22.01.1948
Neðri deild: 44. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (349)
51. mál, tekjuskattsviðauki 1948
Forseti (BG) :
Ég get því miður ekki gefið upplýsingar um það, hvort fundur verður haldinn um þetta mál í hv. Ed. í kvöld eða ekki. Ég hygg, að hæstv. ríkisstj. óski eftir að hraða afgreiðslu málsins, og vildi ég því gjarnan heyra álit hæstv. fjmrh. um það, hversu mikið kapp hann leggur á að hraða afgreiðslu þess.