29.10.1947
Sameinað þing: 16. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 512 í D-deild Alþingistíðinda. (3743)

42. mál, þingmannabústaður

Fyrirspyrjandi (Bernharð Stefánsson) :

Herra forseti. Eins og hv. alþm. mun reka minni til, þá var svo ákveðið í 1. gr. l. nr. 9 13. febr. 1943, að ríkisstj. skuli sjá þeim þm., sem búsettir eru utan Reykjavíkur, fyrir húsnæði, meðan á þingtímanum stendur, og er henni heimilað að láta reisa hús eða kaupa hús fyrir þingmannabústað til þess að fullnægja þessu ákvæði. Þetta var svo áréttað í l., þar sem ríkisstj. var heimiluð allvíðtæk lántaka til húsbyggingar í 2. gr. l. nr. 59 12. marz 1945, þar sem sett er sérstakt ákvæði um það, að heimila ríkisstj. lántöku til þess að koma upp þingmannabústað. Við þetta bætist svo þál. frá 28. febr. 1947, þar sem liggur fyrir bein áskorun frá Alþ. til ríkisstj. um það að nota fyrrgreindar lagaheimildir. Ég hygg því, að það séu fá mál, sem eins augljós og margendurtekinn þingvilji hefur komið fram í eins og einmitt í þessu máli. Síðan þessi heimild var fyrst gefin, hafa þrjár ríkisstj. setið að völdum, og mér er ekki kunnugt um, að nein þeirra hafi gert neitt í þessu máli nema nota þá heimild, sem sett var í l. 1943 um, að á meðan þingmannabústaður væri ekki kominn upp, þá væri stj. heimilt að leigja húsnæði, til þess að þm. utan af landi gætu búið þar. Og þetta er svo eindreginn þingvilji, að ég minnist þess ekki um neina af þessum samþykktum, þegar þær voru gerðar, að nokkurt mótatkvæði hafi komið fram, heldur hafi allar þessar samþykktir verið gerðar mótatkvæðalaust. Ég hef ekki orðið var við, að neitt hafi verið gert í þessum efnum, þess vegna spyr ég: Hvað hefur verið gert? Því að ótrúlegt mundi það þykja, að ekkert hafi verið gert, eftir að jafnendurtekinn þingvilji hefur fram komið, og ég skil þá ekki, hvað þýðir fyrir Alþ. að beina áskorun til ríkisstj., þar sem þingið margsinnis lætur vilja sinn í ljós.

Ég hef áður vikið að því í sambandi við þetta mál, að hægt væri að leysa það á auðveldan og ódýran hátt. Í Tjarnargötunni er hús, sem ríkið á og áður var notað fyrir bústað handa forsrh. Nú hafa 3 síðustu forsrh. alls ekki búið í þessum bústað. Það má að vísu gera ráð fyrir því, ef forsrh. kæmi utan af landi, eins og var með fyrsta forsrh. Íslands, Hannes Hafstein, sem kom vestan af Ísafirði, að ráðstafa þyrfti því, að hann gæti setzt hér að, en ég sé ekki miklar líkur til þess, og a. m. k. eins og stendur, álít ég, að þetta hús væri miklu betur notað fyrir þingmannabústað en til þeirra nota, sem það er nú haft, að halda einstaka sinnum í því veizlur. Þá er nær að alþm. búi þarna, en veizlur séu haldnar á Hótel Borg, heldur en að þm. búi á Hótel Borg, en veizlur ríkisstj. séu haldnar í ráðherrabústaðnum. Auk þess er ég ekki viss um, að það sé ósamrímanlegt, að þm. utan af landi byggju uppi á lofti í ráðherrabústaðnum og veizlur gætu farið fram niðri í sölunum eins fyrir því. Ég skal ekki frekar en áður lasta það að vera á Hótel Borg sem gestur í eina viku eða svo, en það ætti hver maður að geta sagt sér sjálfur, hvað það muni vera þægilegt fyrir menn, sem þurfa að dvelja hér í bænum hálft árið eða lengur við störf, að hafa hótelherbergi sem sitt annað heimili.

Tími minn er nú liðinn, en ég vil biðja hæstv. forseta að leyfa mér að spyrjast fyrir um eitt atriði enn þá. Nú hefur verið lögð sérstök kvöð af hótelinu á gesti, þ. e. að kaupa morgunhressingu á 10 kr. fyrir hvern gest. Nú vildi ég spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forsrh., hvort þetta er með í herberginu eða ekki. Ef það er ekki, sýnist mér undarleg kvöð lögð á menn, sem flestir borða úti í bæ, en alls ekki á Hótel Borg.