22.01.1948
Neðri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (338)
51. mál, tekjuskattsviðauki 1948
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Ég vil upplýsa það, að þessi galli á frv. er til kominn þannig, að frv. er lagt fram í október og hefur orðið eitthvað siðbúið í Ed., sem hafði það með höndum, en þá var eðlilegt form á því að segja, að l. ættu að ganga í gildi í ársbyrjun. Svo kom þingfrestunin, án þess að þetta mál væri afgreitt, og nú standa sakir þannig, að þetta mál er mjög aðkallandi, því að útlendingar ýmsir eru að fara burt af landinu, og þarf að gera upp við þá þeirra skattamál, áður en þeir fara. Ég bað því í gær form. fjhn. Ed. að afgreiða málið fljótt og forseta Ed. að hraða því í gegnum d. þar, en þar var því ekki veitt athygli, að þessi formgalli var á því. Og af því að ég veit, að hv. þm. skilja nauðsyn þess, að mál þetta fái afgreiðslu, vildi ég mælast til þess, að ekki yrði farið að tefja málið hér með því að vísa því til n. vegna orðalagsins.