10.10.1947
Sameinað þing: 5. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í D-deild Alþingistíðinda. (3308)
10. mál, dýrtíðarvarnir
Flm. (Jónas Jónsson):
Ég get verið mjög fáorður um þessa till. Hún var til umr. í fyrra, en náði ekki samþykki þá.
Eitt aðalviðfangsefni þessa þings hlýtur að verða að færa niður dýrtíðina og aðalástæðan fyrir því, að hæstv. fjmrh. hefur ekki enn lagt fram fjárlfrv., mun áreiðanlega vera sú, að ekki er auðvelt að leggja fram fjárlfrv., þegar dýrtíðin er svo mikil, en það hefur áður komið fyrir á þingi, þegar utanþingsstj. fór með völd.
Þessi staðreynd, að ekki er hægt að vinna að fjárl. vegna dýrtíðarinnar, ætti að gera okkur skiljanlegt. að hér er þörf allmikilla aðgerða, og lausnin í því máli er að færa niður dýrtíðina. Nægir í því efni að benda á það eitt, að Norðmenn selja nú saltfisk sinn hálfu ódýrar en við.
Till. gerir ráð fyrir, að ríkisstj. og þá sérstaklega utanrrh. beiti þeim kröftum, sem hún hefur, til að afla á Norðurlöndum og Englandi upplýsinga, um, hver dýrtíðin er þar, hvað kaupgjald sé þar og laun og hvaða verð sé á framleiðslunni, og ef þetta er gert, þá séu birtar um það ýtarlegar skýrslur, svo að þjóðin sjái ljóslega, hvar hún er á vegi stödd í þessum efnum miðað við nágrannaþjóðirnar. Þetta eina atriði, að Norðmenn selja saltfiskinn hálfu lægra en við, er táknrænt fyrir okkur.
Ég vil gjarnan heyra skoðun hæstv. stj. í þessu sambandi, og ef svo er, að hæstv. stj. vill sinna þessu máli, þá mun vera fljótlegt að fá þessar upplýsingar, því að við höfum nú sendiherra á öllum Norðurlöndum.
Ég get hugsað mér, að þessari umr. verði frestað og málinu vísað til n., en geri ekki ákveðna till. um n., fyrr en ég veit, hvort hæstv. stj. vill styðja málið.