20.10.1947
Sameinað þing: 10. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í D-deild Alþingistíðinda. (3275)

25. mál, Keflavíkurflugvöllurinn

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Það er nú liðið rúmt ár síðan Alþ. samþykkti flugvallarsamninginn svo nefnda. Í þessum samningi eru fólgin fjögur meginatriði:

1. Herverndarsamningurinn skyldi falla úr gildi og her sá, sem hér hafði verið, fluttur á burt.

2. Keflavíkurflugvöllurinn skyldi verða íslenzk eign.

3. Bandaríkjastjórn skyldi heimilað að nota flugvöllinn í ákveðnu skyni, í tiltekinn tíma og stjórna starfsemi sinni þar.

4. Ákveðið var, að Bandaríkjastjórn skyldi njóta vissra sérréttinda í sambandi við starfsemi sína og starfsmenn á vellinum.

Ég var því andvígur, að þessi samningur væri gerður, og voru það aðallega þrjú atriði, sem ollu því.

1. Ég taldi samninginn skerða alger umráð Íslendinga yfir landi sínu og hér væri því um hagsmunamál að ræða, sem í senn hefði menningarlega og fjárhagslega þýðingu.

2. Ég taldi samninginn varhugaverðan vegna þess, að bækistöðvum á flugvellinum mætti fyrirvaralítið breyta, í herstöðvar, og ég taldi í grundvallaratriðum rangt af smáþjóð að láta stórþjóð í té stöðvar, sem hægt væri að nota sem herstöðvar.

3. Ég taldi það óeðlilegt og rangt að veita Bandaríkjamönnum þau sérréttindi, sem þeim voru veitt í samningnum með tilliti til skatta og tolla.

Þegar samningurinn var til umræðu hér á Alþ. í fyrra, má segja, að fram hafi komið þrjár meginskoðanir í sambandi við þann vanda, sem samningnum var ætlað að leysa, þ. e. a. s. kröfuna um, að Bandaríkjamenn yrðu á burt með her sinn.

Í fyrsta lagi vildu sumir heimila Bandaríkjamönnum viss afnot af Keflavíkurflugvellinum áfram, þ. e. a. s. meðan þeir hefðu hergæzlu í Þýzkalandi og í sambandi við hana, og að annast þar vissa starfsemi og hafa þar starfsmenn undir eigin stjórn.

Í öðru lagi var sú skoðun, sem haldið var fram af hv. Sósfl., að Bandaríkjamönnum skyldu meinuð öll afnot af Keflavíkurflugvellinum.

Þriðja skoðunin var sú, sem fram kom í brtt. okkar hv. 3. landsk. þm. (HV), en hún var fólgin í því, að Bandaríkjamönnum skyldu heimiluð afnot af flugvellinum, meðan þeir hefðu herskyldum að gegna í Þýzkalandi, en að flugvöllurinn og allur rekstur hans væri algerlega undir íslenzkri stjórn.

Ég skal ekki orðlengja frekar um það, hvort rétt hafi verið eða rangt að gera umræddan samning. Það, sem nú er um að ræða, er það, hvort samningurinn hafi verið vel eða illa framkvæmdur, hvort vel eða illa hafi verið haldið á rétti Íslendinga við framkvæmd hans.

Í upphafi þessa þings hafði ég afráðið að bera fram þrjár fyrirspurnir til hæstv. utanrrh. viðvíkjandi framkvæmd samningsins. Ég hef talið, að framkvæmd hans hafi ekki verið lýta- eða ágallalaus, og þess vegna hafði ég ákveðið að bera fram á þinginu þær fyrirspurnir, sem ég skal nú leyfa mér að lesa:

1. Hvers vegna hefur ekki verið sett reglugerð sú um stjórn og rekstur Keflavíkurflugvallarins, sem ráð er fyrir gert í flugvallarsamningnum, sem samþykktur var 5. okt. 1946?

2. Eru framkvæmdir þær, sem nú er unnið að á Keflavíkurflugvellinum, gerðar með samþykki ríkisstj.?

3. Er það rétt, að hið ameríska flugfélag, sem annast rekstur Keflavíkurflugvallarins í umboði Bandaríkjastjórnar, hafi nær engan erlendan gjaldeyri selt íslenzkum bönkum?

Þegar ég hafði afhent þessar fyrirspurnir til skrifstofunnar, sagði ég hæstv. forsrh. frá þeim, og tjáði hann mér þá, að von væri á skýrslu frá hæstv. ríkisstj. um þetta mál allt. Mæltist hann til þess, að ég biði skýrslunnar og drægi þessar fyrirspurnir til baka, og féllst ég á það. Nú hefur þessi skýrsla komið fram. Hún hefur verið lesin hér á Alþ. og auk þess birt í blöðum. Segja má, að í skýrslunni sé leitazt við að svara fyrstu fyrirspurninni, sem sé því, hvers vegna hafi ekki verið sett reglugerð um stjórn og rekstur Keflavíkurflugvallarins, og er ástæðan, sem fram er færð sú, að nauðsynlegt sé að fá víðtækari reynslu en orðið er, til þess að unnt sé að setja reglugerðina. Ég kemst ekki hjá því að segja, að mér finnst þessi skýring ekki fullnægjandi. Það er liðið ár, síðan þessi samningur var gerður, og ½ ár, síðan Keflavíkurflugvöllurinn var afhentur Íslendingum sem eign þeirra. Þessi tími er svo ríflegur, að hægt hefði átt að vera að setja reglugerð til þess að skera úr ýmsum vafaatriðum, sem um er að ræða í samningnum og í ljós hafa komið í sambandi við framkvæmd hans.

Við annarri spurningunni hefur fengizt fullt svar. Mér skilst, að hæstv. ríkisstj. hafi samþ. þær miklu framkvæmdir, sem verið er að vinna að á flugvellinum. Hitt er annað mál, hvort hæstv. ríkisstj. hefur þar gert rétt eða ekki.

Á þriðju spurninguna er ekki minnzt eða svar við henni. Á þau mál, sem þar er vikið að, hefur ekki verið minnzt áður við þessar umr. Síðan ég ætlaði að bera fram fyrirspurnirnar, hef ég fengið upplýsingar, sem ég tel staðfestar, að það sé rétt, að þetta ameríska flugfélag hafi nær engan erlendan gjaldeyri selt íslenzkum bönkum. Þó er vitað, að það greiðir allmiklar fjárhæðir í íslenzkum peningum. Það er vitað, að allt kaup, sem starfsmenn þess fá greitt á Íslandi, er greitt í íslenzkum peningum og auk þess kaup þeirra manna, sem vinna við hinar geysimiklu framkvæmdir, sem og ýmis rekstrarkostnaður flugfélagsins. Ég sé ekki, að félagið geti haft aðrar tekjur í íslenzkum peningum en þær, sem það fær af að selja farmiða með vélum sínum frá Ameríku til Norðurlanda, og það ætti ekki að mega selja öðrum farmiða fyrir íslenzka peninga en Íslendingum. En mér kæmi mjög á óvart, ef tekjur félagsins af íslenzkum farþegum væru svo miklar, að nægðu fyrir öllu því, sem félagið þarf að nota af íslenzkum gjaldeyri. Hér er um eitthvað það að ræða, sem ekki er fullljóst, og ég held, að öllum væri fyrir beztu, að þetta mál yrði upplýst til fulls. Ef það er svo, að félagið selji útlendingum far fyrir íslenzkan gjaldeyri, þá á hæstv. ríkisstj. að stöðva það og hefði raunar átt að vera búin að stöðva það fyrir löngu.

Um þá skýrslu flugvallarn., sem hæstv. utanrrh. las upp, er það að segja, að hún var mér til nokkurra vonbrigða. Mér finnst ekki vera í henni ýmsar upplýsingar, sem nauðsynlegt sé að fá, og auk þess finnst mér, að í henni gæti nokkurrar minnimáttarkenndar gagnvart Bandaríkjamönnum. Hins sama finnst mér hafa gætt í ræðum hæstv. utanrrh. og hæstv. flugmrh. Mér finnst þeir hafa lagt höfuðáherzlu á að sýna fram á, að allt það, sem aflaga hafi farið, sé að kenna starfsmönnum, sem fyrrv. flugmrh. hafi ráðið. Nú er það auðvitað fjarri mér að mæla því bót. sem aflaga fer, og tel ég það jafnámælisvert, hver sem í hlut á, en hitt vil ég leyfa mér að átelja, að það sé gert að aðalatriði, hvaða íslenzkum embættismönnum það sé að kenna, sem aflaga fer, í stað þess að skýra frá, hverjar ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að koma í veg fyrir slíkt framvegis. Og það er vissulega athyglisvert, að ekkert orð skuli látið falla um það, að afstaða eða aðgerðir Bandaríkjamanna hafi skapað nokkra erfiðleika við framkvæmd samningsins, en í stað þess er allt kapp lagt á að sýna fram á, að þeir erfiðleikar, sem orðið hafa, séu tilteknum íslenzkum embættismönnum að kenna.

Ég tel, að framkvæmd þessa samnings hafi verið ábótavant að ýmsu leyti, og vil leyfa mér að nefna 8 atriði í því sambandi:

1. Bandaríkjamenn hafa engan rétt á vellinum nema í sambandi við samgöngur sínar við Þýzkaland. Hitt vita allir, að völlurinn er notaður meira en í þágu Þýzkalandsferðanna. Þessi afnot eru ekki í samræmi við skýlaus ákvæði samningsins. Í skýrslunni segir að vísu, að hæstv. ríkisstj. hafi heimilað flugfélaginu afnot af fasteignum öllum á vellinum, en ef því hafa verið heimiluð afnot af vellinum til hvers sem það vill nota hann, þá er vafamál, hvort hæstv. ríkisstj. hefur ekki gert meira en rétt er, að hún geri að Alþingi forspurðu. Það er staðreynd, að réttur Bandaríkjamanna er takmarkaður við samgöngurnar við Þýzkaland, en að sá aðili, sem fer með umboð Bandaríkjastjórnar, notar völlinn miklu meira.

2. Þá er það skatt- og tollfrelsið. Það er upplýst af hæstv. utanrrh., að þeir erlendu menn, sem á vellinum starfa, njóta skatt- og tollfrelsis, hvað sem þeir gera á flugvellinum. Þetta er í ósamræmi við skýlaus ákvæði samningsins. Í raun og veru er um að ræða nokkurs konar „fríhöfn“ þarna suður á Reykjanesi, og þar dvelja menn, sem að vissu leyti eru ekki háðir íslenzkum lögum og undanþágurnar, sem þeir njóta nú, eru meiri en gert er ráð fyrir í samningnum. Hér verður að krefjast þess skýlaust, að samningurinn sé haldinn að fullu og öllu. Mér er það fullkomlega ljóst, að þar sem rekstur Þýzkalandsferðanna blandast saman við aðra starfsemi þess aðila, sem rekstur vallarins annast, er hér um mikinn vanda að ræða, en mér finnst samt ekki að við hefðum átt að þurfa til þess ár eða 6 mánuði að finna skynsamlega lausn.

3. Bandaríkjamönnum er skylt að þjálfa Íslendinga til flugvallastjórnar, en lítið hefur verið gert að slíku.

4. Bandaríkjamenn hafa fleiri menn á vellinum en talið var nauðsynlegt, þegar samningurinn var gerður. Þess var þá oft getið, að aldrei þyrftu að vera þar fleiri en 600 útlendingar. Ég segi ekki, að rekstur vallarins nú annist meira en 600 manns, en þar vinna fjölmargir aðrir útlendingar eða um 400, svo að heildartalan er hærri en ráð var fyrir gert.

5. Bandaríkjastjórn er samkvæmt samningnum skylt að sækja um landvistar- og dvalarleyfi fyrir alla menn, sem á vellinum starfa. Hins vegar munu hafa verið fluttir þangað menn án landvistarleyfis og síðan sótt um leyfið eftir á, þegar mennirnir hafa verið komnir til landsins. Hér virðist hafa verið nauðsyn að standa betur á verði en gert hefur verið.

6. Bandaríkjamenn nota hér á landi ýmis tæki, svo sem bifreiðar o. fl., sem eru gjaldskyld samkv. íslenzkum lögum. Þeim var leyft að nota slík tæki eftir þörfum í sambandi við Þýzkalandsferðirnar, en það, sem þar er umfram, er að sjálfsögðu gjaldskylt, þó að ekki séu nú greidd af þeim gjöld.

7. Hið ameríska flugfélag hefur selt íslenzkum bönkum nær engan erlendan gjaldeyri, og liggur því nærri að álykta, að það afli sér gjaldeyris með sölu flugmiða fyrir íslenzka peninga til annarra en Íslendinga. Sé svo, eru íslenzk gjaldeyrislög sniðgengin.

8. Á flugvellinum fást útlendingar við starfsemi, sem sérstaka heimild þarf til samkv. íslenzkum lögum, svo sem lækningar og lyfjasölu, án þess þó, að þeim hafi verið veitt slík heimild.

Þessi átta atriði sýna, að framkvæmd samningsins hefur verið ábótavant í verulegum atriðum. Það er fjarri mér að telja, að hæstv. ríkisstj. hafi vísvitandi verið að vinna gegn íslenzkum hagsmunum og í þágu bandarískra hagsmuna, en hinu vil ég halda fram, að því fari fjarri, að framkvæmdin hafi tekizt nægilega vel eða eins vel og skyldi með tilliti til mikilvægis þeirra hagsmuna. sem hér er um að ræða. Ég tel, að reynslan af framkvæmd samningsins hafi sýnt það glögglega, að raunverulega hafi sú leið, sem við hv. 3. landsk. stungum upp á, verið skynsamlegasta úrlausnin á flugvallarmálinu, þ. e. a. s. að Íslendingar tækju að fullu og öllu rekstur flugvallarins í sínar hendur, en réðu síðan útlendinga til starfa á vellinum, að svo miklu leyti sem þeir gætu ekki annazt rekstur hans sjálfir, m. ö. o. að reksturinn væri að öllu leyti á ábyrgð Íslendinga, en síðan væru Bandaríkjamönnum heimiluð afnot af honum með vissum skilmálum. Þá hefði meiri hluti þeirra vandamála við framkvæmdina, sem nú hafa komið í ljós, ekki komi til. Hitt skal ég fúslega játa, að sum vandamálin eiga beinlínis rót sína að rekja til þess, hvað fyrirkomulagið er óhentugt, og að erfitt er að ráða fram úr þeim, fyrst samningurinn er eins og hann er. Það hlýtur að leiða til margháttaðra árekstra, þegar erlendri ríkisstj. er heimilaður stórrekstur á þýðingarmiklu íslenzku landsvæði, og ekki er ætlazt til þess, að hann heyri að öllu leyti undir íslenzka löggjöf.

Ég vil nota þetta tækifæri til að andmæla þeirri skoðun, að íslenzkir kommúnistar séu þeir einu, sem hafa verið andvígir samningnum og vilja átelja það, að framkvæmd hans hefur ekki verið sem skyldi. Í þessu sambandi má minnast þess, að þegar samningurinn var gerður í fyrra, þá voru allir þeir flokkar, sem stóðu að samþykkt hans, klofnir um afstöðuna til málsins. Því fór fjarri, að kjósendur Sjálfstfl. væru sammála um samninginn, og það er kunnara en frá þurfi að segja, að Framsfl. var svo að segja alveg tvískiptur, t. d. var formaðurinn andvígur samningnum, en ritari flokksins, núverandi hæstv. flugmrh., fylgjandi honum. Alþfl. var ekki heldur sammála. Meiri hl. hans var samningnum fylgjandi, en tveir voru honum andvígir, og einn greiddi ekki atkv. um samninginn, svo að þar voru einungis sex af níu þm. hans, sem voru með samningnum. Og á sameiginlegum fundi allra alþýðuflokksfélaganna hér í bænum s. l. haust fékkst mjög naumur meiri hl. fyrir að vísa frá till., sem lýsti andúð á, að samningurinn væri gerður. Tillaga um að lýsa yfir stuðningi við málið var hins vegar aldrei samþ. í flokksfélögum Alþfl. s. l. haust. Þetta sýnir, að íslenzkir kjósendur höfðu í fyrra mjög skiptar skoðanir um afstöðu til málsins. Það er því mesti barnaskapur að gera ekki ráð fyrir, að þeir, sem voru andvígir málinu í fyrra, fylgist með sérstökum áhuga með því, hvernig framkvæmdin fer úr hendi. Það er mikil villa að gera ráð fyrir, að andstaða gegn samningnum og gagnrýni á framkvæmd hans sé ekki miklu víðtækari í hugum Íslendinga en svo, að hún sé aðeins hjá kommúnistum, því að það væri til að setja í hóp með þeim fjölmarga kjósendur, sem vitað er, að vildu hafa fyrirkomulagið öðruvísi en gert var.

Fyrst ég er farinn að ræða nokkuð almennt um þetta mál, þá er rétt að geta þess, að þegar samningurinn var gerður í fyrra, var því lýst yfir af hálfu ýmissa meðhaldsmanna hans, að hann væri aðeins gerður til fimm ára og að ekki kæmi til mála að framlengja hann að þeim tíma liðnum. Það er að vísu nokkuð snemmt að hefja almennar umr. um endurnýjun samningsins, en ég vil benda á, að hingað til hefur mér vitanlega ekki heyrzt nokkur rödd opinberlega um, að samninginn skuli framlengja að þessum fimm árum liðnum. En með tilliti til þess, sem skeð hefur síðan samningurinn var gerður, finnst mér full ástæða til, að hæstv. utanrrh. og hæstv. flugmrh. geri opinberlega grein fyrir því, hver afstaða þeirra sé til þessa máls. Ég vil því leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til þeirra beggja, hvort það sé ekki skoðun þeirra, að samningnum beri að segja upp að þessum fimm árum liðnum. Þetta hefur verulega þýðingu í sambandi við það, hvernig Íslendingar eigi að haga ráðstöfunum sínum þann tíma, sem eftir er af samningstímabilinu. Ef það er meiningin, sem ég og margir aðrir telja sjálfsagt, að samningnum verði sagt upp að þessum fimm árum liðnum, þá er sérstök nauðsyn fyrir okkur að gera ráðstafanir, sem geri okkur Íslendingum kleift að taka allan rekstur flugvallarins í okkar hendur eftir þessi fimm ár, en eins og nú er, gætu Íslendingar það ekki. Ég vil því leyfa mér að óska þess, að þessir tveir hæstv. ráðh. lýsi skoðun sinni á því, hvort ekki sé rétt og sjálfsagt að segja samningnum upp, þegar samningstíminn sé liðinn. Ég tel, að ef slík yfirlýsing fengist af hálfu hæstv. ráðh., mundi það hreinsa andrúmsloftið að verulegu leyti, en ýmsum þykir það nú ekki svo skírt sem skyldi. Það mundi verða ýmsum, sem nú eru óánægðir með samninginn og framkvæmd hans, til hugarhægðar, ef þeir fengju yfirlýsingu af hálfu þessara tveggja ráðh. um þá skoðun þeirra, að samningnum beri að segja upp, þegar samningstíminn er á enda.

Ég vil ekki ljúka svo máli mínu, að ég geti þess ekki, að af ræðum hæstv. utanrrh. og hæstv. flugmrh., sem og af skrifum ýmissa dagblaða, mætti helzt ráða, að hér væri um mjög þýðingarlítið og í rauninni einfalt mál að ræða. Þegar búið sé að víkja frá störfum einhverjum ónýtum embættismönnum frá tíð fyrrv. flugmrh., þá séu öll vandamál úr sögunni. Það er ástæða til þess að andmæla þessum málflutningi í heild. Því fer vissulega afar fjarri, að hér sé ekki um að ræða viðkvæmt og þýðingarmikið mál. Það er þvert á móti eitt þýðingarmesta og viðkvæmasta vandamál okkar, ekki aðeins síðan lýðveldið var stofnað, heldur einnig síðan við fengum fullveldi okkar viðurkennt. Það er vitað, að Bandaríkjamenn ætla sér að byggja heilt bæjarhverfi á íslenzku landi, ýmsar stórbyggingar, íbúðarhús, skrifstofur, skóla, kirkju og þar fram eftir götunum, en samkv. samningnum eiga þeir að hafa rétt til að vera hér aðeins 6½ ár. Er nú líklegt, að aðili, sem gerði ráð fyrir að vera hér aðeins svo skamma stund, mundi leggja í slíkar framkvæmdir? Ég hygg, að svo verði ekki talið. Og þá er hér um alvarlegt mál að ræða og vissulega léttúðugt að loka augunum fyrir því, að þetta bendir til þess, að gagnaðilinn geri ekki ráð fyrir því að vera sagt að hverfa héðan eftir fyrrgreindan tíma.

Sömuleiðis á öllum að vera kunnugt um, hvernig um þetta mál er ritað í erlendum blöðum. Hæstv. utanrrh. er vafalaust gerkunnugur því, sem birtist í erlendum blöðum um Ísland og Íslendinga, og hæstv. flugmrh. sjálfsagt líka. Og þá hljóta þeir að vita, í hvaða tón þau hafa skrifað um þetta mál. Þar er yfirleitt litið á samninginn sem herstöðvasamning, m. ö. o. að Bandaríkin hafi herstöðvar hér á landi, og er oft um það talað þannig, að ráð sé fyrir því gert, að svo muni verða um ófyrirsjáanlegan tíma. Þessi ummæli eru að vísu oft ekki byggð á nægum kunnugleik á því, hvert eðli samningsins þó í raun og veru er, en engu síður hljóta þessi skrif erlendra blaða að benda til þess, að víða sé gert ráð fyrir, að Bandaríkjamenn verði hér um langan tíma. Vil ég ekki sízt benda á, hvernig blöð og jafnvel opinberar nefndir í Bandaríkjunum hafa um þetta mál rætt. Ég skal ekki rekja það nánar að þessu sinni, og væri það þó hægt, en mér virðist það ekki ástæðulaust, að þessi skrif veki nokkurn ugg í brjósti Íslendinga.

Íslenzku þjóðinni er hér geysilegur vandi á höndum, og með tilliti til þess get ég ekki látið hjá líða að minnast á, að mér hefur fundizt gæta nokkurrar léttúðar í ummælum hæstv. ráðh. sem og blaða í sambandi við þetta mál. Það er mjög varhugavert að leitast við að draga yfir það fjöður, hvílíkt vandamál hér er á ferðinni og ræða um það, svo sem væri það hið eina, sem gera þurfi, að losna við nokkra lélega starfsmenn íslenzka, og fá aðra í staðinn. Hinu vil ég ekki mæla á móti, að óviðurkvæmilegur málflutningur sé hér viðhafður af hálfu hv. Sósfl. Þar er um að ræða málflutning, sem maður á yfirleitt að venjast úr þeim herbúðum, mikil stóryrði og óvarleg, og skal ég vissulega ekki mæla því bót. En þótt mönnum geðjist ekki að framkomu íslenzkra kommúnista í sambandi við þetta mál fremur en önnur, má það ekki verða til þess, að menn missi sjónar á, að hér er um þýðingarmikið mál að ræða, sem ræða verður um og hugsa um af mikilli alvöru.

Ég tel, að þessum samningi beri að segja upp, þegar samningstíminn er liðinn. Bezti undirbúningurinn að uppsögn samningsins er í því fólginn, að haldið sé vel og skelegglega á málstað okkar gagnvart hinum samningsaðilanum, en ef linlega er á haldið, þá er hinum aðilanum varla láandi, þótt hann geri ekki ráð fyrir, að samningnum verði sagt upp. Ég vona því, að hæstv. utanrrh. og hæstv. flugmrh. haldi framvegis skelegglegar á málstað okkar en gert hefur verið á því samningsári, sem liðið er.