27.01.1948
Sameinað þing: 37. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í D-deild Alþingistíðinda. (3600)

86. mál, réttindi Íslendinga á Grænlandi

Flm. (Pétur Ottesen) :

Herra forseti. Í grg. þeirri, sem fylgir þessari till., er vitnað til ýmissa sögulegra raka, sem sýna og sanna ótvírætt hið nána samband milli Grænlands og Íslands, sem hélzt óslitið í margar aldir. Grænland fannst og byggðist frá Íslandi af íslenzkum þegnum eingöngu. Á Grænlandi gengu íslenzk lög um margar aldir. Því til sönnunar eru ýmsir staðir. Grágás og fleiri lögbækur og aðrar heimildir staðfesta þetta. Viðskiptasamband var um langan aldur milli landanna. Bókmenntir Íslendinga bera þess ljós vitni, hversu þeir töldu Grænland sér nákomið og sögu þess hluta af sögu síns heimalands. Er það söguleg staðreynd, að íslenzk nýlenda stóð þar um 500 ár, enda hefur Grænland verið talið nýlenda Íslands að fornu og er almennt nefnt svo í ritum útlendum sem innlendum fram á síðustu tíma.

Sú skoðun hefur um langan aldur verið fast mótuð í hugum Íslendinga, að þeir ættu sögulegan rétt til Grænlands, rétt til hagnýtingar á auðlindum landsins, bæði á landi og í sjó. Það er og rótgróin skoðun hér á landi, studd af ummælum og áliti erlendra þjóðréttarfræðinga, að ekkert hafi það gerzt á síðari öldum. er skert hafi eða afmáð þennan rétt Íslendinga til landsyfirráða á Grænlandi þjóðréttarlega séð. Vík ég nánar að því síðar. Eftir að Grænland var numið og byggt af Íslendingum, voru þar um aldir sömu búskaparhættir og á Íslandi. Aðstæður til landbúnaðar og sjávarútvegs eru ekki ólíkar í löndum þessum. Íslendingar eru næstu nágrannar Grænlands af þeim þjóðlöndum, sem hvítir menn byggja. Af þessum ástæðum hafa Íslendingar öðrum þjóðum betri skilyrði til hagnýtingar á náttúrugæðum landsins, bæði á landi og í sjó.

Mér þykir rétt að taka hér upp stutta kafla úr ræðu, sem Jón Þorláksson, fyrrv. forsrh., flutti á Alþ. 1931 í sambandi við þáltill., sem hann bar fram um rétt Íslands til Grænlands, þar sem vikið er að þessum þætti málsins. Jón Þorláksson segir svo:

„Ég þarf ekki að rifja það upp, á hverju það byggist almennt, að Íslendingar láta sig varða um Grænland og telja sig eiga rétt til þess og vænta, að þau réttindi gætu orðið Íslandi til hagsmuna á ókomnum tímum. Ég vil aðeins minna á, að sú hvítra manna byggð, sem verið hefur á Grænlandi, er héðan komin og stóð í nánustu sambandi við okkar þjóðfélag af öllum þjóðfélögum um nokkrar aldir. Enn fremur vil ég minna á það, að Grænland var eitt af þeim þremur löndum úti í Atlantshafi, sem töldust skattlönd Noregskonungs um nokkurt skeið án þess að tilheyra Noregi sjálfum. Þessi lönd fylgdu með, þegar Noregur sameinaðist Danmörku, en urðu svo viðskila við Noreg með friðnum í Kiel 1814. Segja má, að þau afskipti og yfirráð hvítra manna, sem framkvæmd hafa verið á Grænlandi nú á síðari öldum, hafi verið framkvæmd af því ríkjasambandi, sem Ísland taldist til og var einn hluti af.“

Þannig falla Jóni Þorlákssyni orð um þetta atriði málsins. Síðar mun ég svo víkja nánar að ummælum hans í sambandi við rétt Íslands til Grænlands.

Í grg. þessarar þáltill. er að því vikið, að Íslendingum hafi lengstum verið það vorkunnarmál, þótt þeir gerðu ekki gangskör að því að krefjast réttar til atvinnurekstrar og yfirráða á Grænlandi. Stöðu Íslands var svo háttað til ársins 1918, að vér Íslendingar höfum fyrst þurft að leita réttar sjálfra vor til fullra yfirráða í landi voru. Það var því fyrst eftir 1918, sem segja má, að Íslendingar hafi haft aðstöðu og olnbogarými til þess að leita réttar síns í þessu efni, þess réttar, sem í salti hefur legið um ár og aldir. Þótt aðstaða Íslendinga til beinna athafna í þessu máli væri sú fyrir 1918, sem hér hefur verið lýst, þá er því engan veginn svo varið, að mál þetta lifði ekki góðu lífi í réttarmeðvitund Íslendinga. Við og við koma, fram á sjónarsviðið boðberar þeirrar stefnu, að Íslendingum bæri strax og færi gæfist að gera kröfur til þess, að þeir mættu endurheimta þessa fornu nýlendu sína. Sá boðberi íslenzku þjóðarinnar, sem mest kvað að um þessa hluti á sínum tíma, var skáldið og hugsjónamaðurinn Einar Benediktsson. Ritaði hann fjölda þróttmikilla og rökfastra blaðagreina um rétt vorn á Grænlandi. Kvaddi hann sér og hljóðs um mál þetta á fundum, bæði á stúdentafundum og við önnur tækifæri. Stúdentar létu mál þetta mjög til sín taka eftir 1918. Árið 1924 gengust stúdentar fyrir því, að haldinn var borgarafundur um mál þetta í Rvík. Var fundur þessi mjög fjölmennur. Meðal ræðumanna á þessum fundi voru Einar Benediktsson, frummælandi, Benedikt Sveinsson, fyrrv. forseti, og Bjarni Jónsson frá Vogi. Var Grænlandsmálið rætt af miklum áhuga á fundi þessum og við góðar undirtektir fundarmanna. Var svo hljóðandi áskorun til ríkisstj. samþykkt í einu hljóði:

„Fundurinn skorar á stjórnina að láta ekkert ógert til þess að halda uppi réttmætum kröfum vorum til Grænlands, hinnar fornu nýlendu Íslands.“

Um þessar mundir eða árið eftir kom Grænlandsmálið til kasta Alþingis. Á árinu 1925 var skipuð þriggja manna n., er falin skyldi athugun á Grænlandsmálinu. Nefnd þessi var fyrst kosin á einkafundi þm., en síðar á þessu sama ári var nefndarskipun í þessu augnamiði ákveðin opinberlega í sameinu þingi. Var Grænlandsmálið um þessar mundir mjög á dagskrá meðal þjóðarinnar, og létu stúdentar ekki sitt eftir liggja, eins og fyrr er að vikið, til þess að slá til hljóðs fyrir aðgerðum í málinu. Síðari hluta ársins 1926 voru haldnir tveir fundir í stúdentafélagi Rvíkur um Grænlandsmálið og á síðari fundinum voru samþykktar tvær till. um málið. Var annarri þeirra beint til Grænlandsnefndar þeirrar, sem Alþingi kaus 1925, og var hún svo hljóðandi:

„Stúdentafélag Reykjavíkur skorar á alþingisnefndina í Grænlandsmálinu að láta til sín taka um kröfur til notkunar réttinda yfir hinni fornu nýlendu Íslands, sem beint verði til ríkisstjórnarinnar á grundvelli söguréttar og þegnjafnaðar eftir sambandslögunum frá 1918.“

Hin samþykktin var áskorun til Alþ. og ríkisstj. og hljóðar svo:

„Stúdentafélag Reykjavíkur skorar á þing og stjórn að hlutast til um að Grænland verði opnað til fullra afnota fyrir Íslendinga.“

Um þessar mundir höfðu risið upp harðvítugar deilur milli Norðmanna og Dana út af yfirráðum á Austur-Grænlandi. Höfðu Norðmenn gert tilraun til þess að kasta eign sinni á töluvert landssvæði á Austur-Grænlandi. Var svo komið gangi þessa máls árið 1931, að Danir höfðu skotið ágreiningsmáli þessu til alþjóðadómstólsins í Haag.

Í tilefni af þessum viðburðum flutti fyrrv. forsrh., Jón Þorláksson, eins og fyrr er getið, svo hljóðandi þáltill.:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að gæta hagsmuna Íslands út af deilu þeirri, sem nú er risin milli stjórna Noregs og Danmerkur um rétt til yfirráða á Grænlandi.“

Þessi þáltill. Jóns Þorlákssonar er rökstudd með þeirri ríkjandi skoðun Íslendinga, að Ísland ætti bæði réttar og hagsmuna að gæta á Grænlandi. Till. þessari var vísað til utanrmn., sem mælti einróma með samþykkt hennar. Utanrmn. skipuðu þá: Ásgeir Ásgeirsson, Jón Þorláksson Bjarni Ásgeirsson, Magnús Torfason, Ólafur Thors, Jónas Þorbergsson og Einar Arnórsson. Magnús Torfason var frsm. n. Afgreiðsla Alþ. á till. fór á sömu lund. Var till. samþykkt með samhljóða atkvæðum og þannig afgreidd til ríkisstj. Jafnskjótt og gengið hafði verið frá samþykkt till. kom ríkisstj. því á framfæri við fasta dómstólinn í Haag, að Ísland teldi sig eiga réttar og hagsmuna að gæta í sambandi við yfirumráðarétt Grænlands í heild og mótmælti skiptingu landsins, en blandaði sér ekki að öðru leyti inn í þessa deilu. Um svipað leyti tilkynnti ríkisstj. utanríkisráðherrum Noregs og Danmerkur skoðun og afstöðu Íslendinga til Grænlandsmálsins eins og hún kemur fram í fyrrgreindri þáltill.

Á síðustu árum hafa þeir atburðir gerzt í Grænlandsmálinu hér á landi, að sjómenn og útgerðarmenn hafa tekið upp skelegga baráttu fyrir því, að einskis verði látið ófreistað til þess, að réttur vor til atvinnurekstrar á Grænlandi og yfirráða þar verði viðurkenndur. Hefur fiskiþingið tvívegis samþykkt mjög ákveðnar till., sem hníga í þessa átt, og Farmanna- og fiskimannasambandið sömuleiðis. Samþykktir annarra félagssamtaka þessara stétta ganga í sömu átt. Með hverju árinu, sem líður, harðnar sókn þessara aðila fyrir því, að hafnar séu án undandráttar aðgerðir af hálfu stjórnarvalda landsins í þessu máli. Íslenzkir sjómenn og útgerðarmenn eru svo gerhugulir og framsýnir menn, að þeim er það ljóst, hvað óskoraður réttur til fiskveiða við Grænland og hagnýting á landi í kví sambandi er þýðingarmikill fyrir fiskveiðar Íslendinga í framtíðinni. Vík ég nánar að því atriði síðar.

Hér hefur verið í stuttu máli bent á nokkur dæmi þess áhuga, sem ríkjandi er meðal Íslendinga fyrir því, að gangskör verði að því gerð að krefjast viðurkenningar á rétti vorum til Grænlands og að málinu verði fylgt eftir þannig, að til skarar skríði.

Er þá enn ótalinn sá þáttur þessa máls, sem ekki er ómerkastur, en það eru fræðirit þau um sögulegan rétt Íslands til Grænlands, sem hinn kunni mennta- og fræðimaður Jón Dúason, dr. phil., hefur ritað og nú er verið að gefa út. Hefur Jón Dúason varið til þess miklum hluta af ævistarfi sínu að viða að heimildum í þessi rit og skrá þau. Er það stórvirki, sem eftir Jón liggur á þessu sviði. Eru rit þessi hin merkustu, og eru fyrir hendi ummæli þjóðréttarfræðinga, sem telja þau þung á metunum sem sönnunargagn fyrir rétti Íslendinga til Grænlands. Hefur Alþ. viðurkennt þetta merka starf Jóns Dúasonar með því að veita nú um nokkurt árabil fé á fjárl. til útgáfu þessara rita. Enn fremur hefur Alþ. veitt fé til þess að þýða rit þessi á enska tungu. Er þetta mjög makleg viðurkenning af hálfu Alþ. til handa Jóni Dúasyni fyrir það þrekvirki og óeigingjarna starf, sem hann hefur hér af hendi innt.

Hvað snertir sögulegan rétt Íslands til Grænlands má enn fremur benda á skarplega og rökfasta ræðu um þetta efni, sem Benedikt Sveinsson, fyrrv. forseti, hélt á Alþ. 1925. Endaði Benedikt þessa gagnmerku ræðu sína með þessum orðum:

„Tel ég þjóðinni það hollt og gagnvænlegt að hafa stór og göfug mál fyrir stafni, þau er tengt geti saman krafta hennar og eflt sjálfstæðismeðvitund hennar. Nóg er til, sem tvístrar og sundurdreifir.“

Þjóðréttarfræðingurinn Ragnar Lundborg, sem er að góðu kunnur hér á landi fyrir það lið, sem hann veitti Íslendingum með ritum sínum, þegar sjálfstæðisbarátta Íslendinga stóð sem hæst, hefur skrifað merkan ritdóm um þann hluta rita Jóns Dúasonar, sem fjallar um sögulegan rétt Íslendinga til Grænlands í fornöld. Ritdómur þessi hefur birzt í íslenzkri þýðingu. Eftir að þjóðréttarfræðingurinn hefur rakið rök Jóns Dúasonar og grannskoðað þau niður í kjölinn, fellir hann um þau þennan dóm:

„Mér virðist að ekki ætti lengur að leika nokkur vafi á réttarstöðu Grænlands í fornöld. Það er íslenzk nýlenda, hluti úr hinu íslenzka, réttarsvæði, „várum lögum“.

Þegar Ragnar Lundborg skrifar ritdóm þennan, höfðu honum ekki borizt rit Jóns Dúasonar um réttarstöðu Grænlands frá því á síðari hluta miðalda og til vorra daga. En um þennan þátt málsins setur þjóðréttarfræðingurinn fram sínar eigin skoðanir, en þær skoðanir hníga á þá lund, að á þessu tímabili hafi að hans dómi engar breytingar orðið á réttarstöðu Grænlands frá því, sem var í fornöld, er hann áður hefur lýst.

„Aðstaða þess,“ þ. e. Grænlands, segir Ragnar Lundborg, „er tímar liðu, væri framkvæmd á annan veg. Stafaði af því, að beitt var ofbeldi. Ofbeldi getur aldrei skapað varanlegan rétt. Ísland hélt alltaf fast við hina sjálfstæðu réttarstöðu sína. Þar sem Grænland kom sem íslenzkt land með Íslandi í sambandið við Noreg og Danmörku, glataði Ísland ekki sínum áður fengna rétti til Grænlands. Það ætti að vera algerlega ljóst mál.“ Ragnar Lundborg segir enn fremur:

„Í hinum nýja sáttmála, sem gerður var 1918 milli Íslands og Danmerkur, var enginn fyrirvari settur um rétt Íslands til Grænlands.“

Um þennan þátt Grænlandsmálsins segir Ragnar Lundborg að lokum, og eru það varnaðarorð hans til Íslendinga í þessu sambandi:

„Ef íslenzka stjórnin skyldi hér eftir taka upp samninga við Danmörku um Grænland eða réttarstöðu Íslendinga þar, er það eftir minni skoðun nauðsynlegt, að Ísland standi fast á sínum sögulegu landsyfirráðum yfir Grænlandi. Það er fastur og öruggur grunnur til framdráttar málstaðar Íslands. Það er mögulegt, að við samninga á þeim grundvelli geti náðst samkomulag til gagns fyrir bæði ríkin. En án fyrirvara um sinn sögulega eignarrétt til Grænlands má Ísland ekki byrja neina samninga viðkomandi Grænlandi, því að það mundi vera hægt að skoða slíkt sem sönnun fyrir því, að Ísland hefði gefið Grænland upp og viðurkennt landsyfirráð Danmerkur yfir því.“

Þær aðvaranir og ráðleggingar, sem felast í þessum orðum hins kunna þjóðréttarfræðings og Íslandsvinar, eru vissulega þess eðlis, að Íslendingar gefi þeim gaum.

Skoðanir Ragnars Lundborgs á því, að sambandslagasáttmálinn frá 1918 rýri í engu rétt Íslands til Grænlands, falla alveg saman við skoðun Jóns Þorlákssonar um þetta efni, er fram kom í ræðu þeirri, sem hann hélt á Alþ. í sambandi við Grænlandstillögu sína 1931, sem áður hefur verið minnzt á. Ummæli Jóns Þorlákssonar, sem að þessu lúta, eru á þennan veg:

„Nú er Ísland orðið sjálfstætt ríki fyrir nokkrum árum, eins og kunnugt er, með góðu samþykki Danmerkur. En þegar sáttmálinn 1918 var gerður, þá var ekkert sérstakt ákvæði sett um það, hvernig fara skyldi með rétt Íslands til Grænlands, og stendur það að mínu viti við það sama sem var áður en sambandslögin frá 1918 voru sett. Ég tel þannig, að auk þess sögulega réttar, sem Íslendingar kunna að eiga vegna sögulegrar aðstöðu í fortíðinni, þá höfum við óhrekjanlegan nútímarétt til Grænlands við hlið Dana vegna sambandsins við Dani, eða hverju nafni sem menn nú vilja nefna þetta.“

Jón Þorláksson segir enn fremur í þessari sömu ræðu:

„Nú, þó að það liggi utan við þetta mál“ (Þar á hann við efni þáltill.), „þá vil ég aðeins skjóta því hér inn í, að ég hef ávallt hugsað mér, að þegar endanleg málalok verða milli Íslendinga og Dana, þegar sambandslögin falla úr gildi, þá sé sjálfsagt, að samningar komi til milli þessara ríkja um afstöðu hvors fyrir sig til Grænlands. Ég hef fyrir mitt leyti ekki ástæðu til að vænta annars en að Íslendingar geti í þessu efni haft góða aðstöðu til þess að halda öllum sínum rétti.“

Um tilgang þann, sem liggur að baki þess, að Jón Þorláksson flutti till. þessa eins og málum þá var komið, segir hann meðal annars:

„Það er þess vegna í fyrsta lagi tilætlun mín með þessari þáltill., að íslenzka ríkisstj. taki eftir þessari deilu og styðji þá skoðun, að Grænland sé ein heild, sem ekki beri að skipta í sundur, og að Íslendingar telji sig hafa rétt umfram aðrar þjóðir til landsnytja á þessu landi.“

Jón Þorláksson er ekkert myrkur í máli um skoðun sína á rétti Íslendinga til Grænlands, þar sem hann heldur því fram, skýrt og skorinort, að Íslendingar hafi rétt umfram aðrar þjóðir á Grænlandi. Jón Þorláksson dregur ekki heldur dul á það, að ganga beri út frá því sem sjálfsögðum hlut, að þegar sambandslögin séu úr gildi fallin og endanleg uppgerð fer fram milli Íslands og Danmerkur við endanlegan skilnað þessara ríkja, þá verði til fullnustu gert út um afstöðu hvors þess fyrir sig til Grænlands. Og Jón Þorláksson er svo bjartsýnn og viss í sinni sök um rétt Íslendinga til Grænlands, að hann hikar ekki við að segja, að hann hafi ekki ástæðu til að vænta annars en að Íslendingar geti í þessu efni haft góða aðstöðu til þess að halda öllum sínum rétti. Þessi ummæli hins gerhugula og vitra manns, Jóns Þorlákssonar, eru — ekki síður en ummæli Ragnars Lundborgs, sem ég hef áður drepið á — mjög athyglisverð og vissulega hvatning og uppörvun fyrir Íslendinga til sóknar og baráttu fyrir þessum málstað.

Mér þykir ekki ástæða til að fara fleiri orðum um þessa hlið þessa þýðingarmikla máls en ég nú hef gert. Það er ljóst af því, sem fram hefur komið við það að rekja nokkuð gang Grænlandsmálsins hér á landi um nokkurt árabil, að allmikið skortir á röggsemi Alþ. og ríkisstj. að undanförnu til þess að þoka þessu máli áleiðis. Á þessu verður nú að verða gagngerð breyting. Alþingi og ríkisstjórn verður nú að taka upp forustu í þessu máli. En jafnframt því, sem ég deili á Alþ. fyrir litlar aðgerðir í þessu máli að undanförnu, þá vil ég taka það fram, að það má engan veginn vanmeta það við Alþ., að það hefur á þýðingarmiklum tímamótum haldið vel og hyggilega á rétti Íslendinga í Grænlandsmálinu, þ. e. þegar sambandslagasáttmálinn var gerður og með samþykkt þáltill. Jóns Þorlákssonar árið 1931.

Nú er mál þetta tekið upp í Alþ. Má nú eigi út af bera um það, að Alþ. geri skyldu sína í málinu og búi það þannig í hendur ríkisstj., að eigi orki tvímælis um það, hvað henni beri að gera til þessa að hrinda málinu áleiðis.

Nú standa yfir samningar milli Íslendinga og Dana í sambandi við sambandsslit ríkjanna. Einn meginþáttur í þeirri uppgerð, sem nú fer fram milli þessara aðila, hlýtur að vera krafa Íslendinga um rétt til Grænlands. Ríkisstjórn vor er sjálfsagður sóknaraðili af hálfu Alþingis og alþjóðar í þessu máli sem og öðrum málum, sem af sambandsslitunum leiðir. Er það vissulega þýðingarmikið og afdrifaríkt fyrir framtíð Íslendinga, hversu ríkisstjórn vorri tekst að fá þessum málum til lykta ráðið.

Er það innileg ósk mín, að andi Jóns Þorlákssonar svifi yfir vötnunum við sókn og málsfærslu ríkisstjórnar vorrar í Grænlandsmálinu og að öll framkoma hennar í því máli verði mótuð af þeirri bjartsýni og sigurvissu um rétt Íslendinga, sem fram kemur hjá Jóni Þorlákssyni, en hann túlkar þar tvímælalaust vilja íslenzku þjóðarinnar. Þá hefur og ríkisstj. meðal annars sterkan bakhjall í sókn þessa máls, þar sem eru hin rökstuddu fræðirit Jóns Dúasonar um réttarstöðu Grænlands að fornu og nýju. Annars er það um Grænlandsmálið að segja, að það er þess eðlis, að ef samningar takast ekki milli Íslendinga og Dana um þá lausn á því, sem Íslendingar geta fellt sig við og eru vel sæmdir af, er sjálfsagt og liggur beint við að leggja málið fyrir alþjóðadómstól og fá þannig úr skorið um deiluatriðið, og verða málsaðilar þá að sjálfsögðu að hlíta þeirri niðurstöðu, sem dómurinn kemst að.

Að lokum vil ég fara nokkrum orðum um það, hvaða þýðingu það getur haft fyrir framtíð Íslendinga, að þeir fái viðurkenndan rétt sinn til Grænlands. Það orkar ekki tvímælis, að hér er um að ræða harla merkilegt og þýðingarmikið atriði í framþróunarsögu hins íslenzka þjóðfélags.

Einhverjir kunna að líta svo á, að Íslendingar séu ekki fleiri en svo, að landskostir séu ærnir heima fyrir til lands og sjávar handa þeim íbúafjölda, sem land vort byggir, svo að við af þeim ástæðum höfum ekki sérlega tilhneigingu til að leita atvinnurekstrar út fyrir landið sjálft. Þó að slíkt megi að ýmsu leyti til sanns vegar færa, eins og nú stendur, þá skyldu menn varlega flíka fullyrðingum um það, að þessu verði svo háttað um alla framtíð. Það er þess vegna eðlileg ósk af hálfu Íslendinga að vilja tryggja sér til varðveizlu þann rétt, sem þeir telja sig eiga til Grænlands, til þess tíma, að Íslendingar þurfi að taka lands- eða sjávargæði þar til notkunar handa sér, en sú þörf getur að höndum borið máske miklu fyrr en marga órar fyrir nú.

Náttúrugæði heimsskautalandanna voru lítils metin áður og fyrr, og afkoma þess fólks, sem þar ól aldur sinn, þótti ekki björguleg. En hugmyndir manna um þessa hluti hafa gerbreytzt á síðari árum. Eftir því sem mannsandanum hefur tekizt að gera sér náttúruna meira og meira undirgefna, hefur það komið í ljós, að náttúrugæðin í hinum norðlægari löndum eru allt önnur og miklu meiri en menn höfðu gert sér hugmynd um. Um Grænland er það vitað, að þar eru náttúrugæði mikil, bæði til lands og sjávar. Fiskveiðaþjóðum, sem stundað hafa fiskveiðar við Grænland, ber saman um það, að þar sé á stundum miklu meiri uppgripaafli en nokkur dæmi eru til annars staðar. Er þó fjarri því, að enn sé vitað um öll þau fiskigrunn, sem vera kunna út frá ströndum Grænlands í austri og vestri, slík óra víðátta sem þar er. Og um það verður aldrei vitað til fulls, fyrr en rekin verður staðbundin útgerð á Grænlandi. Nýjustu rannsóknir fiskifræðinga, sem að slíkum rannsóknum starfa í Norðurhöfum, hafa leitt í ljós með merkingum fiska og á annan hátt, að sami fiskistofn er við Grænlandsstrendur og við strendur Íslands, og miklar og tíðar fiskigöngur séu á milli landanna. Enn fremur hafa fiskifræðingar talið sig geta leitt rök að því, að aðalklakstöðvar nytjafiska, sem veiðast við strendur beggja þessara landa, hafi verið við strendur Íslands, einkum suðurströndina. En reynsla síðustu áratuga virðist benda til þess, að á þessu sé orðin nokkur breyting. Fiskisvæði það við suðurströndina, Selvogsbankinn svonefndi, var lengi talið eitthvert víðáttumesta og þýðingarmesta hrygningarsvæði við strendur þessa lands. Var þetta augljóslega markað meðal annars af því, hvílík óskapa fiskimergð var ávallt á þessum slóðum á hrygningartíma þorsksins. Meðan skútuútgerð var rekin hér á landi, var aðalvetrarvertíðaraflinn sóttur á þessar slóðir og brást aldrei. Eftir að togaraútgerð hófst hér, var hér hið sama uppi á teningnum. Botnvörpungarnir sóttu vertíðarafla sinn á þessi sömu mið, og voru veiðiuppgripin svo mikil þarna stundum í aprílmánuði, að undrum sætti. Nú er sú breyting á orðin á síðustu tveimur áratugum eða rúmlega það, að heita má, að fisklaust sé með öllu á þessu svæði um hrygningartímann og endranær. Fiskurinn, sem áður safnaðist þarna saman til hrygningar, er nú horfinn þaðan, hvað sem veldur. Nú hrygnir hann á öðrum slóðum. En hvar hann hrygnir, er óráðin gáta, og geta fiskifræðingar vorir þar um engin svör gefið. Enn sem komið er hefur hvergi fundizt á Íslandsmiðum á hrygningartímum neitt svipað fiskimagn og áður var á Selvogsbankanum, er bent gæti til þess, að um þýðingarmiklar hrygningarstöðvar nytjafiska sé að ræða. Það er vitað, að sjávarhitinn við strendur Íslands hefur aukizt að undanförnu, og sú getgáta er langsennilegust, að fiskurinn hrygni nú á norðlægari svæðum — máske við strendur Grænlands. Um þetta er allt á huldu.

Það er auðsýnilegt, að samtímis því, sem þessi breyting hefur verið að ske, hefur fiskigengd við strendur Íslands hrakað. Uppgripaaflasvæði togveiða, eins og við Hvalbak út af Eystra-Horni, er nú gersamlega úr sögunni sem fiskigrunn. Þangað leita íslenzkir togarar nú ekki nema endrum og eins og án árangurs. Eina fiskigrunnið, sem telja má, að íslenzkir togarar sæki nú á að staðaldri með árangri, eru Halamiðin svo kölluðu, á straumamótum á hafinu milli Íslands og Grænlands. Má með sanni segja, að þessi mið séu nú, eins og komið er, haldreipi íslenzkrar togaraútgerðar, hvað lengi sem það varir. Aðstaða til fiskveiða á vélbátaflotanum hér er ekki heldur, eins og nú stendur, neitt sérstaklega glæsileg hvað aflabrögð snertir. Það er að vísu ekki beinlínis hægt að segja það, að vetrarvertíðarafli á bátaflotann hafi brugðist að undanförnu, en oft og löngum hefur afli verið næsta tregur miðað við það, sem áður var, og þá geysilegu línulengd, sem lögð er í sjó í hverjum róðri. Á öðrum tímum en á vetrarvertíð er naumast um að ræða, svo að teljandi sé, nokkra þorskveiði á hina stærri báta. Þá er ekki upp á neitt að stóla, sem heitið getur, nema síldveiðina. Þrjú síðastliðin sumur hafa síldveiðar brugðizt hrapallega, og hafa afleiðingar þess, eins og kunnugt er, markað djúp spor á erfiðleikabraut útgerðarinnar. Hefur tvívegis orðið að setja á fót á þessum árum láns- og hjálparstarfsemi fyrir útveginn af þessum sökum. Nú eru í eigu Íslendinga 39 togarar. Auk þess eru í smíðum 14 togarar, og þegar þeir eru komnir til landsins, sem væntanlega verður fyrir næstu áramót, er tala togaranna komin upp í 53. Íslendingar eiga nú 649 vélknúin fiskiskip og báta, þar af 198 50 smálestir og yfir. Allur þessi fiskiskipafloti gerir samanlagt 702 skip, sem eru 55828 rúmlestir.

Mikið af þessum fiskiskipaflota eru ný skip, vel úr garði gerð og fær í flestan sjó. En þau eru að vonum dýr og þarf að aflast mikið á þau, svo að útgerðin geti gefið góða raun og lagt sinn skerf til traustrar fjárhagsafkomu þjóðarinnar.

Ég dreg nú hér fram á sjónarsviðið þetta viðhorf, sem við okkur blasir um hagnýtingu hins mikla fiskiskipaflota Íslendinga á heimamiðum einum saman, til athugunar fyrir þá menn, sem kunna að halda því fram, að óþarft sé að gera því skóna, að Íslendingar þurfi að leita með fiskiskipaflota sinn út fyrir landgrunnið í kringum strendur landsins. Frá mínu sjónarmiði horfir mál þetta allt öðruvísi við. Ég tel það höfuðnauðsyn, að hægt verði að tryggja fiskiskipaflota Íslendinga að einhverju leyti aðstöðu til veiða á Grænlandsmiðum að sumarlagi. Þess vegna er spursmálið um rétt Íslendinga til atvinnurekstrar á Grænlandi ekki einvörðungu framtíðardraumur, heldur blátt áfram aðkallandi úrlausnarefni, sem krefur skjótra aðgerða, og það er með öllu óverjandi að láta lengur en orðið er síga úr hömlu með að nota þau sönnunargögn, sem Íslendingar hafa í höndum til þess að fá rétt vorn í þessu efni viðurkenndan. Án frjáls og óskoraðs réttar til atvinnurekstrar á Grænlandi geta Íslendingar ekki til neins verulegs gagns notfært sér fiskiveiðar á Grænlandsmiðum. Íslendingar geta að vísu sent togara sína þangað ferð og ferð á strjálingi, en fiskibátaflota Íslendinga er með öllu fyrirmunað að nota þær með öðrum hætti en þeim, að reistar séu útgerðarstöðvar í landi, þar sem bezt hentar.

Þetta er nú um þá hlið málsins að segja, sem af því snýr, að Íslendingar öðlist fiskveiðaaðstöðu á Grænlandi. En þar með er ekki allt talið, sem Grænland hefur að geyma. Grænland býr að öðru leyti yfir margs konar gæðum. En mikið skortir á, sökum þess hve landið er lítt kannað, að menn kunni þar full deili á. Þar eru landkostir góðir. Landbúnaður var þar mikill meðan Íslendingar byggðu landið. Útigangur er mikill og góður. Hefur þróazt þar mjög vel fjárstofn sá, sem þangað var fluttur frá Íslandi fyrir nokkrum áratugum, enda hefur íslenzkra manna lengst af notið þar við um leiðbeiningar um meðferð og hirðingu fjárins. Nær þetta íslenzka fé mun meiri þroska og vænleika á hold í Grænlandi en fé í beztu sauðfjársveitum hér á landi. Hreindýr og sauðnaut þrífast ágæta vel á Grænlandi. Þar er gnægð loðdýra og veiði þeirra gagnsamleg. Selir og rostungar eru á ísnum við strendur landsins. Lax og silungur er þar í ám. Talið er, vitað og víst, að málmar séu í jörðu á Grænlandi, járn, kopar, asbest og fleira. Þá hafa sézt merki þess, að þar sé gull og silfur og dýrir steinar. Heil fjöll og eyjar eru þar úr margvíslega litum marmara. Námugröftur er nokkur rekinn á Grænlandi, kol og kryólít. Þar er sögð vera mikil gnægð kola og lögin þykk. Hefur rannsókn farið fram hér á landi á gæðum þessara kola. Er talið, að á Grænlandi séu kol, sem eru til þess einkar vel fallin að vinna úr þeim benzín og olíu. Mætti svo lengi telja. Eins og gefur að skilja, ná rannsóknir á auðlindum Grænlands, enn sem komið er, harla skammt, í þvílíkri víðáttu sem þar er um að ræða og aðstæðum að öðru leyti er háttað. Eru þar enn stór landflæmi, sem aldrei hefur verið drepið niður fæti á, hvað þá heldur meira.

Ég hef nú reifað þessa þáltill. mína um, að ríkisstj. geri nú þegar gangskör að því, að viðurkenndur verði réttur Íslendinga til atvinnurekstrar á Grænlandi og við strendur þess, nokkuð gerr en gert er í grg. þeirri, sem till. fylgir. Vildi ég með flutningi þessarar till., eins og ég hef fyrr vikið að, árétta það, sem Alþ. hefur raunar áður samþykkt, að Íslendingar hefðu réttar og hagsmuna að gæta. í Grænlandi, og jafnframt fá því til vegar komið, að Alþ. legði nú fyrir ríkisstj. að hefjast án tafar handa um það að fá borgið rétti þeim og hagsmunum, sem Íslendingar telja sig eiga tilkall til á Grænlandi. — Legg ég svo mál þetta fyrir Alþingi.