26.11.1947
Sameinað þing: 25. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í D-deild Alþingistíðinda. (3497)

34. mál, eignarnám lóða vegna Menntaskólans í Reykjavík

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :

Herra forseti. Vegna fyrirspurnar hv. þm. S-Þ. þá mun ég nú segja hér nokkur orð. — Það liggur í augum uppi, að að svo miklu leyti sem bærinn hefur bundið sig, þá veitir erfðafesturétturinn, sem keyptur var, ekki nema skilorðsbundinn rétt, þannig að bæjarstj. mundi hafa rétt til þess að taka landið hvenær sem er til sinna nota.

Ég hef því miður ekki öll plöggin um þetta mál í höndunum nú, en ég veit ekki betur en að bæjarstj. væri búin að samþykkja, að skólinn skyldi reistur í Laugarnesi, og þess vegna var samkomulag um, að það land, sem bærinn keypti þarna, skyldi ekki notað til annars. Síðar gerðist það svo í málinu, að útvegsmenn í bænum bentu á, að einmitt þessi staður væri hentugur fyrir fyrirhugaða geymsluskála og aðrar byggingar varðandi sjávarútveginn, og fleiri komu með till. í þá átt, að þetta land yrði notað til þess. Ég hygg, að flestir eða allir hafi verið sammála um það, að Laugarnes væri sá bezti staður, sem til var einmitt til þessa, og ég veit ekki til þess, að neinn ágreiningur hafi orðið milli bæjarstj. og ríkisstj. út af því, að landið var afhent ttl þessara nota. Bent hefur verið á Golfskálahæðina sem hentugan stað fyrir menntaskóla, og ég held, að það hljóti að vera auðfundinn staður, sem sé jafngóður og Laugarnes, og ég fyrir mitt leyti álit, að það sé beinlínis vandfundinn verri staður fyrir skólann heldur en einmitt inni í Laugarnesi. Engu að síður samþykkti ég þó, að bæjarstj. leyfði ríkisstj. að byggja skólann þarna, ef hún vildi, því að ég áleit, að ríkið réði þessu, en bæjarstj. ætti ekki að vera að streitast við ríkisstj. út af, hvar skólinn ætti að vera, og með því ef til vill að tefja nauðsynlegan framgang málsins. Helzt vildi ég, að skólinn yrði kyrr á sínum gamla stað. Þrátt fyrir það vildi ég gjarnan greiða götu ríkisins í að finna góðan stað fyrir skólann, ef endilega á að flytja hann.

Ég verð að játa það, að ég hafði ekki gert mér verulega glögga grein fyrir þessu máli fyrr en nýlega, að ég las greinar eftir þá Einar Magnússon og Sigurkarl Stefánsson, en eins og kunnugt er. þá eru þeir báðir kennarar við skólann. Þeirra till. finnast mér þær beztu, sem enn hafa komið fram í þessu máli, og virtust mér þær svo eðlileg og sjálfsögð lausn á málinu, að mér fannst næsta undarlegt, að engum skyldi fyrr hafa komið þær í hug. Þeir stinga upp á því, að skólinn verði kyrr á sínum gamla stað, en seinna verði reistur einhvers staðar á góðum stað nýr skóli, en hann verði miklu minni en sá, sem nú er í ráði að reisa. Mér virðist þetta vera hin rétta lausn. En hvað viðvíkur því að ráðast nú í að byggja þennan stóra skóla, sem mikið hefur verið talað um, þá verð ég að segja það, að mér finnst það mikið óráð, þar eð langur tími hlýtur að líða, þar til hann gætt bætt úr hinni brýnu húsnæðisþörf skólans. Annars má segja, að hin mesta kyrrstaða hafi verið á þessu máli. Skólameistara menntaskólans á Akureyri hefur tekizt með hjálp ríkisins að auka húsakynni skólans allmjög, en á sama tíma hefur allt verið í athafnaleysi hér syðra um aukin húsakynni til handa menntaskólanum hér, og ennþá er enginn skriður kominn á málið. Alltaf þegar til framkvæmda hefur átt að taka, rákust menn á það, að hugmyndin um hinn nýja skóla var svo ógeðfelld, að það varð að hverfa frá henni. Það hafa oft verið leidd rök að því, að skólann ætti að hafa á sama stað, en sá staður er af allflestum viðurkenndur bezti staðurinn, og ég fyrir mitt leyti get hvergi í bænum fundið betri stað né heppilegri, og allar þær ástæður og rök, sem komið hafa fram gegn því, virðast mér næsta léttvæg. Auk þess mæla hinar sögulegu minningar, sem tengdar eru við menntaskólahúsið gamla, á móti því, að skólinn sé fluttur. Það eru áreiðanlega fá hús, sem merkilegri eða hugljúfari minningar eru tengdar við, og í okkar þjóðfélagi, þar sem svo lítið er um erfðavenjur, virðist mér vera fjarstæða að kasta á glæ þeim mikla menningarauka, sem fólginn er í þessum minningum.

Mér finnst það eins og æðri handleiðsla, að enn skuli ekki hafa tekizt að koma flutningi skólans lengra á veg, og ég hygg, að það hljóti að verða niðurstaðan, að skólinn verði áfram þar, sem hann er, og að keyptar verði nálægar lóðir undir auknar byggingar fyrir skólann. Því, sem hv. þm. S-Þ. hefur nú vakið máls á, hefur hann fyrr stungið upp á, en ekki haft dugnað né harðfylgi til þess að koma því lengra á veg, og er það ótrúlegt um jafnduglegan mann og þessi hv. þm. er í raun og veru. Hann vakti athygli á þessu árið 1930, en þá vildi hann ekki, að ríkið legði í þessar framkvæmdir. Ef hann hefði þá verið fúsari til þess, þá stæðu þessar byggingar líklega nú sem óbrothættur bautasteinn um atorku hans og framsýni.

Nú vildi ég benda á það, að kaupa mætti lóðir þær, sem hér ræðir um, smám saman. Nú eru sum húsin, sem þarna standa, þannig, að vei mætti nota þau í þarfir skólans til bráðabirgða, t. d. hús K. F. U. M. Það er að vísu ekki sem fullkomnast né bezt, en vel gæti það bætt úr húsnæðisvandræðum skólans að nokkru leyti, þar til betur úr rætist.

Hv. þm. S-Þ. var að spyrja um, hvað bærinn hafi gert í þessu efni. Ég vil benda hv. þm. á það. að það er ekki fyrst og fremst bærinn, sem á að fjalla um þetta mál, og ég hef alltaf haldið þeirri stefnu, að bærinn færi ekki að taka á sig neinar aukakvaðir, því að hann hefur nóg samt. Þrátt fyrir þetta þá veit ég, að vænta má fullrar samvinnu við bæinn um mál þetta. T. d. hefur bærinn sýnt áhuga á, að eignast olíulóðina bak við skólann og verið þess fýsandi, að ríkið fengi þessa lóð handa skólanum, ef það vildi.

En ef kaupa á lóðir fyrir 5 millj. kr. og rífa niður hús í því augnamiði að koma upp skólanum, þá virðist mér, að þessu nauðsynlega og aðkallandi máli sé stefnt í hættu, í stað þess að kaupa lóðir smám saman og byggja við og auka húsnæði skólans sem skjótast. Að vísu yrðu þær skólabyggingar ekki jafnglæsilegar og sú bygging, sem nú er í bígerð, en það er líka langur tími, þangað til hún yrði fullgerð og nothæf.

Ég lýsi ánægju minni yfir því, að hæstv. menntmrh. hefur nú hreyft þessu máli, og gæti það orðið stuðningur þáltill. þeirri, sem hér liggur fyrir, varðandi málið í heild.