03.03.1948
Sameinað þing: 49. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í D-deild Alþingistíðinda. (3680)

125. mál, rafmagnsþörf austurhluta Rangárvallasýslu og Mýrdals

Flm. (Jón Gíslason) :

Herra forseti. Samflutningsmaður minn hefur í ræðu sinni tekið fram flest af því, sem ég vildi segja um b-lið till. Ég hef átt tal við raforkumálastjóra um þetta mál, og gat hann þess alls ekki, að hann teldi till. óþarfa, heldur þvert á móti hugði hann gott að hafa þetta ákvæði um áframhaldandi rannsóknir á virkjun. Ég get ekki séð, að það geti talizt óþarfa afskiptasemi, þó að Vestur-Skaftfellingar vilji hafa hönd í bagga með þessari virkjun. Þeir hafa haft það og vilja, að svo sé áfram. Það er svo auðvitað skiljanlegt, að hv. 2. þm. Rang. láti sig málið miklu varða, og ég hygg, að það sé mjög æskilegt, að góð samvinna geti verið um það, því að þetta er mikið nauðsynjamál, sem fyrir hendi liggur að leysa. Ég hef ekki meira við þetta að bæta, en vænti þess, að till. verði samþ.