19.11.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í D-deild Alþingistíðinda. (3573)

63. mál, fæðingardeildin í Reykjavík

Flm. (Jónas Jónsson) :

Ég býst við, að það verði ekki miklar umr. um þessa till., hún er svo sjálfsögð. Eins og tekið er fram í grg., er nú lokið við fyrir nokkru stórhýsi, sem landið og Reykjavíkurbær hefur byggt, fæðingardeildina á landsspítalalóðinni, og þessi stofnun er svo nauðsynleg, að mér er sagt, að það komi fyrir nú suma daga, að það sé beðið um pláss á landsspítalanum fyrir 7 konur, en ekki sé hægt að taka neina þeirra. Nú stendur þannig á, að það mun vanta eitthvað lítils háttar af gjaldeyri til þess að fullgera þetta hús, það vanti húsbúnað og lyftu, sem ekki er til. En það er hverfandi lítið, sem þarf til þess að gera húsið nothæft, og á því er svo mikil nauðsyn, að heilbrigðisstjórnin verður heldur að setja bráðabirgðahúsbúnað í húsið, ef ekki fengist varanlegt og gott efni, heldur en að láta það vera ónotað. — Nú mun hafa staðið nokkuð í stappi milli þeirra, sem með þetta eiga að fara, um það, hvort eigi að hafa sérstakan forstöðumann við fæðingardeildina eða hvort hún eigi að heyra undir landsspítalann. Mér fannst rétt, að reynt yrði að skera úr þessu, og lagði því til, að deildin heyrði undir landsspítalann. Það má segja, að það sé ekki stórt atriði, hvort deildin heyrir beint undir heilbrigðisstjórnina eða undir prófessorinn í skurðlækningum við landsspítalann. Það hefur komið fram hjá einum þm. brtt. um þetta, og hef ég ekkert um það að segja. Aðalatriðið er, að till. verði samþ., annaðhvort eins og hún er orðuð frá mér eða með brtt.

Ég vildi svo óska eftir því, að hæstv. heilbrmrh. segði nokkur orð um það, hver er afstaða stj. í þessum efnum og hvort þetta er ekki svo sjálfsagt mál, að leggja beri áherzlu á að koma þessu í framkvæmd. — Ég vildi svo skjóta því til hæstv. forseta, hvort ástæða er til að vísa þessu máli til n., en ef það fer til n., þá vil ég óska, að það verði afgr. fljótt, því að það er til minnkunar fyrir alla, fyrir landsspítalann, þingið og þjóðina, að hafa þetta eins og það er.