05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í D-deild Alþingistíðinda. (3326)

95. mál, kaffi- og sykurskammtur til sjómanna

Flm. (Hermann Guðmundsson) :

Herra forseti. Það var aðeins út af því, sem hæstv. ráðh. mælti síðast, að ég vildi minna hann á það, að sjálfskapaður fulltrúi sjómanna er ég vissulega ekki. Ég er formaður þeirrar stofnunar, sem flestir íslenzkir sjómenn eru félagsbundnir í.

Hæstv. viðskmrh. sagði, að þessi till., sem hér er komin fram, hafi komið sér ókunnuglega og spánskt fyrir sjónir, þar sem sjómenn fengju þann skammt af þessum vörum, sem þeir þyrftu á að halda. En meðal sjómanna er óánægja ríkjandi um skammtinn, sem þeir hafa af þessum hlutum. — Í þessu bréfi, sem hæstv. ráðh. las, voru litlar upplýsingar umfram það, sem ég tók fram, nema að 160 grömm væru veitt af kaffi sem aukaskammtur til síldveiðiskipa og 800 g af sykri umfram það, sem ákveðið var. En það hefur ekki reynst nægilegt. — Um það, að L. Í. Ú. hafi með höndum úthlutun á ýmsum skömmtunarvörum til útgerðarinnar, hef ég ekkert að segja. En þessi skammtur, sem um er að ræða í till. að auka, hefur ekki reynzt nægur til sjómanna. Hver reynslan hins vegar verður nú, eftir að þessi þáltill. hefur komið fram, er ekki séð enn, en væntanlega fá sjómenn meiri skammt af þessum vörum á eftir. Reynslan hefur oft verið sú í sambandi við þáltill., sem fram hafa komið svipaðar þessari, um að bæta kjör, að þótt þær hafi ekki verið samþ., heldur bara sýndar, þá hafa þær borið árangur. Ég bar t. d. fram þáltill. um aukaskammt af vinnufötum verkafólks. Sú till. var ekki samþ., en af því að hún var bara sýnd, fékk verkafólkið aukaskammt af þessum hlutum. Þannig hefur þetta verið, þó að náttúrlega væri ákjósanlegast að samþykkja svo sjálfsagðar till. og láta þær á þann veg hafa pósitívt gildi. En þær hafa samt haft áhrif til góðs. Og ég veit ekki betur en að þessi þáltill. eigi fullan rétt á sér, og vænti ég því, að umr. um hana verði frestað og henni vísað til hv. allshn.