11.12.1947
Sameinað þing: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í D-deild Alþingistíðinda. (3664)

105. mál, Faxaflóasíld

Gísli Jónsson [frh.]:

Herra forseti. Ég hafði á síðasta fundi í Sþ. rætt nokkuð um þetta mál og sýnt fram á, að engin ástæða væri til að bera fram þessa till., því að áður en hún kom fram, hafði ríkisstj. og stjórn SR gert allt, sem unnt var, til að bæta úr hinum óvæntu erfiðleikum á þessari síldarvertíð. Ég skal svo ekki ræða þetta mikið nú, en aðeins benda á, að ef ætlazt er til, að ríkið taki á sig allan kostnað við að flytja síldina hér í land og svo úr landi, en láti ekki þennan aukna kostnað koma fram í síldarverðinu, þá er það vissulega mikið að greiða og hlýtur að koma niður á síldarverksmiðjum ríkisins eða heildarverði þeirra næsta ár.

Með tilvísun til þess, sem ég hef nú sagt, höfum við hv. þm. Ísaf. og hv. þm. N-Þ. leyft okkur að bera fram svo hljóðandi rökst. dagskrá í málinu, með leyfi hæstv. forseta:

„Með því að upplýst hefur verið, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins hafði þegar áður en þál. þessi kom fram á Alþ. gert ráðstafanir til að leggja síld á land hér syðra til þess að greiða fyrir veiðiskipunum og framkvæmd þessi er nú þegar hafin, lítur Alþ. svo á, að till. sé að ófyrirsynju fram komin, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég skal svo ekki tefja störf Alþ. með því að ræða þetta mál meira, ég tel þess ekki þörf, en leyfi mér að afhenda hæstv. forseta þessa dagskrá.