17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í D-deild Alþingistíðinda. (3472)

29. mál, áfengisnautn

Jónas Jónsson:

Það er utan dagskrár, herra forseti. Ég ætla aðeins, sérstaklega út af því, að það stendur til gleðskapur þm. eftir örstuttan tíma, og í sambandi við ræðu hv. þm. N-Ísf., taka fram, að meðan ég er á þingi, ef það kemur fyrir í samkomum þm., að einhver af þingbræðrum mínum er ölvaður, þó að það sé forseti, og ætlar að rífa föt eða berja menn, mun ég kalla á lögregluna hvenær sem er. Þetta vil ég tilkynna hv. þm. N-Ísf., ef hann gæti eitthvað af því lært.