05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í D-deild Alþingistíðinda. (3649)
105. mál, Faxaflóasíld
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :
Herra forseti. Út af ummælum hv. 2. þm. Reykv. vil ég geta þess, að þessi leið hefur verið rædd og athuguð í byrjun síldveiðanna og var af ýmsum talin líkleg. Ég hafði sama álit og lét jafnvel athuga það nokkuð, hvort ekki væri hægt að létta á með því að flytja síldina á bílum frá Akranesi til Skagastrandar. Þegar liðkaðist með skip, vék þó þessi hugmynd til hliðar, meðal annars vegna þess, að praktískara var talið að flytja á skipum vegna benzíneyðslu og gúmmíslits, er hitt hafði í för með sér. Síðar vék ég enn að því við formann verksmiðjustjórnarinnar, hvort ekki væri freistandi að reyna þessa leið, en hann taldi tvenn tormerki á því, að talið væri vafasamt, að Skagastrandarverksmiðjan væri starfhæf, og að leiðin milli Blönduóss og Skagastrandar væri ófær vegna snjóa. Það er að vísu ekki svo löng leið, að ekki mætti halda henni opinni, ef ekki væri iðulaus stórhríð. Sem sagt, ýmsir létu sér detta þetta í hug, en kostnaðurinn var talinn svo stórkostlegur, að því var eðlilega vikið til hliðar. Ég vil gjarnan láta athuga þetta enn nánar, en það strandar, ef ekki er hægt að koma verksmiðjunni í gang eða allt fólk er fjarri, svo að hún kemst ekki í gang þess vegna.
Hv. þm. Siglf. vil ég segja það, að það er lítill vandi að gera þá sjómenn óánægða, sem bíða losunar. Hitt er vandinn, sem glímt er við og verður haldið áfram að glíma við með góðra manna tilstyrk, að bjarga þessum afla, svo að ekki verði þannig til stofnað, að hann verði gerður að engu. Viðvíkjandi hraða í framkvæmdum vil ég bara benda á það, að í stjórn síldarverksmiðjanna er svo mikil tregða, að fátt fæst afgreitt á löglegan hátt.
Mér finnst sérstök ástæða til þess að minna þennan hv. þm. á það, að kommúnistar eiga fulltrúa í stjórn síldarverksmiðjanna, sem á að standa að ákvörðunum, er koma til með að hafa fjárhættu í för með sér bæði fyrir verksmiðjurnar og ríkissjóð. Ég vil ráðleggja hv. þm. Siglf. að tala vel við hann, því að hann er mjög ragur í aðgerðum.