náð útbreiðslu í þessu þjóðfélagi, og vonar, að það verði aldrei. En þó held ég satt að segja, að engir ættu að vera þakklátari fyrir, að svo er, en þeir menn, sem nú hafa forustuna fyrir stjórnarandstæðingum hér.
Ef hér væru ríkjandi sams konar vinnubrögð í stjórnmálum og daglega berast fréttir af frá sumum Evrópuríkjunum, er hafa tileinkað sér hið austræna „lýðræði“, mætti fara nærri um það, hverjir ynnu hér til heitisins „skemmdarverkamenn“ o. s. frv. og hvaða heimkynni biðu þeirra.
Ég held, að það væri fullkomlega ástæða til þess, að höfuðguðfræðingur stjórnarandstöðunnar, hv. 6. þm. Reykv., Sigfús Sigurhjartarson, beitti sér fyrir því, að þakkarguðsþjónustur væru öðru hverju haldnar innan flokks hans til að lofa forsjónina. fyrir það, að hér skuli ríkja venjur og vinnubrögð hins vestræna lýðræðis, úr því að þeir þurftu endilega að lenda í stjórnarandstöðu.