19.11.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í D-deild Alþingistíðinda. (3576)

63. mál, fæðingardeildin í Reykjavík

Flm. (Jónas Jónsson) :

Ég held, að það hafi ekki verið vanþörf á að hreyfa þessu máli hér, m. a. hefur komið fram mikill skoðanamunur á milli hæstv. menntmrh. og hv. 2. landsk. (KTh), en hæstv. menntmrh. á sinn drjúga þátt í því, að svo hörmulega hefur tekizt til, að þessu máli hefur enn eigi verið ráðið til lykta á viðeigandi hátt, og því mætti hv. 2. landsk. vera mér þakklát fyrir að hreyfa þessu máli. (KTh: Ég er það.)

Varðandi hæstv. menntmrh. þá hefur hann nú haft þetta mál til meðferðar í 8–9 mánuði, og ætti því að vera farið að draga að fæðingu, og ætti hann nú að gefa hv. d. upplýsingar um, hve mikið fé það er, sem ekki hefur fengizt yfirfært vegna fæðingardeildarinnar. Hv. þm. Barð. gat þess, að nýlega hefðu verið fluttir inn 100 bílar fyrir dollara, og virðist ekki hafa vantað gjaldeyri til þess innflutnings, þó að ekki sé til gjaldeyrir handa fæðingardeildinni. Ég vil segja það, að náttúrlega er lítill gjaldeyrir til, en í því sambandi vil ég minna á það, að í Landsbankann hefur enn þá ekki komið eyrir af dollurum í sambandi við flugvöllinn, en flugvöllurinn í Keflavík á að gefa 10 millj. kr. á ári í dollurum, í fyrsta lagi fyrir lendingar flugvéla, í öðru lagi fyrir kaup íslenzkra manna, er þar vinna, og í þriðja lagi fyrir íslenzk matvæli. Þessum dollurum er að miklu eytt í eftirlitslaust ferðaflakk með amerískum vélum. Hæstv. ráðh. ætti að athuga, að stj. lofaði þessum peningum. Hér er ekki um lítinn gjaldeyri að ræða, og þessi mál heyra undir hann, og ef hann skortir gjaldeyri, þá vil ég benda honum á það úrræði að stöðva þetta ferðaflakk.

Hæstv. ráðh. gaf í skyn, að óþarft væri að ræða þetta mál mikið hér, en ég tel tíma þingsins betur varið til þess en í umr. um sum önnur mál, sem tekið hafa viku af þingtímanum hvert, eins og t. d. umr. um flugvöllinn og ölið, hvort tveggja þýðingarlaus mál, og er eitthvað skemmtilegra að taka mál hér til meðferðar, sem hafa gildi fyrir alla þjóðina, í stað orðavaðals um gersamlega þýðingarlaus mál. Það, að ráðh. hefur legið á þessu máli í 8–9 mánuði, er óhafandi og til minnkunar fyrir hann og landlækni og að líkindum fyrir einhverja prófessora landsspítalans. Þessa till. mína ætti að samþ. hér orðalaust til þess að sýna, svo að ekki verði um villzt, að hvorki ráðherra, landlækni né prófessorum líðist lengur að fara með þetta mál eins og þeir hafa gert.

Þá vík ég að brtt. Það er síður en svo af vantrausti á Guðmundi Thoroddsen, að gert er ráð fyrir í till. minni, að hann verði forstöðumaður deildarinnar, enda væri ekki gott að koma því saman, og það er óþarfi af hv. 2. landsk. (KTh) að bregða mér um ósanngirni við hann eða önnur ættmenni hennar við landsspítalann, en fyrst hún gefur tilefni til, má rifja upp sögu landsspítalans. Á fyrstu þingum Jóns Sigurðssonar vildi hann koma á spítala í Rvík, en þáverandi landlæknir var á móti því og taldi þess ekki þörf, bærinn væri lítill og þurrabúðarmenn gætu bara legið heima, þegar þeir væru veikir. Síðan var ekkert gert í málinu af hálfu Íslendinga um langa stund, en kaþólskir byggðu spítala í Landakoti. Læknastéttin virðist ekki hafa haft neinar framkvæmdir í málinu, en er konur fengu kosningarrétt, tóku þær, í minningu um þessa réttarbót sína, að safna fé til landsspítalans með miklum dugnaði, og þegar fyrsta konan situr á Alþingi 1923, Ingibjörg H. Bjarnason, flytur hún frv. um landsspítala, sem flokksmenn hennar stöðva, af því að þeim þykir of dýrt að leggja í þessa framkvæmd. En þá tekst samstarf milli mín og hennar á nýjum grundvelli, að byggður sé einn þriðji hluti þess spítala, sem hún hafði upphaflega hugsað sér, og bænum gert að skyldu að leggja honum til heitt vatn frá laugunum. Læknar gerðu ekkert, og allt var áður í glundroða og vesaldómi og eini spítalinn timburhjallurinn hjá þeim kaþólsku. Þá var það, að þó að ekki væri alltaf gott samkomulag milli okkar Ingibjargar Bjarnason, að ég sagði við hana: Hvernig væri, að við tækjum höndum saman um að koma þessu máli fram? — Og það gerðum við, og svo komst málið fram. Þetta er þá saga þessa máls. Konur hér í bænum fengu mikil samskot, sem þær lögðu fram, en bærinn gerði ekki neitt. Nokkru seinna fékkst svo peningalán í öðru landi. Ég tel, að þessi hv. læknir, sem talaði hér áðan, hafi ekki fært fram nein rök. Það þýðir ekkert fyrir einn lækni að koma hér og segja okkur þetta og þetta. Nei, nú á að fara að eins og við Ingibjörg Bjarnason fórum að á sínum tíma, í stað þess að láta húsið bíða vegna þess, að rifizt er um, hvort þessi læknir eða hinn eigi að vera forstöðumaður fæðingardeildarinnar.