05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í D-deild Alþingistíðinda. (3429)
19. mál, benzínskömmtun og söluskattur af benzíni til einkabifreiða
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Út af fyrirspurn um till. okkar hv. þm. N-Ísf. varðandi sölu benzíns, þá er það mér að kenna, að n. hefur ekki enn afgr. till. N. skrifaði um málið til skömmtunarskrifstofu ríkisins, og hefur n. borizt svar hennar, og er svarið jákvætt. N. skrifaði einnig fjárhagsráði, en það, eða meiri hl. þess, eins og segir í svarinu, mælir ekki með till. að svo stöddu. Nú er það mér að kenna, að ekki hafa farið fram umr. um málið, en með því er ekki verið að reyna að svæfa það, heldur hef ég viljað fá svör frá fleiri aðilum um málið, og hv. meðflm. minn getur því verið rólegur þess vegna.