05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í D-deild Alþingistíðinda. (3769)
901. mál, síldarverksmiðja á Norðausturlandi
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :
Ég mun að gefnu tilefni gangast frekar eftir því, að sú athugun fari fram, sem hefur dregizt of mjög á langinn. Út af athugun nýbyggingarráðs vil ég segja það, að sé það rétt, að þau gögn séu enn eigi komin í hendur verksmiðjustjórnarinnar, þá mun ég biðja fjárhagsráð að senda henni strax afrit af þeim. Það er rétt, að þessi athugun, sem nýbyggingaráð gerði, sé rannsökuð, ef hún gæti komið að notum. Þessi athugun er gerð af góðum og greindum mönnum, og ég skal sjá um, að hún tapist ekki út úr málinu.