05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í D-deild Alþingistíðinda. (3652)

105. mál, Faxaflóasíld

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :

Herra forseti. Mér þykja ummæli hv. þm. einkennileg, þar sem hv. þm. hlýtur að vera það kunnugt, að það er stjórn síldarverksmiðjanna., sem að lögum hefur með þetta mál að gera, að hann skuli ekki hafa látið fulltrúa sinn í þessari stjórn koma fram með þessa einföldu till., sem hann er hér með, í gær eða fyrradag. (ÁkJ: Ef það veltur allt á Þóroddi Guðmundssyni, skal ég tala við hann.)