29.10.1947
Sameinað þing: 16. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í D-deild Alþingistíðinda. (3745)

42. mál, þingmannabústaður

Fyrirspyrjandi (Bernharð Stefánsson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin, það sem þau ná. En ég verð að segja það eins og það er nú þegar, að ég tek ekki allar þær ástæður gildar, sem hæstv. ráðh. bar fram fyrir því, að í rauninni hefur ekkert verið gert í þessu máli, því að þessi leiga á herbergjum á Hótel Borg er ekkert annað en það, sem stjórnin kemst alls ekki undan samkvæmt l. Það er svo sem ekkert gustukaverk, sem stjórnin er að gera á alþm., henni ber skylda til þess samkvæmt l. að sjá um þetta.

Hæstv. ráðh. sagði, að það væri bezta lausnin á þessu máli, að þessir þm. byggju á Hótel Borg, og það mundi ekki vera hægt að koma því svo fyrir, að það yrði þeim heppilegra. Eins og ég sagði áðan, þá mundi ég vera vel ánægður með að búa á Hótel Borg sem gestur eina nótt, eina viku eða svo. En hæstv. ráðh. ætti bara að prófa það sjálfur. hvernig það er að hafa hótelherbergi sem svefnherbergi, vinnustofu og gestaherbergi meira en hálft árið, eins og þing hafa oft staðið yfir, t. d. 8 mánuði eins og síðasta þing, og mega ekki hafa gesti hjá sér nema til kl. hálftólf. Ég get vel fallizt á, að eftir að núverandi stjórn tók við störfum, þá hafi ekki verið vegna fjárhagsástandsins, einkanlega gjaldeyrisástandsins, fært að reisa hús í þessu skyni, en ég get ekki séð, að þessar ástæður, sem hæstv. ráðh. færði fram gegn því, að hægt væri að taka ráðherrabústaðinn gamla, hafi við fullgild rök að styðjast. Það getur vel verið, að það sé nauðsynlegt að hafa þarna risnu þá, sem ríkisstj. þarf að hafa á hendi, en ég hygg nú, að það séu ekki fleiri þm., sem óska eftir að vera á vegum ríkisstj. yfir þingtímann, en svo, að hægt væri að útbúa loftið á ráðherrabústaðnum þannig, að þeir gætu þar verið. Fyrir eina tíð var ég kunnugur í þessu húsi, og þar uppi á loftinu voru mörg herbergi, og sumum mætti skipta. Ég get því ekki fallizt á það, sem hæstv. ráðh. sagði, að hann teldi sæmilega fyrir þessum málum séð. Hann telur, að í öðrum löndum muni það ekki vera þannig, að ríkisstj. sjái þm., sem búsettir eru utan höfuðborganna, fyrir húsnæði. Það kann að vera. En ég hygg, að í fáum löndum sé eins ástatt og í Reykjavík hvað þetta snertir, að útvega einstök herbergi úti í bæ, og það verður að viðurkenna, að það mun ekki vera þm. hagkvæmara en að búa á Hótel Borg, ekki sízt ef þau herbergi væru húsgagnalaus, en náttúrlega væri það hentugast fyrir þm, að leigja sér herbergi eða íbúð allt árið. En það er nú svona með þingmennskuna, að það er engin eilífðarstaða að vera þm., og þess vegna hafa þm. utan Reykjavíkur tekið þann kost að leigja herbergi aðeins um þingtímann. En ég veit til, að það eru einstaka þm., sem hafa leigt sér herbergi allt árið, en það eru þeir einir, sem jafnframt þingmennskunni hafa með höndum önnur störf hér í Reykjavík, sem gera það að verkum, að þeir þurfa að koma hingað og dvelja hér oftar en um þingtímann.

Út af bréfi því, sem hæstv. ráðh. gat um, að hann hefði sent forseta þingsins, þá vil ég segja það, að ég vil taka undir það, sem hann hafði eftir forseta sameinaðs þings, að ég álít þetta mál óviðkomandi forsetum þingsins, sökum þess að það eru lagaákvæði um það, að fyrir þessu á ríkisstj. að sjá, en ekki forsetar þingsins. Eitt efa ég mjög, að sé alls kostar rétt, sem hæstv. ráðh. greinir hér, að þfkn. eigi að skera úr um það, hvernig eigi að fara með þetta aukagjald á Hótel Borg. Ríkisstj. á að sjá fyrir húsnæðinu, og þetta gjald felst í húsnæðinu: Ég held því, að það sé ríkisstj., en ekki þfkn. að skera úr um þetta atriði.

Ég verð því miður að segja, um leið og ég sezt niður, að þó að ég þakki hæstv. forsrh. fyrir svörin, það sem þau ná, þá get ég ekki verið ánægður með niðurstöðuna eða aðgerðir ríkisstj. né heldur fyrri ríkisstjórna í þessu máli, og mér finnst, að í þessu máli hafi komið fram ákaflega lítil virðing þriggja ríkisstj. undanfarið fyrir þingviljanum, sem er svo skýr í þessu máli, eins og ég tók fram, að á betra verður ekki kosið í því efni.