05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í D-deild Alþingistíðinda. (3420)

18. mál, viðbótarvirkjun í Soginu og Laxá

Flm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :

Herra forseti. Ég vil taka undir þau orð hæstv. ráðh., að mikil þörf sé á, að Alþ. taki þessi mál til athugunar og ráði fram úr þeim vandamálum, sem með þeim hafa skapazt, en það mun aðallega vera útvegun á fjármagni til þessara framkvæmda. En af þessu er líka auðsætt, að full ástæða er fyrir þeirri till., sem hér er flutt.

Meginhluti af ræðu hæstv. ráðh. fjallaði um þá erfiðleika, sem hann ætti við að etja í þessu sambandi, og því til staðfestingar las hann upp allmargar virkjanir, sem þegar væru hafnar og sumar langt á veg komnar, en væru að stöðvast eða stöðvaðar vegna þess, að ekki hefur tekizt að fá lán til framkvæmdanna. Einmitt þetta sýnast mér sterk rök fyrir því, að þessi mál séu tekin til rækilegrar yfirvegunar og komið í veg fyrir, að slík þjóðþrifamál stöðvist vegna fjárskorts. Ég álít, að þjóðin sé ekki svo fátæk, að ástæða sé til að leggja árar í bát, og þó að þessar framkvæmdir séu dýrar, þá held ég, að það sé enn þá dýrara að fresta þeim og það geti haft slæmar afleiðingar.

Hitt er svo annað mál, sem gæti gefið ástæðu til umr., að lánsstofnanir landsins virðast ekki hafa mikinn áhuga á að lána fé til þessara framkvæmda. Ég ætla ekki að fara langt út í það mál, en vil hins vegar benda á, hvort sú stefna, sem gert hefur vart við sig hjá lánsstofnunum í þessum málum og þar á meðal hjá þjóðbankanum, sé holl eða vel fallin til þess að greiða fyrir mikilvægum framkvæmdum. Mér virðist stefnan hættuleg og að það kunni að sýna sig, að nauðsyn verði fyrir löggjafarvaldið að taka fram fyrir hendurnar á þessum stofnunum og samræma starfsemi þeirra við þarfir atvinnulífsins og þjóðarinnar.

Nokkur undirbúningur mun hafa farið fram við þessar fyrirhuguðu virkjanir. Mér er t. d. kunnugt um, að veittur hefur verið erlendur gjaldeyrir til jarðvegsrannsókna í þessu sambandi, en hins vegar mun ekki enn hafa verið veittur gjaldeyrir til þess að hægt væri að semja við Bergdal verkfræðing. sem hér hefur verið, um endanlega áætlun um verkið, og mér hefur verið tjáð, að ef þetta leyfi fengist ekki fljótlega, þá mundi verkfræðingurinn ekki bíða, en það gæti haft alvarlegar afleiðingar, meðal annars dregið verkið mjög á langinn. Ég vil því sérstaklega óska eftir, að ríkisstj. beiti sér fyrir því, að slík atriði tefji ekki málið.

Þá talaði hæstv. ráðh. um, að enn væri óráðið, hvernig eignarrétti yrði hagað á þessum veitum, hvort þær mundu verða eign ríkis eða bæja, og taldi hann, að í því máli væru mörg og flókin atriði. Ég geri ráð fyrir, að þetta sé alveg rétt, og einmitt þess vegna tel ég þörf á að athuga þau atriði nú þegar, svo að þau tefji ekki framkvæmdir, þegar þar að kemur.

Við Laxá mun undirbúningur það langt kominn, að næst liggur fyrir að bjóða verkið út, en til þess að það sé hægt, þarf fjárfestingarleyfi að vera fyrir hendi, því að öðrum kosti væri slíkt útboð ekki tekið alvarlega. Það er því nauðsynlegt, að ríkisstj. hlutist til um að fá þetta fjárfestingarleyfi, t. d. á næstu tveimur árum. Eins og kunnugt er, tekur það langan tíma að fá efni og vélar og þess vegna nauðsynlegt að panta þær fyrr en síðar.

Ég vænti þess, að fjvn. athugi þetta mál, og vil vona, að hún komist að sömu niðurstöðu og ég um nauðsyn á að hraða þessum framkvæmdum eftir því. sem föng eru á.