24.03.1948
Sameinað þing: 62. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í D-deild Alþingistíðinda. (3607)
86. mál, réttindi Íslendinga á Grænlandi
Pétur Ottesen:
Ég vildi leyfa mér að spyrja formann utanrmn., hv. þm. Str., hvað líði afgreiðslu á till. til þál. um rétt Íslendinga á Grænlandi. Ég ætla, að það hafi verið 28. jan. s. l., sem henni var vísað til utanrmn., svo að það er nú komið hátt upp í tvo mánuði síðan. Nú er svo háttað um utanrmn., að hún starfar á milli þinga, og þarf því engan veginn að vera örvænt um, að hún verði við því búin á næsta þingi að gefa greið svör við þessu. Jafnframt vildi ég spyrja hæstv. dómsmrh., ef hann heyrir mál mitt, hvað hann hyggist að gera til þess að hrinda málinu áfram. Hann lét sig það allmiklu skipta hér við fyrri umræðu, og hét hann mér fyrirgreiðslu í málinu. Mun ég, þar sem ég sé, að hann er ekki hér viðstaddur, inna hann eftir þessu við næstu samfundi