27.01.1948
Sameinað þing: 37. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í D-deild Alþingistíðinda. (3601)
86. mál, réttindi Íslendinga á Grænlandi
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :
Ég vil þakka hv. tillögumanni fyrir að hafa flutt þetta mál. Það er ljóst af samþykktum félaga, er gerðar hafa verið, að almenningur hefur nokkurn hug á málinu. Hver sem niðurstaðan verður, er nauðsynlegt, að málið verði gerhugsað, og það er því gott, að hv. þm. Borgf. hefur hreyft því.
Þess er ekki að dyljast, að í þeim samþykktum, sem sézt hafa um þetta mál, og í þáltillgr. sjálfri, eins og hún liggur fyrir, er nokkur hulda yfir því, hverju skuli halda fram af Íslands hálfu varðandi réttindi Íslendinga til Grænlands. Ég vil fyrst taka fram, að ég held, að ekki geti leikið á því nokkur vafi í hugum okkar, að það væri okkur hagur að ýmsu leyti, ef við hefðum réttindi við Grænland, — ég segi af ásettu ráði ekki yfir Grænlandi, vegna þess að það er nokkuð annað mál og umfangsmeira en ég skuli rekja hér til hlítar, hvort það væri Íslendingum, þegar til lengdar lætur, raunverulegur hagur, ef Grænland heyrði undir þeirra yfirráð. Enda skilst mér ekki, að það sé fram á það farið í þessari þáltill., heldur hitt að gera gangskör að því, að viðurkenndur verði réttur Íslendinga til atvinnurekstrar á Grænlandi og við strendur þess. Ég held, að við verðum allir sammála um það, að okkur væri það hagur, ef við fengjum slíkan rétt viðurkenndan. Ég tek fyllilega undir það, sem hv. þm. Borgf. sagði um það, að fiskveiðar okkar yrðu áreiðanlega betur tryggðar og öruggari en þær eru nú, ef við hefðum heimild til landstöðva á Grænlandi. Og þess vegna skilst mér, að það hljóti út af fyrir sig að vera eftirsóknarvert af okkar hálfu, hvað sem líður réttindum okkar yfir öllu Grænlandi, að fá slíkan atvinnurétt viðurkenndan. Spurningin er þá aftur á móti, með hverjum hætti slíkan rétt ætti að fá viðurkenndan. Ég ætla, að við eigum að reyna að koma honum fram með vinsamlegum samningum við Dani sem nú ráða ríkjum yfir Grænlandi, t. d sem einn lið í norrænni samvinnu, að Íslendingar fengju einhverjar fiskveiðistöðvar við Grænland. Það er hugsanlegt, að menn kunni að fara þessa leið. Og það er líka hugsanlegt, að við hefðum ekki aðra leið að fara en slíka vinsamlega samningaleið, ef niðurstaðan yrði sú, að lögformlegur réttur okkar til yfirráða á Grænlandi öllu eða til atvinnurekstrar þar yrði ekki viðurkenndur af öðrum aðilum, sem um þetta mál mundu fjalla. Eins er hugsanlegt, að við eigum að taka þetta mál upp einnig með vinsamlegum samningum í sambandi við sérstaka samninga okkar við Dani og þá einkanlega í sambandi við óskir þeirra um réttindi sinna manna til fiskveiða við Ísland. Og því hefur oft verið hreyft, að það væri eðlilegt, að ef Færeyingum væru veitt fiskveiðiréttindi hér við Ísland, þá áskildu Íslendingar sjálfum sér í staðinn réttindi við Grænland. Gallinn á því er sá, sem sumir hafa haldið fram, að réttindi Færeyinga hér, þau sem kemur til mála, að Íslendingar veiti, séu svo lítils virði, að menn geti ekki búizt við nema lítilsverðum réttindum frá Dönum í staðinn. En þá er að meta það við samningsborðið, hversu langt Íslendingar vildu ganga í réttindaveitingum hér gegn haldgóðum réttindum sjálfum sér til handa í Grænlandi. Um hvora tveggja þessa leið er það að segja, að með þeim báðum er byggt á því, að Danir eigi fullveldi yfir Grænlandi. Og þeir, sem ráðleggja, að þessar leiðir séu farnar, virðast þá gera ráð fyrir því í huga sínum, að Íslendingar verði að sækja þarna á vinsamlegan hátt, njóta annaðhvort vinsemdar annarra eða þá þess að bjóða önnur hlunnindi í staðinn.
En svo sést þriðja leiðin, sem sumir vilja, að farin sé, sem er sú, að Íslendingar standi á fornum rétti sínum yfir Grænlandi og fái í skjóli hans viðurkennd réttindi eða e. t. v. alger yfirráð yfir Grænlandi. Og þó að till. sú, sem hér er fram flutt, fjalli einungis um rétt Íslendinga á Grænlandi og við strendur þess, þá skilst mér, að í henni sé byggt á þessu síðasta. Það sé ráðgert, að síðast talda leiðin sé farin, sú að halda fram að Íslendingar eigi þarna rétt, sem ranglega sé fyrir þeim haldið, þannig að við þurfum í raun og veru ekki að sækja með lipurð eða vinsemd á í garð þeirra manna, sem nú telja sig eigendur Grænlands, heldur sé einungis það rétta að fara fram með réttindakröfur og heimta í okkar hendur þann rétt, sem við teljum, að við eigum. Og þá skilst mér, að rökrétt afleiðing þess verði að vera sú, sem að vísu nokkurt hik virðist vera með í þessari till., sem hér er fram flutt, að við gerum kröfu til yfirráða á öllu Grænlandi. Og sérstaklega ef Grænland allt væri okkur svo mikið hnoss sem skilja mátti af ræðu hv. flm. að hann teldi, þá undrar mig nokkuð, að hann ekki beinlínis beri fram till. um, að við höldum fram okkar rétti, sem bæði till. hans, svo óljós sem hún er, og hinn greinagóði málflutningur hans virðist benda til, að hann áliti, að við hljótum að eiga. En ég skil það, að hann fer ekki lengra í till., sem merki þeirrar skoðunar hans, að hann telji okkur ekki henta að fá yfirráð alls Grænlands, þótt við eigum rétt til, og er það að vísu líka skiljanlegt sjónarmið, samkvæmt því, sem ég sagði í upphafi orða minna, að um það kynni að verða deilt, þó að ekki væri umdeilt, að við hefðum hag af vissum réttindum við Grænland, þá kynni að verða um það deilt, hvaða hag við hefðum af því að eiga Grænland allt, þó að við ættum tilkall til þess. Og mér skilst, að sá vafi komi fram í tillgr., og að ekki er lengra farið þar en þar er gert, þá held ég, að þessi vafi hljóti að vera því valdandi.
Hv. flm. gerði nú hér ýtarlega grg. fyrir þeim rétti, sem hann taldi okkur eiga yfir Grænlandi eða til Grænlands. Ég skal nú ekki á neinn hátt fara að reyna að hnekkja þeim rökum eða staðhæfingum, sem hann þar flutti. Enda voru þær staðhæfingar ekki, eins og menn heyrðu, lögfræðilegar rökræður, heldur meir tilvitnanir í álit ýmissa merkra manna, sem annaðhvort hafa látið uppi, að við hefðum beinan lagalegan rétt, að við hefðum sögulegan rétt, svo kallaðan, hvað sem í því kann að felast, eða að við hefðum þarna mikilla hagsmuna að gæta. Ég veit, að allt það, sem hv. þm. Borgf. um þetta sagði, er rétt eftir haft. Og meðal þeirra manna, sem hann vitnaði þarna í, eru margir merkir menn, sem vissulega er fróðlegt að vita, hvað hafa um þetta talað. En einmitt vegna þess, að hv. þm. Borgf. byggði upp mál sitt með þessum hætti, þá tel ég rétt hér að benda á, að málið liggur ekki alveg eins einfalt fyrir og ætla mætti eftir orðum hv. flm., þm. Borgf., og að það er ekki eingöngu skortur á skörungsskap eða dug íslenzkra stjórnarvalda, Alþ. og ríkisstjórna, að ekki hefur meira verið aðhafzt í máli þessu en raun ber vitni um, heldur koma þar einnig fleiri ástæður til greina, sem sé þær, að margir engu síður merkir menn en ýmsir þeir, sem hv. þm. Borgf. vitnaði til, og jafnvel menn, sem meir hafa nú lagt stund á að kynna sér lögfræði og ekki sízt réttarsögu en ýmsir þeir virðulegu menn, sem hv. þm. Borgf. færði fram ummæli eftir, máli sínu til stuðnings, þeir hafa þarna annað sjónarmið. Ég skal nú ekki gera hér tilraun til þess að gera hér upp á milli þessara aðila. Ég vil einungis benda á, og það er nauðsynlegt, ef á að gera þetta að alþjóðamáli og íslenzkum stjórnarvöldum er legið á hálsi fyrir að hafa sýnt ódugnað í því, þá er skylda okkar, sem stöndum í forsvari fyrir málum þjóðarinnar, hvort sem er Alþ. eða ríkisstj., að segja þjóðinni og Alþ. skýlaust frá því, hvernig málin standa, — einnig því, sem ætla má, að fært verði fram á móti okkar málstað svo kölluðum, en ekki aðeins hinu, sem er til að styðja trú okkar á því, að málið horfi mun betur við, þó að sumir vilji láta einungis líta svo út sem réttur okkar sé öruggur í þessum efnum. Ég skal ekki á neinn hátt reyna hér að gera lítið úr þeim mönnum, sem hv. þm. Borgf. vitnaði til. Þvert á móti eru, eins og ég sagði, ýmis ummæli þeirra eftirtektarverð og þarf að skoða betur ofan í kjölinn, við hvað fullyrðingar þeirra styðjast, þar sem rökin virðast ekki liggja alveg á yfirborðinu. Ég get þó ekki stillt mig um, þar sem hv. þm. Borgf. vitnaði sérstaklega í ummæli dr. Jóns Dúasonar, að geta um þau rök, sem nú nýlega hafa komið fram frá honum sem kjarni þessa máls, og það er grein í Tímanum 5. janúar 1948. Með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa upp, hvernig þessi gr. byrjar. Hún er eftir Jón Dúason:
„Hvernig öðlaðist Ísland eignar- og yfirráðarétt yfir Grænlandi?
Sjón helgaði rétt í fornöld, og sjón getur helgað rétt enn í dag. En Grænland er sýnilegt frá Íslandi, og hlýtur að hafa verið margséð af Íslandi, áður en það „fannst“.“
Ég verð nú að segja, að hvað sem menn að öðru leyti segja um lögfræðilegar kenningar — og þar má nú mörgu halda fram og byggja á ýmsum fræðikenningum —, þá er þetta ein hin furðulegasta staðhæfing, sem ég hef lesið. Því miður byggir dr. Ragnar Lundborg einmitt á þessari sömu fræðikenningu dr. Jóns Dúasonar í riti, sem nýlega hefur verið gefið hér út, ég held að tilhlutun dr. Jóns Dúasonar, um þetta mál, þar sem safnað er saman greinum og greinarkornum um þetta efni. Ég held, að það þurfi áreiðanlega að færa haldbetri rök að því, að Íslendingar eigi Grænland, heldur en það, að Íslendingar eigi Grænland af því, að það hafi oft sézt frá Íslandi. A. m. k. hafa landatilköll annarra þjóða orðið að styðjast við frekari rök en slík. En þetta virðist mér — og það geta þeir betur séð, sem það kynna sér — vera orðinn aðalkjarninn í rökum dr. Jóns Dúasonar varðandi Grænlandsmálið. Hitt er svo líka, að hann hefur rakið ýmsar gamlar sögulegar tilvitnanir í þessum efnum. Um þær tilvitnanir er það vissulega svo, að margar þeirra benda til þess, að svo kunni að hafa verið, að náið samband hafi verið á milli byggðarinnar í Grænlandi til forna og íslenzka þjóðríkisins, og jafnvel, að Grænland hafi verið hluti af íslenzka þjóðríkinu. Hann og sumir aðrir vilja byggja þá fullyrðingu á þessum tilvitnunum í gamlar heimildir. Í því er þó þess að gæta, að ef við staðhæfum, að grænlenzka byggðin hafi verið hluti af þjóðríki Íslendinga, og ef Íslendingar vilja byggja rétt sinn til Grænlands á fornum lagastöfum, þá verðum við að sanna, að þeir séu svo ótvíræðir, að ekki sé vafi á, að réttur okkar til Grænlands hafi verið fullveldi, þannig að íslenzka ríkið hafi ráðið þar lögum og lofum. Ég skal ekki á nokkurn hátt ræða um það hér, hvort þessir lagastafir benda til þess arna eða ekki, og enn síður, hvort þeir séu fullnægjandi eða ekki, þó að sönnunarskyldan hvíli algerlega á okkur. Hitt vil ég færa fram, vegna þess að það er nauðsynlegt til skilnings á því, að íslenzk stjórnarvöld hafa ekki nú síðustu árin — ekki núverandi ríkisstj. fremur, en undanfarnar stjórnir — né Alþ. verið sköruleg í þessu máli, að það er vegna þess, að mjög mikill ágreiningur er meðal beztu fræðimanna um það, hvað felist í þessum fornu lagastöfum. Það er t. d. alls ekki viðurkennt, að orðin: „í órum lögum“ í Grágás eigi við Grænland. Sumir fræðimenn halda fram, að þau eigi aðeins við Íslendinga. Aðrir telja, að það sé hæpið. Og sumir vilja ganga svo langt að segja, að þetta, þessi orð í Grágás séu sönnun fyrir því, að Grænland hafi tilheyrt Íslandi, þó að Grænland sé aldrei nefnt, þegar sagt er: „Í órum lögum“. Það eru aðeins þau lög, sem um er að ræða, og verður að álykta út frá þeim. Aðrir halda fram, að réttarlíking milli Grænlands og Íslands hafi verið mjög mikil í þá daga, að lög vegna sérstakra atriða, sérstaklega varðandi tvíkvæni, sem þessi 1. taka til, hafi verið svo svipuð í báðum löndunum og menningarsambönd landanna að öllu leyti svo mikil, að þess vegna sé „í órum lögum“ þarna látið ná til Grænlands. Hvað sem um það er, þá geri ég nú ráð fyrir, að töluvert sterkari stoðir þurfi að renna undir landatilkall en svo tvírætt orðalag, sem kemur fram í gamalli lögbók, að það verði að byggja á meiru en því einu, sem þar stendur: „í órum lögum“, að Grænland hafi tilheyrt Íslandi. Ég hygg, að það yrði að byggjast á einhverjum staðreyndum og því, að einhver merki sæjust þess, að Grænlendingar hefðu í framkvæmd verið undir íslenzkum lögum. Og það er ekki hægt að neita því, að því verður haldið fram á móti okkur, að þess sjáist ekki merki. Við verðum að gera okkur ljóst, hverju verður haldið fram á móti okkur. En því verður haldið fram á móti okkur, að ef Grænland hefði verið hluti af Íslandi, þá mundu hafa verið settar skýrari reglur af Alþ. um réttargæzlu af Íslands hálfu á Grænlandi, þannig að ekki þyrfti út frá óljósum lagastöfum að vera með skarpvitrar getgátur í þessum efnum, heldur hlyti það einhvers staðar að koma skýlaust fram. Og hafi Íslendingar haft fullveldi á Grænlandi, þá væri þó furðulegt, að ekki hefðu verið beinar lagareglur settar um stjórn þar, og verður þá að líta á það, að Íslendingar voru engir viðvaningar í lögum á þessum árum, vegna þess að þjóðveldislöggjöf þeirra stendur miklu framar lögum margra þjóða á þeim tíma og er ein merkasta heimild um germanskan rétt frá því tímabili, sem hér er um að ræða. Hefði því verið furðulegt, ef slíkir lögfræðingar, sem um lög okkar fjölluðu á þeim tíma, hefðu látið slíkt atriði fram hjá sér fara, sem réttarfar á Grænlandi hefði verið, án þess að hafa um það sérstök, skýlaus fyrirmæli, ef Íslendingar hefðu ráðið þá yfir Grænlandi. Það hefur líka verið á það bent, að í hinum miklu handritum Íslendinga skuli ekki vera sagt frá ýmsum staðreyndum, sem ekki væru aðeins hæpnar röksemdir, sem vitna mætti til, heldur staðreyndir, sem byggja mætti það á að halda fram, að Grænland hefði verið hluti af íslenzka ríkinu. Nú telur dr. Jón Dúason sig hafa bent á ýmsar staðreyndir, sem til þess bendi í handritunum, en aðrir fræðimenn vilja gera minna úr því. Og ég verð hér að vitna í ummæli langmerkasta réttarsögufræðings, sem mér er óhætt að kalla, sem nú er uppi á Íslandi, próf. Ólafs Lárussonar, sem eru í ritgerð í Andvara 1924, er heitir „Réttarstaða Grænlands að fornu“. Á síðu 63 og 64 stendur í þessari ritgerð svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Eins og sýnt hefur verið hér að framan, sýna heimildirnar, að byggðin forna á Grænlandi var sjálfstætt og fullvalda ríki, óháð öllum öðrum ríkjum, allt fram til 1261, er Grænlendingar játuðust undir vald Hákonar konungs. Frændur okkar á Grænlandi voru, þótt fámennir væru og lífskjör þeirra örðug, öllum óháðir. Sjálfir héldu þeir af eigin rammleik uppi lögum og rétti í landi sínu. Hvorki vér né Norðmenn né neinir aðrir geta með réttu talið land þeirra hafa verið hluta af sínu ríki. Sumir kynnu að ætla, að vegur vor Íslendinga mundi vaxa við það, ef við gætum bent þar á gamlan íslenzkan ríkishluta, ef þar væri íslenzk „irredenta“. En vegur okkar minnkar ekki, þótt vér viðurkennum söguleg sannindi, og þyngri væri ábyrgð vor á hinum ömurlegu örlögum Grænlendinga, ef Grænland væri forn ríkishluti íslenzkur. Og viljum vér gera kröfur til Grænlands nú, þá skulum vér byggja þær kröfur á einhverju öðru en því að umhverfa sögulegum sannindum. Því það hefnir sín.“
Þetta eru ummæli próf. Ólafs Lárussonar, sem ég hygg, að ekki aðeins lögfræðingar, heldur og aðrir telji merkasta réttarsögufræðing, sem nú lifi á Íslandi. Nú veit ég, að margir eru ekki aðeins ósammála þessari grein próf. Ólafs Lárussonar og niðurstöðu hans, heldur beinlínis gramir honum fyrir, og segja, að hann hafi þarna reynt að hafa réttindi af Íslendingum. Ég tel síður en svo ástæðu til að ásaka hann fyrir að segja það, sem hann eftir vísindalega rökleiðslu telur, að rétt sé. En ég bendi á, að það, sem máli skiptir í minni röksemdafærslu, er það, að þetta, að maður eins og próf. Ólafur Lárusson, með þá þekkingu, sem hann hefur, lítur gersamlega öðrum augum á réttarstöðu í sambandi við Grænland til forna en hér hefur komið fram. Það sýnir, hversu örðugt muni reynast okkur að sannfæra aðra um það, sem okkur ber að sannfæra þá um, ef við viljum, að krafa okkar verði tekin til greina um það, að það verði viðurkennt. að við höfum haft rétt til Grænlands á þessum tíma. Því að sönnunarskyldan hvílir á okkur að öllu leyti um það, að við höfum til forna haft rétt yfir Grænlandi, ef við viljum halda slíku fram. Ef próf. Ólafur Lárusson hefur rangt fyrir sér í þessu, þá er ólíklegt, að hann hafi svo rangt fyrir sér, að ekki leiki mikill vafi á því a. m. k., hvert réttarástand hefur verið í þessum efnum til forna. Og ef einhver vafi er á þessu, þá er sá vafi okkur til óhags, vegna þess að sönnunarbyrðin hvílir á okkur.
Það eru fleiri en próf. Ólafur Lárusson af fræðimönnum okkar, sem um þetta hafa ritað, sem hafa svipaða skoðun og hann. Þannig er það t. d. ekkert leyndarmál, að prófessor og síðar hæstaréttardómari Einar Arnórsson skrifaði að tilhlutun ríkisstj. og utanrmn. ýtarlega grg. um Grænlandsmálið í skýrslu, sem er dagsett 7. janúar 1932. Þetta var gert í sambandi við málflutning fyrir Haagdómstólnum út af deilu Norðmanna og Dana um Grænland. Ég hygg, að þessi skýrsla hafi ekki verið birt, og ég sé ekki ástæðu til að rekja hana hér í einstökum atriðum, en árangurinn af skýrslu hans varð sá, að Íslendingar gerðust ekki beinn aðili að málinu í Haag, heldur létu það fram hjá sér fara án þess að leggja þar kröfu fyrir dóminn, og varð þess ekki vart, að ríkisstj. sætti þá ámæli frá Alþingi, meðan mönnum var sú rannsókn í huga, sem þá hafði farið fram.
Þá er á það að líta, að Íslendingar hafa haft ýmiss konar samningaviðskipti við Dani, og það er við búið, að Danir vitni til þess, að ef Íslendingar hefðu talið Grænland vera hluta af Íslandi eða nýlendu þess, þá hefði, þegar þeir samningar fóru fram, orðið að hreyfa málinu frá Íslendinga hálfu eða a. m. k. gera einhvern fyrirvara. Það er að vísu rétt, sem fram kom hjá hv. þm. Borgf., að Íslendingar höfðu fram til 1918 ekki fulla aðstöðu til að krefjast Grænlands af Dönum. Þó er á það að líta, að ef Grænland hefði í vitund Íslendinga verið skoðað sem hluti landsins, þá hefði það fylgt með eins og Vestmanneyjar, Grímsey og aðrir slíkir staðir. En því fer svo fjarri, að nokkru slíku hafi verið hreyft, og við samningsgerðina 1918 var ekki farið fram á Grænland sem hluta af Íslandi eða nýlendu, heldur eingöngu farið fram á að fá fiskveiðaréttindi við Grænland í skiptum við rétt Færeyinga við Ísland. Ég efast ekki um, að Danir muni halda fram, að með þessu hafi Íslendingar sýnt, að þá hafi þeir talið, að Grænland tilheyrði réttilega Danmörku. Í samningunum kom einnig fram sú skoðun af Dana hálfu, að Grænland lyti alveg yfirráðum Dana, og Íslendingar gerðu engan fyrirvara þar á móti. Eins held ég, ef mér er rétt skýrt frá, að við samningagerðina. og eftir þá og ég hygg fram að því hafi því ekki verið hreyft af hálfu Íslendinga, að við ættum yfirráðarétt yfir Grænlandi, heldur hafi eingöngu verið talað um fiskiveiðaréttindi við Grænland í skiptum fyrir önnur réttindi og þá fyrst og fremst rétt Færeyinga hér við land, og að því er ég bezt veit, þá var þessi afstaða samningamannanna íslenzku tekin eftir að flokkarnir hér höfðu áður borið ráð sín saman um þetta og orðið sammála. Og þess er ekki að dyljast, að það verður áreiðanlega bent á þetta sem veiklun á málstað okkar.
Þá vil ég minna á það, sem komið hefur fram í umræðum, að dómur hefur gengið um réttarstöðu Grænlands við alþjóðadómstólinn í Haag 5. apríl 1933, að vísu fyrst og fremst varðandi kröfu, sem Norðmenn gerðu um nokkurn hluta Austur-Grænlands. Íslendingar voru, eins og ég áður sagði, að hugsa um að gerast beinn aðili að því máli, en hurfu frá því ráði að athuguðu máli. Ég efast ekki um, að því verði haldið fram í málaferlum, ef til þeirra kæmi, að Íslendingar hafi þar setið af sér rétt sinn, ef þeir hafi talið hann einhvern vera, með því að bera hann ekki fram í Haag á þessum tíma. Í enska textanum af þessum dómi segir svo á bls. 64, með leyfi hæstv. forseta:
„It follows from the above, that the Court is satisfied that Denmark has succeeded in establishing her contention that at the critical date, namely July l0th 1931 she possessed a valid title to the sovereignty over all Greenland.“
Lauslega þýtt: Nú leiðir af framan sögðu, að dómstóllinn er sannfærður um, að Dönum hefur heppnazt að sanna þá fullyrðingu sína, að á þeim tíma, sem hér skiptir máli, 10. júlí 1931, hafi þeir haft yfirráðarétt yfir öllu Grænlandi. — Með þessu er kveðinn upp dómur alþjóðadómstóls um það, að Grænland lúti lögsögn Dana. — Íslendingar áttu rétt á því að ganga inn í þetta mál, og yfirlýsing þeirra til dómsins sýndi, að þeim var kunnugt um þetta mál. Engu áð síður taldi dómstóllinn, að Dönum hefði tekizt að sanna, að þeir hefðu fullkominn yfirráðarétt yfir öllu Grænlandi.
Nú má segja, að þessi dómur sé ekki bindandi nema um þá tvo aðila, sem þarna áttu hlut að máli. En það væri að ganga blindandi út í leikinn, ef við gerðum okkur ekki fyrirfram grein fyrir því, að Íslendingar tóku ekki beinan þátt í málssókninni eða báru þar fram sínar kröfur, þegar dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu, að Danir hefðu þarna fullkominn yfirráðarétt, og það hlýtur að verða mjög til að veikja kröfur okkar. Ástæðan til þess, að Íslendingar tóku ekki þátt í málssókninni, var auðvitað sú, að þeir að athuguðu máli þá töldu hagsmunum landsins bezt borgið með því að skipta sér ekki frekar af málinu. En úr því að þeir tóku þessa afstöðu og dómstóllinn komst að þessari niðurstöðu, sem ég hef vitnað til, þá sé ég ekki gagn að því, að um það sé þagað, að aðstaða okkar er fyrir það veikari en áður, en sterk rök fyrir Dani til viðbótar við þann rétt, sem þeir höfðu.
Ég skal ekki rekja frekar þau atriði, sem fram hafa komið og benda til, að þetta mál verði ekki eins auðsótt af okkar hálfu og margir hafa viljað vera láta.
Ég vil taka fram, að ég er með þessu á engan hátt að segja frá eigin brjósti, hvað rétt er eða rangt. Ég tel, að um það megi deila, hver réttur hinnar fornu nýlendu hefur verið og í hverju skyni bygging Grænlands hefur verið nýlenda Íslands. En þó að ég vilji ekki segja neitt af minni hálfu á þessu stigi málsins, þá tel ég, að nauðsynlegt sé, að hv. þm. viti, að það eru mjög mikilvæg rök, sem hníga á móti þeirri rökfærslu, sem hv. þm. Borgf. hefur borið hér fram, og að Íslendingar loki ekki augunum fyrir þeim þungu gagnrökum, sem fram hafa verið færð af hinum færustu mönnum og ríkisstj. og Alþ. hafa fallizt á og hagað sér eftir, því að einmitt það, að við höfum ekki sótt þetta mál öll þau ár, sem liðin eru síðan 1918, sýnir, að íslenzk stjórnarvöld hefur skort trú á réttmæti þessarar fullyrðingar, þegar á hefur átt að herða.
Ég tel hins vegar mjög gott, að þetta mál hefur verið borið hér fram. Ég tel mjög nauðsynlegt, að það sé rætt frá báðum hliðum og menn geri sér grein fyrir, hvað við getum fært fram máli okkar til styrktar, vegna þess að rétt athugun á þessu máli hlýtur að leiða menn til ákvörðunar á því, hverja af þeim þremur leiðum, sem ég nefndi í upphafi máls míns, við skulum ganga. Það er vissulega einföld lausn þessa máls, ef hún dugir, sem dr. Jón Dúason heldur fram, að menn varpi augum sínum á einhvern hlut, og þá sé hann þeirra eign. Ég hygg, að sú aðferð væri að sumu leyti ekki heldur æskileg fyrir okkur Íslendinga, því að þá er hætt við, að einhverjir kynnu, þegar tímar líða, að seilast á þann hátt til okkar lands. Þessi leið er of fjarstæð til að geta haft þýðingu í þessu máli.
Ég tel, að í þessu máli gæti enn að nokkru þess eðlilega baráttuhugar, sem í okkur var gagnvart Dönum, meðan við áttum óuppgerðar sakir við þá varðandi sjálfstæði okkar og þeir sátu yfir okkar hlut. Þá var eðlilegt, að við héldum fram okkar ýtrustu kröfum í öllum efnum og legðum oft á tæpasta vað til að geta loks náð því, sem mestu máli skipti. Það er enginn vafi, að þetta var rétt aðferð þá. En nú, þegar við höfum slitið öll stjórnmálaleg tengsl við Dani, þá tel ég, að skipti miklu, að við breytum um aðferð í þessum efnum, þar sem það er okkar hagur ekki síður en Dana, að Íslendingar og Danir geti haft góð samskipti saman. Og það vita allir, sem fylgzt hafa með málum á alþjóðlegum vettvangi og hugarfari milli þjóða, að fáar þjóðir eru svo líklegar til vinsamlegrar samvinnu og Íslendingar og Danir. Ég tel þetta gleðilegt tímanna tákn, og ég tel, að Íslendingar eigi að nota sér þessa auðsæju aðstöðu til vináttu, sem við getum haft við Dani sem við aðrar þjóðir. Að vísu situr það í sumum Dönum, sem eru miður málum kunnugir, að við fórum úr sambandi við þá. Það er minnimáttarkennd hjá þeim, sem upprætist áður en varir, og þá vil ég vona, að frá þeirra hálfu verði sama hugsun og nú er frá öllum ráðandi mönnum Dana, vinarhugur til Íslands og góðvilji, og sama tel ég, að við eigum að sýna, án þess þó að slaka á þeim rétti, sem við eigum. En við verðum í eitt skipti fyrir öll að gera upp við okkur, hvaða kröfur við eigum og ætlum að halda til streitu. Við eigum ekki að halda fram og ekki vera með kröfur, sem kannske fáir, kannske 1–2, kannske 10 menn trúa á, en hinir leiða hjá sér með góðlátlegu glotti og höfuðhristingu, og láta líta út sem það séu alþjóðlegar kröfur. Ég segi ekki, að þessi sé afstaðan í Grænlandsmálinu. Ég veit, að margir góðir menn hafa þá tilfinningu, að þarna eigum við rétt, þó að ég því miður verði að segja þann sannleika, að sá maður, sem verður að telja Íslendinga fremstan í þjóðréttarfræði, hafi komizt að þeirri niðurstöðu, sem ég áður minntist á. Málið verður okkur til vandræða, ef svo fer, að við förum að koma með óljósar kröfur, án þess að við gerum okkur ljóst, hverjum þeirra við ætlum að fylgja fram með fullri alvöru. Ég tel því ágætt, að hinn skeleggi baráttumaður, hv. þm. Borgf., skuli hafa flutt málið, svo að utanrmn., ríkisstj. og Alþ. geti látið fram fara á því þá athugun, sem er nauðsynleg til þess. að við komumst þar allir á sameiginlegan grundvöll.
Ég taldi skyldu mína að benda á þá annmarka. sem á leið okkar eru, vegna þess að hv. þm. Borgf. var svo bjartsýnn á það. Ég hef ekki gert nema að rifja upp staðreyndir, sem fyrir hendi eru í málinu, og álit og skoðanir hinna færustu manna. Við nýja athugun getur verið, að menn finni nýjar leiðir og rök, sem gætu leitt til þess, að við fengjum viðurkenndan, sem æskilegt væri, einhvern fiskveiðirétt við Grænland.