05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í D-deild Alþingistíðinda. (3486)
31. mál, sérréttindi í áfengiskaupum
Flm. (Skúli Guðmundsson) :
Herra forseti. Þessi till., sem við flytjum á þskj. 32, er um afnám sérréttinda í áfengiskaupum. Á síðasta þingi var flutt till. um sama efni, en málið kom þá aldrei frá allshn. Mönnum er því nokkuð kunnugt þetta mál frá síðasta þingi, og því er ekki ástæða til að fjölyrða um það. Þingmönnum er öllum ljóst, hvað hér er á ferð, og skýringar í langri ræðu eru því með öllu óþarfar. Að mínu áliti virðist ekki þörf á að vísa þessari till. til nefndar nú, en ef þingmenn teldu það betur við eiga, tel ég réttast að vísa henni til allshn. og fresta þá umr. En verði till. vísað til þeirrar nefndar, vildi ég mega vænta þess, að hún afgreiddi málið nú, en léti það ekki daga uppi, eins og það gerði í allshn. á síðasta þingi.