26.11.1947
Sameinað þing: 25. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í D-deild Alþingistíðinda. (3541)
46. mál, vinnuhælið á Litla-Hrauni
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. Eins og ég gat um í fyrri ræðu minni, þá var sú skoðun látin í ljós, að vinnuhæli skyldi ekki komið fyrir mitt á meðal annarra borgara. En hv. þm. S-Þ. vitnaði hér til merks lögfræðings og fyrrv. þm. Árn., og er ég hlessa á því, að hann skyldi ekki geta fyrr um þetta, en hann hefur nú varla getað um þetta dæmt, því að hvorki var hann búsettur á Eyrarbakka né vistmaður á Litla-Hrauni, svo að hann hefur ekki fengið reynsluna. (JJ: Þetta var ágætur Árnesingur og bjó á Eyrarbakka.) Það kann að vera, en ekki á Litla-Hrauni. Sleppum nú því, en varðandi hin mörgu verkefni, sem finna má á Litla-Hrauni, þá er það alveg rétt hjá flm. Vikurvinnslan er merk, hvort sem hún er fangin eða frjáls. En þótt það sé nú gott og blessað, þá væri þessi atvinnugrein ágæt fyrir hinn frjálsa lýð, að honum yrði gerður opinn aðgangur að vikrinum. Þá yrði þessi atvinna ekki einungis fyrir fanga, en skapaði meiri atvinnu fyrir Eyrbekkinga sjálfa. Ég vil nú ekki fara að leiða þessa hlið málanna inn í deilur hér, en tilefni mitt var það eitt að minna á þáltill., sem samþ., var hér á Alþ. Í till. þeirri, sem hér liggur fyrir, er ekkert minnzt á þetta. En mér finnst einmitt eins konar stuðningur í því, að í annarri till. til þál., sem sami hv. flm. hefur komið fram með, er því haldið fram, að svona stofnun eigi að vera á heldur afskekktum stað. Ég á við till. hans um hæli fyrir áfengissjúklinga í Ólafsdal. (JJ: Þar er húsið til.) Það er bezt fyrir þetta vesalings fólk, sem þarf að vera undir læknishendi, að það sé afsíðis, eins og gert er ráð fyrir í till. þm. um Ólafsdal, og ég álít, að þessu svipi hvoru til annars, þótt ég geri hvorugt að játa eða neita, að Ólafsdalur sé vel til þessa fallinn. Ég hef bara viljað minna á þau rök. sem ég hef vakið athygli á.